Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. Remuneration Information 2021

Dec 8, 2021

6045_rns_2021-12-08_68246ee9-4c3f-4811-baf7-f4c4a4bccb5e.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

STARFSKJARASTEFNA FYRIR KALDALÓN HF.

1 TILGANGUR OG MARKMID

1.1 Starfskjarastefna Kaldalóns hf. („félagið“) er gerð á grundvelli 1. mgr. 79. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995 og með hliðsjón af 6. útg. leiðbeininga Viðskiptaráðs Íslands, Nasdaq Iceland hf. og Samtaka atvinnulífsins um stjórnarhætti fyrirtækja útg. 2021.

1.2 Tilgangur félagsins er eignarhald fasteigna og fasteignapróun ásamt kaup, sala, útleiga rekstur og umsýsla þeirra. Þá felur tilgangur félagsins einnig í sér fjárfestingastarfsemi, lánastarfsemi og annar skyldan rekstur. Starfskjarastefnu félagsins er ætlað að stýðja við framangreinda tilgang félagsins með því að bjóða stjórnendum og öðru starfsfólki félagsins samkeppnishæf kjör og starfsumhverfi á við það sem býðst í hliðstæðum störfum hér á landi. Þá er stefnunni ætlað að treysta langtímahagsmuni hluthafa, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.

1.3 Við ákvörðun um starfskjör skal horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að viðurkenndum jafnréttissjónarmiðum.

2 STARFSKJARANEFND

2.1 Skipa skal starfskjaranefnd sem skal vera stjórn og forstjóra ráðgefandi um starfskjör stjórnenda félagsins. Nefndin skal einnig fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma stefnu þessarar.

2.2 Meirihluti nefndarinnar skal vera óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess, auk þess sem nefndarmenn skulu vera óháðir endurskoðendum félagsins. Þá skulu nefndarmenn hafa þekkingu og reynslu í samræmi við störf nefndarinnar. Stjórn er heimilt að fara með hlutverk starfskjaranefndar.

2.3 Við mótun tillagna um starfskjör skal horfa til upplýsinga um starfskjör hjá félögum sem starfa á hliðstæðum mörkuðum m.a. með tilliti til ábyrgðar og árangurs viðkomandi starfsmanna.

2.4 Stjórn ber ábyrgð á störfum starfskjaranefndar og starfar nefndin í umboði stjórnar. Nefndin skal árlega gera tillögu til stjórnar um endurskoðun starfskjarastefnu félagsins fyrir hvern aðalfund og skýrslu um starfskjör félagsins og samræmi þeirra við stefnu þessa.

3 STARFSKJÖR STJÓRNAR OG NEFNDARMANNA

3.1 Stjórn félagsins ásamt nefndarmönnum í undirnefndum stjórnar skulu fá greidda fasta þóknun fyrir störf sín í samræmi við ákvörðun aðalfundar ár hvert. Starfskjaranefnd er heimilt að ákveða breytilega þóknun til handa einstökum stjórnarmönnum félagsins sem skal þá vera tengd við mikilvæga áfanga í rekstri og starfsemi félagsins t.a.m. hvort settum markmiðum hefur verið náð. Slik heimild er jafnframt bundin því að viðeigandi stjórnarmönnum hafi verið falin tilgreind verkefni af stjórn félagsins og óskað eftir aðkomu starfskjaranefndar við ákvörðun breytilegrar þóknunar.

Síða 1 af 3


3.2 Stjórn fær tillögur að fastri þóknun stjórnar og nefndarmanna frá starfskjaranefnd fyrir hvert komandi starfsár og gerir í framhaldinu tillögu til aðalfundar. Í þeim efnum skal taka mið af þeim tíma sem varið er til starfsins, þeirri ábyrgð sem á stjórn og nefndarmönnum hvílir, afkomu félagsins, markmiðum starfskjarastefnu þessarar og samsvarandi greiðslum í öðrum skráðum félögum í Kauphöllinni.

4 STARFSKJÖR

4.1 Skriflegur ráðningarsamningur skal gerður við forstjóra félagsins og aðra starfsmenn félagsins. Föst laun og aðrar árangurstengdar greiðslur skulu vera samkeppnishæf á þeim markaði sem félagið starfar á og taka mið af ábyrgðarskyldum, hæfni, menntun, reynslu og fyrri störfum.

4.2 Ráðningarsamningar skal innihalda ákvæði um grunnlaun, breytileg laun, greiðslur í lífeyrissjóð, orlof, önnur hlunnindi og uppsagnarfrestur.

4.3 Stjórn ákveður kjör forstjóra og forstjóri ákveður kjör starfsmanna.

4.4 Stjórn félagsins er heimilt að semja við forstjóra og aðra stjórnendur félagsins um kaupauka og hvatagreiðslur sem taka mið af frammistöðu viðkomandi starfsmanns, afkomu félagsins, mikilvæga áfanga í rekstri og starfsemi félagsins að öðru leyti, þ.m.t. hvort settum markmiðum hefur verið náð. Jafnframt er stjórn félagsins heimilt að semja við forstjóra og aðra stjórnendur félagsins um áskriftarréttindi. Um breytileg starfskjör starfsmanna félagsins skal forstjóri fá samþykki stjórnar fyrir fram.

5 SKADLEYSI STJÓRNAR OG STJÓRNENDA

5.1 Starfsábyrgðartrygging skal vera í gildi á hverjum tíma fyrir stjórnarmenn og æðstu stjórnendur félagsins vegna starfa þeirra í þágu félagsins. Iðgjöld skulu greidd af félaginu.

5.2 Félagið skal tryggja að framangreindum aðilum sé haldið skaðlausum af kröfum sem á þá kunna að verða gerðar eða á þá kunna að falla vegna starfa þeirra fyrir félagið að svo miklu leyti sem slík krafa er ekki til komin fyrir saknæma háttsemi aðilanna.

5.3 Komi síðar í ljósi að aðili hafi af ásetningi eða stórfelldu gáleysi brotið gegin skyldum sínum við félagið eða ákvæðum laga í starfi sínu fyrir það á félagið endurkröfurétt á hlutaðeigandi aðila ef einhver kostnaður hefur verið greiddur vegna framangreinds.

6 LAUNAJAFNRÉTTI

6.1 Stjórn, stjórnendum og starfsmönnum félagsins skulu greidd jöfn laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir alla starfsmenn óháð kynferði, kynþætti, þjóðerni, trú, aldri eða öðrum ómálefnalegum þáttum. Þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun skulu því ekki fela í sér ómálefnalega mismunun.

6.2 Jafnréttis skal gætt við úthlutun hvers konar þóknana og hlunninda, beinna eða óbeinna, og starfsmenn skulu njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt óháð kynferði, kynþætti, þjóðerni, trú, aldri eða öðrum ómálefnalegum þáttum.

Síða 2 af 3


Síða 3 af 3

7 UPPLÝSINGAGJÖF

7.1 Stjórn birtir stefnu þessa í tengslum við aðalfund félagsins ár hvert.

7.2 Öll gögn sem liggja að baki starfskjarastefnunni skulu gerð aðgengileg hluthöfum í það minnsta tveimur víkum fyrir aðalfund félagsins. Gögnin skulu vera þannig úr garði gerð að hluthafar eigi auðvelt með að móta sér skoðun á starfskjarastefnunni og áhrifum hennar.

7.3 Á aðalfundi skal stjórn jafnframt gera grein fyrir kjörum einstakra stjórnenda og stjórnarmanna félags, þ.m.t. launum, áunnum eftirlaunagreiðslum, öðrum greiðslum og fríðindum, og breytingum á kjörum milli ára.

7.4 Í ársreikningi félagsins skal gerð grein fyrir heildarstarfskjörum stjórnar, forstjóra og lykilstjórnenda í samræmi við reikningsskilareglur.

8 SAMÞYKKT STARFSKJARASTEFNU FÉLAGSINS

8.1 Starfskjarastefna þessi er leiðbeinandi fyrir félagið og skal samþykkt á aðalfundi félagsins árlega með eða án breytingum.

8.2 Öll veruleg frávik frá starfskjarastefnu þessari skulu gerð skil í fundargerðarbók stjórnar ásamt rökstuðningi. Aðalfundi skal gert grein fyrir slíkum frávikum á næsta aðalfundi.

8.3 Starfskjarastefna þessi skal birt á heimasíðu félagsins.

[Svo samþykkt á hluthafafundi félagsins þann 16. desember 2021.]