AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — AGM Information 2021
Mar 22, 2021
8457_rns_2021-03-22_49edd377-702c-4fc5-be4a-adeae9438d72.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
KLAPPIR
Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf. 2021
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður á Hótel Hilton, Reykjavík, þriðjudaginn 13. apríl 2021. Fundurinn hefst kl. 16:00. Einnig verður boðið upp á rafræna þátttöku.
Drög að dagskrá frá stjórn eru svohljóðandi:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2020.
- Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
- Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins.
- Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2020.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðunarfélags.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga stjórnar um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum.
- Tillaga stjórnar til aðalfundar um tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
- Önnur mál löglega fram borin
a) Stjórn hefur borist tillaga frá hluthafa sem felur í sér jöfnun réttinda milli A og B hlutaflokka.
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com.
Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 8. apríl 2021.
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögu ef gerð hefur verið skriflega eða rafræn krafa þar um. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá fundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar tveimur víkum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 3. apríl 2021.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Framboðum skal skila á skrifstofu Klappa Grænna Lausna hf., Ármúla 4-6, 108 Reykjavík eða á netfangið [email protected] fram til 9. apríl kl. 16:00. Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Atkvaeðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Athygli er vakin á því að endanlegt fyrirkomulag aðalfundarins kann að taka breytinum með hliðsjón af gildandi sóttvarnarreglum hverju sinni.
Reykjavík, 22. mars 2021
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf.