Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2022

Apr 5, 2022

8457_rns_2022-04-05_793b83d4-a48c-4920-af37-036a495cc8d5.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

6

Klappir

The smart way to sustainability

Ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf.

fyrir aðalfund félagsins þann 27. apríl 2022

Dagskrárliður 3

Tillaga um staðfestingu á ársreikningi félagsins

Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2021 verði samþykktur.

Ársreikningur félagsins vegna ársins 2021 er aðgengilegur á vefsíðu Klappa Grænna Lausna hf. www.klappir.com/fjarfestar

Ársreikningurinn verður kynntur af forstjóra félagsins, Jóni Ágústi Þorsteinssyni.

Dagskrárliður 4

Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2021

Stjórn leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur arður til hluthafa en að hagnaður ársins verði færður til hækkunar á eigirn fé félagsins.

Dagskrárliður 6

Kosning endurskoðunarfélags

Stjórn leggur til að Deloitte ehf., og Birna María Sigurðardóttir endurskoðandi sem þar starfar, verði endurkjörð endurskoðunarfirma félagsins.

Dagskrárliður 7

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Lagt er til að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem nemur kr. 50.000 fyrir hvern setinn stjórnarfund.

Dagskrárliður 8

Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins

Stjórn leggur til að framlögð starfskjarastefna verði samþykkt óbreytt.


Klappir
The smart way to sustainability

Dagskrárliður 9

Tillaga stjórnar til aðalfundar um tillögu til breytinga á samþykktum félagsins

Stjórn leggur til að gildandi heimild stjórnar, skv. gr. 2.01.5 samþykkta félagsins, til að ákveða hækkun á hlutafé félagsins í B-flokki hlutabréfa verði framlengd um 18 mánuði.

Eftistöðvar hækkunarheimildar stjórnar eru nú kr. 29.857.591 af upphafflegri heimild að fjárhæð kr. 50.000.000 að teknu tilliti til kaupréttarkerfis. Tillaga stjórnar snýr að því að þessi heimild verði framlengd um 18 mánuði frá dagsetningu aðalfundar félagsins 2022.