AI assistant
Kaldalón hf. — Interim / Quarterly Report 2021
Aug 20, 2021
6045_rns_2021-08-20_b897e2ac-c2f8-4a82-b6c9-81dd0d18de95.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Kaldalón hf.
Samandreginn árslutareikningur 30. júní 2021
Efnisyfirlit
bls.
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra ... 2
Fagleg aðstoð við gerð ársreiknings ... 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 6
Efnahagsreikningur ... 7
Eiginfjáryfirlit ... 8
Sjóðstreymi ... 9
Skýringar ... 10
Kaldalón hf.
Kennitala 490617-1320
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík
2
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Kaldalón hf. flokkast sem fjárfestingafélag samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Félagið gerir ekki samstæðureikning heldur metur eignir í dóttur- og hlutdeildarfélögum á gangvirði og færir gangvirðisbreytingar í rekstrarreikning. Félagið flokkast sem lítið félag samkvæmt skilgreiningu laga um ársreikninga. Tilgangur félagsins er m.a. fjárfestingarstarfsemi, þ.m.t. fasteignapróun, kaup, sala, rekstur, eignarhald, umsýsla og uppbygging fasteigna og innviða tengdum fasteignaverkefnum og fasteignafélaga. Sjá nánar í samþykktum félagsins.
Starfsemin á tímabilinu
Á fyrri helmingi ársins kom Kaldalón hf. og dótturfélög að talsverðri uppbýggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Félagið á tæplega helmingshlut í Kársnesbyggð ehf. sem hefur lokið við býgigngu 78 íbúða verkefnis við Hafnarbraut í Kópavogi. Sölu íbúða er lokið og sala atvinnuhúsnæðis langt komin.
Í Urriðaholtsstræti í Garðabæ standa dótturfélög Kaldalóns U22 ehf., U24 ehf. og U26 ehf. að uppbýggingu 51 íbúðar. Íbúðir í Urriðaholtsstræti 22 eru afhentar sem ganggald fyrir lóðakaup félagsins á Steindórsreit í Reykjavík. Í maí 2021 var tilkynnt um sölu á dótturfélaginu U26 ehf. Afhending á félaginu, og íbúðum þess í býgigngu, er á seinni helmingi ársins 2021. Gert er ráð fyrir að sölferli íbúða að Urriðaholtsstræti 24 hefjist á þriðja ársfjörðung.
Í maí var tilkynnt um sölu á fasteignaverkefnum í Vogabyggð sem eru í eigu U 14-20 ehf., dótturfélags Kaldalóns. Samhliða sölunni var tilkynnt um kaup á félaginu Lantan ehf. sem á fasteignir að Laugavegi 32-36 sem m.a. hýsir starfsemi Sand Hótels, og félagið VMT ehf. sem á fasteignir að Vegamótastíg 7 sem hýsir starfsemi Room with a View Hotel, ásamt gildandi leigusamningum. Langtíma leigusamningar eru í gildi á eignum félaganna. Kaup á Lantan, VMT og Hvönnum sem tilkynnt hafa verið eru ekki hluti af þessum árshlutareikning.
Kaupin eru liður í aukinni áherslu félagsins á tekjuberandi eignir í eignasafni Kaldalóns. Aðilar hafa undirritað kaupsamning vegna viðskiptanna og hlotið samþykki stjórnar begge aðila. Kaldalón tók við fjárhagslegum réttindum og skyldum vegna fasteignanna frá 1. júl s.l., en endanleg afhending keyptra og seldra eigna fer fram þann 1. október n.k. að undangengnu samþykki fjármögnunaraðila og aðlaskipta á lóðar- og býggingarrétti.
Kauptilboð var samþykkt á tímabilinu í Hvannir hf. Helsta eign Hvanna er Storm hótel sem stendur við Þórunnartún 4 í Reykjavík. Langtímaleigusamningar er í gildi við dótturfélag KEA hótela ehf. Víðskiptin eru háð áreiðanleikakönnun á Hvönnum ehf. og eignum þess.
Þróunarfélagið Hnoðraholt ehf., dótturfélag Kaldalóns, seldi býggingaverkefni fyrir 200 íbúðir í Hnoðraholti Norður, Garðabæ, til Reir Verk ehf. í febrúar. Skipulag var samþykkt í mars 2021. Félagið á eftir viðskiptin, og samkomulag við Garðabæ, atvinnuhúsalóð við Þorraholt 6 í Hnoðraholti.
Á Steindórsreit í vesturbæ Reykjavíkur eru framkvæmdir hafnar við 84 íbúða býgigngu ásamt atvinnurýmum sem til stendur að verði tilbúin í áföngum á árinu 2023.
Eignastýringarsamningi við Gamma Capital Management lauk á árinu. Jónas Þór Þorvaldsson lét af störfum í júní og Jón Þór Gunnarsson ráðinn forstjóri Kaldalóns. Tveir starfsmenn eru hjá félaginu en Högni Hjálmtýr Kristjánsson var ráðinn forstöðumaður eignaumsýslu og fjármála í júl.
Hagnaður varð af rekstri félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2021 að fjárhæð 699 milljónum króna samanborið við 226 milljónir króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2021 námu eignir félagsins 7.042 milljónum króna og hafa aukist um 948 milljónir króna frá áramótum. Eigið fé félagsins nam 5.345 milljónum króna þann 30. júní 2021 samanborið við 4.646 þann 31. desember 2020.
Það er álit stjórnar félagsins að allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig á stöðu félagsins í lok tímabilins, rekstrarárangri tímabilins og fjárhagslegri þróun félagsins, komi fram í árshlutareikningnum.
3
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Framtíðaráform
Stefna Kaldalóns er að auka vægi tekjuberandi eigna í starfsemi félagsins, en viðhalda á sama tíma sterkum þróunararmi. Áhersla verður lögð á stærri eignir með trausta tekjumöguleika til langs tíma, auk eigna sem tækifæri eru til að þróa og nýta sérþekkingu Kaldalóns á Þróunar- og uppyggingarverkefnum.
Félagið hefur gert ráðgjafasamning við Arion banka um ráðgjöf í tengslum við frekari kaup félagsins á tekjuberandi fasteignum. Samningurinn felur meðal annars í sér aðstoð Arion banka við fjármögnun félagsins, bæði hvað varðar eiginfjár- og lánsfjármögnun. Jafnframt hafa bankinn og Kaldalón gert með sér viljayfirlysingu um sölutyggingu bankans á allt að fimm milljörðum króna í nýju hlutafé í tengslum við fyrirhugaða skráningu félagsins á aðallista kauphallar sem fyrirhuguð er á árinu 2022.
COVID-19
Stjórn og stjórnendur félagsins hafa fylgst með þróun Covid-19 heimsfaraldursins og áhrif þess á félagið. Helstu áhrif á félagið til þessa hefur verið seinkun á afgreiðslu pantana frá birgjum byggingarframkvæmda. Áhrif á rekstur og afkomu félagsins eru ekki metin veruleg. Sala fasteigna og fasteignaverkefna hefur gengið vel á fyrri hluta ársins.
Stjórnarhættir
Stjórn Kaldalóns leggur áherslur á góða stjórnarhætti og mun í störfum sínum hafa til hliðsjónar leiðbeiningar Samtaka atvinnulifsins um góða stjórnarhætti.
Hlutafé
Í júní var tilkynnt um ákvörðun stjórnar félagsins að hækka hlutafé félagsins með útgáfu nýrra hluta til sjóða í stýringu Stefnis og Vátryggingarfélags Íslands. Samtals nam útgáfan 1.059.230.769 hlutir að nafnverði á genginu 1,3 fyrir hvem nýútgefinn hlut. Nýtt hlutafé var gefið út í júli 2021 og samþykktum félagsins breytt samhliða. Nýtt hlutafé er því ekki hlut af árshlutareikningi nú.
Hluthafar voru í ársbyrjun 120 en í lok tímabilsins 141, þar af eru 10 stærstu eftirfarandi:
| Nafnverð* | Hlutdeild | |
|---|---|---|
| Strengur Holding ehf. | 1.048.812 | 28,80% |
| Kvika banki hf. | 335.861 | 9,22% |
| Arion banki hf. | 326.995 | 8,98% |
| Lov&co ehf. | 229.607 | 6,31% |
| Investar ehf. | 179.607 | 4,93% |
| DFT ehf. | 167.500 | 4,60% |
| Vátryggingafélag Íslands hf. | 150.000 | 4,12% |
| Fagfjárfestasjóðurinn Algi slhf | 147.601 | 4,05% |
| Loran ehf. | 130.000 | 3,57% |
| Premier eignarhaldsfélag ehf. | 130.000 | 3,57% |
| 10 stærstu hluthafar samtals | 2.845.983 | 78,15% |
| Aðrir hluthafar (130 talsins) | 795.587 | 21,85% |
| Samtals útistandandi hlutir | 3.641.571 | 100,00% |
| Eigin hlutir | 574 | 0,02% |
| Hlutafé samkvæmt ársreikningi | 3.640.997 | 99,98% |
- í þúsundum króna
Vísað er til eiginfjáryfirlits vegna ráðstöfunar á hagnaði ársins.
4
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Yfirlýsing stjórnar manna
Árshlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34.
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar er það álit okkar að hann gefi glögga mynd af eignum, skuldum, og fjárhagsstöðu félagsins þann 30. júní 2021 og rekstrarafkomu, breytingu á handbæru fé og breytingum á eigin fé félagsins fyrir sex mánaða tímabilið sem endaði 30. júní 2021 ásamt því að gerð er grein fyrir helstu áhættu- og óvissuþáttum sem félagið stendur frammi fyrir.
Jafnframt er það álit okkar að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins og lýsi áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn Kaldalóns hf. og framkvæmdastjóri staðfesta hér með árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2021 með áritun sinni.
Reykjavík, 20. ágúst 2021
Jón Skaftason
stjórnarformaður
Gunnar Hendrik B. Gunnarsson
meðstjórnandi
Helen Neely
meðstjórnandi
Jón Þór Gunnarsson
framkvæmdastjóri
5
Fagleg aðstoð við gerð ársreiknings
Til stjórnar og hluthafa Kaldalóns hf.
Við höfum aðstoðað við gerð samandregins árshlutareiknings Kaldalóns hf. fyrir sex mánaða tímabilið sem endaði 30. júní 2021 og við vinnu okkar byggt á þeim upplýsingum sem stjórnendur félagsins hafa lagt fram. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstrey mi og skýringar.
Við höfum skipulagt og hagað vinnu okkar í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRS 4410, sem fjallar um aðstoð við gerð og framsetningu ársreiknings.
Við höfum notað þekkingu okkar á sviði reikningsskila og ársreikningagerðar til að aðstoða fyrirtækið við gerð og framsetningu árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Við höfum fylgt fyrirmælum síðareglna, þar á meðal grundvallarreglum um heilindi, hlutlægni, faglega hæfni og varkárni.
Ársreikningurinn, þar á meðal nákvæmni og heild undirliggjandi gagna, er á ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra.
Þar sem aðstoð við gerð árshlutareiknings er ekki staðfestingarverkefni er þess ekki krafist að við staðfestum nákvæmni eða heild þeirra upplýsinga sem stjórnendur hafa lagt fram. Þar af leiðandi veitum við hvorki álit byggt á endurskoðun né ályktun byggða á könnun um hvort samandregni árshlutareikningurinn sé gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur.
Reykjavík, 20. ágúst 2021
PricewaterhouseCoopers ehf
Atli Þór Jóhannsson
löggiltur endurskoðandi
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 1. janúar til 30. júní 2021
| Skýringar | 1.1. - 30.6.2021 | 1.1. - 30.6.2020 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrargjöld | |||
| Laun og launatengd gjöld | 10 | 22.600.594 | 27.742.067 |
| Einskiptiskostnaður | 11 | 27.000.000 | 0 |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 43.014.861 | 34.852.349 | |
| 92.615.455 | 62.594.416 | ||
| Rekstrartap | (92.615.455) | (62.594.416) | |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | |||
| Vaxtatekjur | 93.107.432 | 88.749.400 | |
| Vaxtagjöld | (43.281.273) | (46.070.253) | |
| Gangvirðisbreyting eignarhluta í félögum | 6 | 741.791.715 | 245.809.092 |
| 791.617.874 | 288.488.239 | ||
| Heildarafkoma tímabilsins | 699.002.419 | 225.893.823 |
Skýringar á bls. 9 til 18 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
7
Efnahagsreikningur 30. júní 2021
| Eignir | Skýringar | 30.6.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Fjáreignir: | |||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 5, 6 | 3.471.585.927 | 2.759.822.627 |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 5, 6 | 474.399.100 | 444.370.685 |
| Lán til tengdra aðila | 9 | 2.660.990.422 | 1.245.695.886 |
| 6.606.975.449 | 4.449.889.198 | ||
| Veltufjármunir | |||
| Lán til tengdra aðila | 9 | 431.765.319 | 1.561.056.842 |
| Skammtímakrófur | 212.183 | 212.183 | |
| Handbært fé | 13 | 2.688.561 | 82.365.032 |
| 434.666.063 | 1.643.634.057 | ||
| Eignir samtals | 7.041.641.512 | 6.093.523.255 |
Eigið fé og skuldir
| Eigið fé | |||
|---|---|---|---|
| Hlutafé | 8 | 3.640.996.528 | 3.640.996.528 |
| Bundinn eiginfjárreikningur | 1.917.904.102 | 1.176.112.387 | |
| Ójafnað tap | (214.200.182) | (171.410.886) | |
| 5.344.700.448 | 4.645.698.029 | ||
| Skuldir | |||
| Langtímaskuldir: | |||
| Skuld við tengd félög | 9 | 1.150.486.235 | 1.017.605.350 |
| 1.150.486.235 | 1.017.605.350 | ||
| Skammtímaskuldir: | |||
| Skuldir við lánastofinanir | 7 | 398.211.667 | 352.962.919 |
| Skuld við tengd félög | 9 | 105.235.000 | 66.368.649 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 43.008.162 | 10.888.308 | |
| 546.454.829 | 430.219.876 | ||
| Skuldir samtals | 1.696.941.064 | 1.447.825.226 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 7.041.641.512 | 6.093.523.255 | |
| Almennar upplýsingar | 1 - 5 | ||
| --- | --- | ||
| Tengdir aðilar | 9 | ||
| Tekjuskattur | 12 | ||
| Áhættustýring | 14 |
Skýringar á bls. 9 til 18 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
8
Eiginfjáryfirlit 1. janúar til 30. júní 2021
| Tímabilið 1. janúar til 30. júní 2021 | Hlutafé | Bundinn eiginfjár-reikningur | Ójafnað tap | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Staða í byrjun tímabils | 3.640.996.528 | 1.176.112.387 | (171.410.886) | 4.645.698.029 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 741.791.715 | (42.789.296) | 699.002.419 | |
| Staða í lok tímabils | 3.640.996.528 | 1.917.904.102 | (214.200.182) | 5.344.700.448 |
| Árið 2020 | ||||
| Staða í ársbyrjun | 3.575.378.734 | 789.052.073 | (172.271.554) | 4.192.159.253 |
| Seld eigin bréf | 65.617.794 | 17.384.468 | 83.002.262 | |
| Heildarafkoma ársins | 387.060.315 | (16.523.800) | 370.536.515 | |
| Staða í árslok | 3.640.996.528 | 1.176.112.387 | (171.410.886) | 4.645.698.029 |
Skýringar á bls. 9 til 18 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
Sjóðstreymi 1. janúar til 30. júní 2021
| 1.1. - 30.6.2021 | 1.1. - 30.6.2020 | |
|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | ||
| Greiddur kostnaður | (60.495.601) | (53.489.717) |
| Greidd vaxtagjöld | (43.069.606) | (24.068.911) |
| Handbært fé til rekstrar | (103.565.207) | (77.558.628) |
| Fjárfestingahreyfingar | ||
| Innborgað frá dóttur- og hlutdeildarfélögum | 487.935.000 | 239.996.793 |
| Lán til dóttur- og hlutdeildarfélaga | (509.083.345) | (277.992.420) |
| (21.148.345) | (37.995.627) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | ||
| Afborganir lána | (352.962.919) | 0 |
| Tekin ný lán | 398.000.000 | 115.554.255 |
| 45.037.081 | 115.554.255 | |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | (79.676.471) | 0 |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 82.365.032 | 120.006.110 |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.688.561 | 120.006.110 |
Skýringar á bls. 9 til 18 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
10
Skýringar
1. Almennar upplysingar
Kaldalón hf., hér eftir nefnt félagið, er íslensk hlutafélag með starfsemi í Reykjavík. Aðsetur þess er að Katrínartúni 2, Reykjavík.
Tilgangur félagsins er fjárfestingastarfsemi, þ.m.t. fasteignapróun, kaup, sala, rekstur, eignarhald, umsýsla og uppbygging fasteigna og innviða tengdum fasteignaverkefnum og fasteignafélaga, lánastarfsemi ásamt kaupum og sölu félaga, fjármálagerninga, ýmiss konar skuldaviðurkenninga, s.s. lánssamninga og skuldabréfa, allt í tengslum við fasteignaviðskipti, fasteignapróun, uppbyggingu innviða í tengslum við fasteignaverkefni eða fjármögnun byggingaframkvæmda og annar skyldur rekstur. Félaginu er heimilt að eiga hlut í félögum í starfsemi tengdri byggingageiranum, þ.m.t. í steypustöðum. Félaginu er einnig heimilt að eiga skráð og óskráð hlutabréf og skuldabréf.
Stjórn félagsins og framkvæmdastjóri samþykktu þessi reikningsskil 20. ágúst 2021.
2 Grundvöllur reikningsskila
Samandreginn árslutareikningur Kaldalóns hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2021 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árslutareikninga IAS 34. Samandreginn árslutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplysingar sem krafist er í ársreikningi og ætti því að lesa með hliðsjón af ársreikningi félagsins fyrir árið 2020, sem gerður var í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu.
3 Yfirlit um helstu reikningsskilaaðferðir
Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði tímabilin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.
Árslutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð að því undanskildu að eignarhlutir í dóttur- og hlutdeildarfélögum eru færðar á gangvirði í samræmi við heimild alþjóðlegu reikningsskilastaðlanna til færslu slíkra gerninga hjá fjárfestingafélögum. Árslutareikningurinn er í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins.
Engir nýjir reikningsskilastaðlar hafa verið innleiddir á árinu 2021.
4 Mat og ákvarðanir
Við gerð reikningsskilanna þurfa stjórnendur að meta ýmis atriði og gefa sér forsendur um mat á eignum, skuldum, tekjum og gjöldum. Þó svo mat þetta sé samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað. Matsóvissa félagsins felst að langmestu leyti í ákvörðun gangvirðis eignarhluta þess í öðrum félögum. Gerð er grein fyrir eignarhlutum í öðrum félögum og matsaðferðum í skýringum 5 og 6.
