AI assistant
Kaldalón hf. — M&A Activity 2026
Apr 9, 2026
6045_rns_2026-04-09_352a13ad-2a11-457b-aca3-886aed872b22.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Kaldalón hf.: Kaup á fasteignum FÍ fasteignafélags
Kaldalón hf.: Kaup á fasteignum FÍ fasteignafélags
Vísað er til tilkynningar frá 12. desember 2025 í tengslum við undirritun kauptilboðs milli Kaldalóns hf. („Kaldalón“) og FÍ Fasteignafélags slhf. („FÍ Fasteignafélag“) um kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags.
Fyrirhuguð viðskipti hafa nú verið samþykkt á hluthafafundi FÍ Eignarhaldsfélags slhf., móðurfélag FÍ Fasteignafélags, og skrifuðu aðilar í dag undir kaupsamning um fasteignirnar. Einn leigutaki nýtti sér forkaupsrétt samkvæmt ákvæðum viðeigandi leigusamnings og bíða þau viðskipti samþykki dómsmálaráðuneytisins fyrir eigandaskiptum að viðkomandi fasteign. Komi til þess að ráðuneytið synji umsókn forkaupsréttarhafa skuldbindur Kaldalón sig til að kaupa viðkomandi eign til samræmis við skilmála kauptilboðsins sem skrifað var undir þann 12. desember 2025.
Fasteignirnar eru allar á höfuðborgarsvæðinu og innihalda m.a. hótel, heilsugæslu og skrifstofur. Meðal helstu eigna í fasteignasafninu eru Hverfisgata 103, sem hýsir 100 herbergja hótel, skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 25, verslunar- og þjónustuhúsnæði við Bernhöftstorfu í miðbæ Reykjavíkur, heilsugæslu í Glæsibæ auk annarra eigna.
Kaupverð fasteignanna er 12.280 m.kr. og eru viðskiptin fullfjármögnuð með útgáfu hlutafjár og skuldabréfa til seljanda. Kaupverð greiðist annars vegar með afhendingu á 221.040.000 nýjum hlutum í Kaldalóni og hins vegar með útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 6.754 m.kr., en þau munu tilheyra nýjum skuldabréfaflokki KALD 220437, sem skráður verður í Kauphöll Íslands. Skuldabréfin verða gefin út á ávöxtunarkröfunni 3,93% og afhent á pari. Álagið í skuldabréfaútgáfunni nemur 120 punktum ofan á meðalgengi brúaðs vaxtaferils ríkisskuldabréfa síðustu 10 viðskiptadaga fyrir samþykki kauptilboðsins. Kaupverð verður greitt við afhendingu eigna.
Viðskiptin eru háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Áætluð afhending á fasteignum er á öðrum ársfjórðungi 2026.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka er umsjónaraðili söluferlis FÍ fasteignafélags.
BBA//Fjeldco veitti lögfræðilega ráðgjöf.
Frekari upplýsingar veitir;
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri