Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. M&A Activity 2024

Nov 29, 2024

6045_rns_2024-11-29_c02ea8c7-943c-4b0d-9236-57c1215b8563.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“).

Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk.

Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Leigutekjur nema á ársgrunni 636 m.kr. en áætlað er að  rekstrarhagnaður Kaldalóns aukist um 533 m.kr. á ársgrunni í kjölfar viðskipta.