Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. Remuneration Information 2021

Apr 16, 2021

6045_rns_2021-04-16_8c2da308-11e6-4ebf-95e2-4bdad8ee3aae.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

STARFSKJARASTEFNA KALDALÓNS HF.

  1. gr. Forsendur

1.1 Starfskjarastefna þessi er gerð á grundvelli 1. mgr. 79. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995.

1.2 Kaldalón hf. (hér eftir „félagið“) gerði þann 29. janúar 2020 samning við GAMMA Capital Management hf. um eignastýringarþjónustu við félagið. Samkvæmt samningunum skal GAMMA Capital Management hf. sinna eignastýringu fyrir félagið. Hjá félaginu er nú starfandi einn starfsmaður á launaskrá en það er framkvæmdastjóri félagsins.

  1. gr. Óheimilar greiðslur til starfsmanna

2.1 Starfskjör framkvæmdastjóra skulu tilgreind í ráðningarsamningi og skulu taka mið af þeim takmörkunum sem kveðið er á um í þessari grein 2.

2.2 Ekki er heimilt að gera kaupréttar-, sólúréttar- eða forkaupsréttarsamninga við framkvæmdastjóra eða aðra starfsmenn félagsins. Heimilt er að selja framkvæmdastjóra áskriftarréttindi að hlutum í félaginu á markaðsvirði, með heimild hluthafafundar og samkvæmt ákvörðun stjórnar.

2.3 Ekki er heimilt að veita starfsmönnum félagsins aukagreiðslur, fríðindi eða aðra umbun.

2.4 Ekki er heimilt að lána starfsfólki fjármuni. Þó er heimilt við sérstakar aðstæður að greiða laun fyrirfram ef nauðsyn ber til og þá aldrei meira en sem nemur einum mánaðarlaunum.

2.5 Félagið gerir ekki sérstaka starfslokasamninga við framkvæmdastjóra eða aðra starfsmenn í ráðningarsamningum eða í sérstökum samningum í tengslum við starfslok.

  1. gr. Laun stjórnar

3.1 Laun stjórnar skulu ákvörðuð á hluthafafundi á hverju ári, fyrir komandi ár.

  1. gr. Upplýsingagjóf og ábyrgð

4.1 Félagsstjórn skal birta starfskjarastefnuna í tengslum við aðalfund félagsins. Á aðalfundi skal stjórnin gera grein fyrir samandregnum kjörum stjórnenda, stjórnarmanna. Þar skal félagsstjórn jafnframt skýra frá framkvæmd samþykktrar starfskjarastefnu.

4.2 Framkvæmdastjóri skal ábyrgjast að laun starfsmanna verði innan ramma starfskjarastefnu félagsins hverju sinni.

  1. gr. Samþykkt starfskjarastefnu og fleira

5.1 Starfskjarastefna félagsins skal tekin til afgreiðslu á aðalfundi til samþykktar eða synjunar og skal hún tekin til endurskoðunar ár hvert.

Reykjavík 19. apríl 2021
stjórn Kaldalóns hf.