Kaldalón hf. Samandreginn árslutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
11
Skýringar
5 Flokkun fjáreigna og fjárskulda
Fjáreignir og fjárskuldir eru flokkaðar í sérstaka flokka sem segja til um hvernig meta skuli þær eftir upphaflega skráningu þeirra. Um síðara mat hvers flokks fer sem hér segir:
- Lán og kröfur, metnar á afskrifuðu kostnaðarverði;
- Fjáreignir sem tilgreindar eru á gangvirði gegnum rekstrarreikning, metnar á gangvirði;
- Aðrar fjárskuldir, metnar á afskrifuðu kostnaðarverði.
Taflan hér á eftir sýnir flokkun fjáreigna og fjárskulda félagsins í samræmi við IFRS 9 og gangvirði þeirra.
| Lok tímabilsins 30. júní 2021 | Lán og kröfur | Fjáreignir tilgreindar á gangvirði | Skuldir á afskrifuðu kostnaðar-verði | Samtals bókfært verð |
|---|---|---|---|---|
| Fjáreignir félagsins | ||||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 3.471.585.927 | 3.471.585.927 | ||
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 474.399.100 | 474.399.100 | ||
| Lán til tengdra félaga | 3.092.755.741 | 3.092.755.741 | ||
| Skammtímakröfur | 212.183 | 212.183 | ||
| Handbært fé | 2.688.561 | 2.688.561 | ||
| Samtals | 3.095.656.485 | 3.945.985.027 | 7.041.641.512 | |
| Fjárskuldir félagsins | ||||
| Skuldir við lánastofnanir | 398.211.667 | 398.211.667 | ||
| Skuldir við tengd félög | 1.255.721.235 | 1.255.721.235 | ||
| Aðrar skammtímaskuldir | 43.008.162 | 43.008.162 | ||
| Samtals | 1.696.941.064 | 1.696.941.064 | ||
| Lok ársins 2020 | ||||
| Fjáreignir félagsins | ||||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 2.759.822.627 | 2.759.822.627 | ||
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 444.370.685 | 444.370.685 | ||
| Lán til tengdra félaga | 2.806.752.728 | 2.806.752.728 | ||
| Skammtímakröfur | 212.183 | 212.183 | ||
| Handbært fé | 82.365.032 | 82.365.032 | ||
| Samtals | 2.889.329.943 | 3.204.193.312 | 6.093.523.255 | |
| Fjárskuldir félagsins | ||||
| Skuldir við lánastofnanir | 352.962.919 | 352.962.919 | ||
| Skuldir við tengd félög | 1.083.973.999 | 1.083.973.999 | ||
| Aðrar skammtímaskuldir | 10.888.308 | 10.888.308 | ||
| Samtals | 1.447.825.226 | 1.447.825.226 |
Á hverjum uppgjørsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign hefur rýrnað í virði ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburður sem hafa orðið benta til þess að vænt framtíðarsjóðstremi eignarinnar verði lægra en áður var talið.
Enginn atburður hefur orðið sem bendir til þess að til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði.
Oddalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
12
Skýringar
6 Gangvirði fjáreigna og fjárskulda
a Prepaskipting gangvirðis
Gangvirði er skipt í þrjá flokka eftir því hvort aðferðirnar sem eru notaðar við ákvörðun gangvirðis byggja á markaðsgögnum eða ekki. Markaðsgögn endurspegla markaðsupplysingar frá óháðum aðilum. Gangvirði sem byggir ekki á markaðsgögnum byggja á forsendum sem félagið gefur sér. Byggt á þessum tveimur tegundum breyta er prepaskipting gangvirðis ákvörðuð pannig:
- Prep 1 - Uppgefið verð á virkum markaði. Hér er um að ræða skráð hlutabréf og skuldabréf í kauphöllum.
- Prep 2 - Hér er verð byggt á gögnum, öðrum en uppgefnum verðum eins og í prepi 1, sem þó eru aðgengileg á markaði, annað hvort beint eða óbeint. Gögn sem notuð eru við gangvirðisútreikninga hér geta verið t.d. LIBOR vaxtakúrfa og lánshæfismat mótaðila.
- Prep 3 - Hér fellur undir gangvirði eigna og skulda sem ekki byggir á markaðsgögnum. Hér er aðallega um að ræða hlutabréf og skuldabréf sem verðmetin eru út frá gögnum sem eru að verulegu leyti óaðgengileg á markaði.
Eftirfarandi tafla sýnir prepaskiptingu við ákvörðun gangvirðis þeirra fjáreigna sem færðar eru á gangvirði í reikningsskil félagsins. Félagið birtir ekki gangvirði annarra fjáreigna þar sem bókfært verð þeirra er talið endurspegla gangvirðið.
30. júní 2021
- prep
Eignarhlutir í dótturfélögum ... 3.471.585.927
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum ... 474.399.100
3.945.985.027
31. desember 2020
Eignarhlutir í dótturfélögum ... 2.759.822.627
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum ... 444.370.685
3.204.193.312
Breyting á fjáreignum félagsins sem falla í 3. prep gangvirðis.
| Tímabilið 1. janúar til 30. júní 2021 | Eignarhlutir í dótturfélögum | Eignarhlutir í hlutdeildarf. | Samtals |
|---|---|---|---|
| Staða í upphafi | 2.759.822.627 | 444.370.685 | 3.204.193.312 |
| Gangvirðisbreyting færð í rekstrarreikning | 711.763.300 | 30.028.415 | 741.791.715 |
| Bókfært verð 30. júní 2021 | 3.471.585.927 | 474.399.100 | 3.945.985.027 |
Par af eru uppsafnaðar óinnleystar gagnvirðisbreytingar sem hafa verið færðar í rekstrarreikning 1.917.904.102
| Árið 2020 | Eignarhlutir í dótturfélögum | Eignarhlutir í hlutdeildarf. | Samtals |
|---|---|---|---|
| Staða í upphafi | 2.186.275.267 | 582.884.438 | 2.769.159.705 |
| Fjárfest á árinu | 47.973.292 | 0 | 47.973.292 |
| Gangvirðisbreyting færð í rekstrarreikning | 525.574.068 | (138.513.753) | 387.060.315 |
| Bókfært verð 31. desember 2020 | 2.759.822.627 | 444.370.685 | 3.204.193.312 |
Par af eru uppsafnaðar óinnleystar gagnvirðisbreytingar sem hafa verið færðar í rekstrarreikning 1.176.112.387
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
13
Skýringar
6 Gangvirði fjáreigna og fjárskulda, frh.
b Eignarhlutir í félögum
Eignarhlutir í félögum greinast á eftirfarandi hátt:
| Staðsetning | Eignarhlut-deild í % | Nafnverð | Bókfært verð | ||
|---|---|---|---|---|---|
| 30.6.2021 | 31.12.2020 | ||||
| Dótturfélög: | |||||
| U 14-20 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 1.069.456.149 | 560.795.542 |
| U22 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 57.135.424 | 100.397.712 |
| U24 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 115.967.031 | 153.850.800 |
| U26 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 165.967.973 | 159.713.361 |
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | Reykjavík | 100,00% | 109.000.000 | 1.312.335.657 | 1.301.065.212 |
| Vesturbugt eignarhaldsf. ehf. | Reykjavík | 59,50% | 1.470.000 | 149.000.000 | 149.000.000 |
| Fasteignastýring ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 0 | 0 |
| Steinsteypan ehf | Reykjavík | 50,00% | 70.059.096 | 601.723.693 | 335.000.000 |
| 183.029.096 | 3.471.585.927 | 2.759.822.627 | |||
| Hlutdeildarfélög: | |||||
| Kársnesbyggð ehf. | Reykjavík | 49,99% | 188.384.034 | 256.402.000 | 248.170.685 |
| Nes Próunarfélag slhf. | Reykjavík | 32,70% | 1.635.000 | 217.997.100 | 196.200.000 |
| 190.019.034 | 474.399.100 | 444.370.685 |
c Verðmatsaðferðir og forsendur sem ekki byggja á markaðsupplýsingum
Félagið á eignarhluti í tíu félögum sem keyptir voru á árinu 2017 og fram til loka 2018. Í öllum félögunum fer fram fasteignapróun sem felst í uppbyggingu fasteigna að undanskyldri Steinsteypunni ehf. sem sér um rekstur steypustöðvar og Fasteignastýringar sem enginn rekstur er í.
Kaldalón metur virði félaganna út frá nokkrum þáttum. Í þeim tilvikum sem greitt hefur verið fyrir hönnun, jarðvinnu og gatnagerðargjöld ofl. er sá kostnaður eignfærður og bætist við kaupverð lóðanna. Hvað varðar verkefni þar sem byggingaframkvæmdir eru langt komnar er framvinda metin samkvæmt framvinduskýrslu til fjármálastofnunar og heildarframlegð verkefnisins er metin samkvæmt verk- og kostnaðaráætlun á móti áæltuðu söluverði fasteigna. Gangvirðisaukning hvers tíma er vænt heildarframlegð verkefnis fyrir skatta að teknu tilliti til framvindu og að frádreginni varúðarfærslu, eftir því hvaða mikil óvissa ríkir um framkvæmdakostnað og söluverðmæti. Þar sem lítið er eftir af framkvæmdinni og lítil óvissa ríkir um söluverðið þá er varúðin c.a. 10-15% af væntri framlegð Varúðarfærsla vegna framvindu nemur þann 30.6.2021 kr. 80.000.000.
Verðmæti byggingaverkefnis í Vogabyggð byggir á kaupsamningi sem undirritaður var í júli 2021. Tekin er varúð miðað við vænt verðmæti sölu fasteignaverkefnis í Vogabyggð að fjárhæð 414 milljónir króna. Gangvirði Vesturbugtar eignarhaldsfélags og Steindörsreits er metið út frá kaupverði að viðbættum framkvæmdakostnaði og fjármagnskostnaði sem fallið hefur til. Vesturbugt ehf. á lóð á samnefndu svæði og er undirbúningur verkefnisins í gangi en vegna ófyrirséðra atburða var þörf á endurskoða tímaáætlunir í samkomulagi Reykjavikurborgar og Vesturbugtar. Nýtt deiliskipulag er nú í auglýsingu vegna Vesturbugtar og er ráðgert að framkvæmdir hefjist þegar það hefur verið samþykkt. Verðmæti Próunarfélagsins Hnoðraholts ehf. er byggt á sölu samningi lóðarinnar sem undirritaður var í ársbyrjun 2021.
Gangvirði Nes próunarfélags er metið út frá kaupsamningi sem undirritaður hefur verið um hlut Kaldalóns í félagið.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
14
Skýringar
6 Gangvirði fjáreigna og fjárskulda, frh.
c Verðmatsaðferðir og forsendur sem ekki byggja á markaðsupplýsingum, frh.
Verðmat á Steinsteypunni byggir sjóðsstreymisverðmati framkvæmt af þriðja aðila í ágúst 2021. Byggir verðmati á áætlunum stjórnenda fyrir árin 2021-2025. Miðað við lægri mörk verðmatsins og tekin er þriðjungs (33,3%) varúðarfærsla af því.
Kaldalón er félag í talsverðri umbreytingu, áður var markaðsverð lóða mikilvægasta breytan í mati á virði eigna. Nú er búið að selja vel talsvert af lóðum félagsins og einnig hefur verið gengið frá sölu á tveimur fasteignum félagsins það er Urriðaholtsstræti 22 og 26. Helstu áhrifapættir í verðmati verða í framtíðinni, leigutekjur af tekjuberandi eignum, fjármagnskjör, byggingakostnaður og fasteignaverð. Því er ekki lögð fram næmnigreiningu á helstu breytum verðmats 30.6.2021.
7 Skuldir við lánastofnanir
Í lok tímabilsins voru langtímaskuldir félagsins við lánastofnanir kr. 0. Skammtímaskuldir nema 546 m.kr., þar af eru skuldir við lánastofnanir 398 mkr. Ráðgert er að greiða upp skuldir til lánastofnana á seinnihluta ársins 2021. Skuldir við tengd félög nema 1.256 milljónir króna og er um að að mestu um að ræða lán innan samstæðu. Með sölu dótturfélags Kaldalóns á byggingarétti í Hnoðraholti lækka skuldir samstæðunnar verulega og gert er ráð fyrir að skuldir Kaldalóns lækki líka umtalsvert í kjölfarið.
Lán félagsins bera 3,5% vexti.
| Skuldir við lánastofnanir greinast á eftirfarandi hátt: | 30.6.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|
| Stað á ársbyrjun | 352.962.919 | 1.201.194.513 |
| Tekin ný lán | 398.000.000 | 0 |
| Greitt af lánum | (352.962.919) | (905.483.993) |
| Áfallnir vextir | 211.667 | 57.252.399 |
| 398.211.667 | 352.962.919 | |
| Skuldir við lánastofnanir flokkast þannig í efnahagi: | ||
| Langtímahluti | 0 | 0 |
| Skammtímahluti | 398.211.667 | 352.962.919 |
| 398.211.667 | 352.962.919 |
Skuldir við lánastofnanir flokkast til langstíma í ársreikningi félagsins þegar gjaldági er eftir 12 mánuði eða lengur.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
15
Skýringar
8 Hlutafé
Hlutafé félagsins er óbreytt frá áramótum var því 3.641.570.537 kr. í lok tímabilsins.
| Hlutafé félagsins greinist þannig: | 30.6.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|
| Heildarhlutafé | 3.641.570.537 | 3.641.570.537 |
| Eigin bréf | (574.009) | (574.009) |
| 3.640.996.528 | 3.640.996.528 | |
| Útgefíð hlutafé samkvæmt samþykktum, hver hlutur nemur 1 kr. | 3.641.570.537 | 3.641.570.537 |
Samkvæmt samþykktum hefur stjórn heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 6.000 milljóna króna að nafnverði. Heimild þessi gildir til 31. mars 2023.
Eigin bréf
Félagið á eigin hluti að nafnverði 574.009 kr. eða 0,0158% af útgefnu hlutafé, sem ætlaðir eru til endursölu.
Áskriftarréttindi
Skv. grein 2.2 í samþykktum félagsins hefur stjórn félagsins heimild til að gefa út áskriftarréttindi fyrir 180.000.000 kr. að nafnverði.
