Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2023

Apr 13, 2023

8457_rns_2023-04-13_de842afe-632f-4267-b1f8-f34684b266c1.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir Grænar Lausnir hf.: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2023

Klappir Grænar Lausnir hf.: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2023

Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður á Café Atlanta, Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi, fimmtudaginn 27. apríl 2023 kl. 15:00.

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði bréflega eða að láta umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd.

Atkvæði sem greidd eru bréflega skulu hafa borist á netfangið [email protected] eigi síðar en kl. 14:00 á fundardegi 27. apríl 2023.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu félagsins www.klappir.com. Mælst er til að skráning berist tímanlega. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboð má leggja fram á fundinum eða senda á netfangið [email protected] fyrir fundinn.

Ekki hafa verið gerðar breytingar frá áður birtri dagskrá og tillögum sem lagðar verða fyrir fundinn. Öll gögn vegna aðalfundar hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins www.klappir.com/investors.  

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ásta Ólafsdóttir fjármálastjóri félagsins með tölvupósti á netfangið [email protected].