Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. M&A Activity 2025

Sep 1, 2025

6045_rns_2025-09-01_cfa0fb77-62d2-47e5-bd8d-9a702982ae2e.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á tekjuberandi eignum

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á tekjuberandi eignum

Vísað er til tilkynningar frá 21. ágúst s.l. þar sem fram kom að Kaldalón hefði skrifað undir samning um kaup á annars vegar öllu hlutafé í Baldurshaga ehf. („Baldurshagi“), þar sem eina fasteign þess að viðskiptum loknum er fasteign við Krókháls 16, og hinsvegar fasteignum við Skúlagötu 15 og Klettháls 1A.

Fyrirvarar í kaupsamningum hafa nú verið uppfylltir og Kaldalón hefur fengið afhent hlutafé Baldurshaga ehf. auk ofangreindra fasteigna.

Endanlegt heildarvirði ofangreindra viðskipta er 2.335 m.kr. Áætlað er að  rekstrarhagnaður Kaldalóns aukist um 171 m.kr. á ársgrunni í kjölfar viðskipta.