Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2022

Apr 21, 2022

8457_rns_2022-04-20_6234133e-2270-4be1-9880-8fa9180f964a.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir Grænar Lausnir hf: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2022

Klappir Grænar Lausnir hf: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2022

Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður miðvikudaginn 27. apríl 2022 kl. 16:00 með rafrænum hætti.

Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins www.klappir.com og fá þeir þá sendan hlekk á fundinn. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundabúnað þar sem hluthafar geta fylgst með aðalfundarstörfum og tekið þátt í fundinum.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu félagsins eigi síðar en kl. 16:00 þann 25. apríl 2022.

Ekki hafa verið gerðar breytingar frá áður birtri dagskrá og tillögum sem lagðar verða fyrir fundinn. Öll gögn vegna aðalfundar hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins www.klappir.com  

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ásta Ólafsdóttir fjármálastjóri félagsins [email protected]