Í ágúst 2019 gaf stjórn Kaldalóns út áskriftarréttindi að 180.000.000 hlutum að nafnvirði með gildistíma 5 ár frá útgáfu þeirra. Áskriftargengið er 1,0 að viðbættri 7,5% árlegri hækkun. Á seinni hluta árs 2019 var kaupréttur að áskriftarréttindunum nýttur að fullu. Handhafar áskriftarréttindanna hafa eftirfarandi heimildir til að nýta þau (1) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu ágúst 2019 til júní 2020, (2) að einum sjötta (1/6 hluta) frá júli 2020 til júní 2021, (3) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2021 til júní 2022, (4) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2022 til júní 2023, (5) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2023 til júní 2024 og (6) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2024 til júní 2025. Nánar er fjallað um áskriftarréttindin og skilmála þeirra í samþykktum félagsins og vísast til þeirra varandi frekari upplýsingar.
Samhliða ráðningu nýs forstjóra félagsins hefur félagið gert samkomulag um útgáfu áskriftarréttinda að 180.000.000 hlutum að nafnvirði með gildistíma 5 ár frá útgáfu. Áskriftargengið er 1,18 að viðbættri 7,5% árlegri hækkun. Handhafi áskriftarréttindanna hefur eftirfarandi heimildir til að nýta þau (1) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2021 til júní 2022, (2) að einum sjötta (1/6 hluta) frá júli 2022 og til júní 2023, (3) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2023 til júní 2024, (4) að einum sjötta (1/6) hluta júli 2024 til júní 2025, (5) að einum sjötta (1/6) frá júli 2025 til júní 2026, (6) að einum sjötta (1/6) frá júli 2026 til júní 2027.
Kaupréttarsamningur
Í júli 2019 gerði Kaldalón lánasamning við Kviku banka hf. Í tengslum við þetta lán veitti Kaldalón hf. Kviku kauprétt á 315.000.000 hlutum á genginu 1,0. Kaupverð fyrir hlutina skal vera 1,0 að viðbættri ávðxtun á ársgrunni fyrir hvern mánuð frá útgáfudegi. Ávðxtunin skal nema 1 mánaða REIBOR vöxtum auk 5,0% vaxtaálags. Kauprétturinn gildir til 26. júli 2022.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
16
Skýringar
9 Viðskipti við tengda aðila
Viðskipti milli Kaldalóns hf., eigenda þess og félaga tengdum þeim uppfylla skilyrði skilgreiningar um viðskipti við tengda aðila. Skilmálar og skilyrði þessa viðskipta voru ákveðin í samræmi við markaðstaðla og venjur. Í eftirfarandi töflu kemur fram fjárhæð þessa viðskipta og staða eigna og skulda í lok tímabilsins.
Engin viðskipti sem uppfylla skilgreiningar um viðskipti við tengda aðila voru við stjórnarmenn eða aðila þeim nátengdum fjölskylduböndum, eða fyrirtækja í þeirra eigu á tímabilinu 1.1 - 30.6.2021.
| 30.6.2021 | 31.12.2020 | |
|---|---|---|
| Lán til tengdra aðila | ||
| U22 ehf. | 1.078.237.420 | 1.070.026.908 |
| U24 ehf. | 263.807.298 | 239.657.138 |
| U26 ehf. | 133.043.149 | 211.536.918 |
| U14-20 ehf | 1.436.596.809 | 1.071.759.862 |
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 0 | 68.779.831 |
| Vesturbugt eignarhaldsfélag | 80.811.989 | 80.811.989 |
| Steinsteypan ehf. | 65.299.201 | 24.299.201 |
| Nes þróunarfélag slhf. | 34.914.872 | 39.835.878 |
| Fasteignastýring ehf. | 45.003 | 45.003 |
| 3.092.755.741 | 2.806.752.728 | |
| Lán til tengdra aðila flokkast þannig í efnahagsreikningi: | ||
| Langtímahluti | 2.660.990.422 | 1.245.695.886 |
| Skammtímahluti | 431.765.319 | 1.561.056.842 |
| 3.092.755.741 | 2.806.752.728 | |
| 30.6.2021 | 31.12.2020 | |
| Skuld við tengd félög | ||
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 1.073.216.084 | 1.017.605.350 |
| Kársnesbyggð ehf. | 105.235.000 | 0 |
| GAMMA Capital Management ehf. | 63.683.961 | 59.518.649 |
| Kvika banki hf. | 13.586.190 | 6.850.000 |
| 1.255.721.235 | 1.083.973.999 | |
| Skuld við tengd félög flokkast þannig í efnahagsreikningi: | ||
| Langtímahluti | 1.150.486.235 | 1.017.605.350 |
| Skammtímahluti | 105.235.000 | 66.368.649 |
| 1.255.721.235 | 1.083.973.999 |
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
17
Skýringar
9 Viðskipti við tengda aðila, frh.
| Timabilið 1. janúar til 30. júní 2021 | Tekjur | Gjöld | Eignir | Skuldir |
|---|---|---|---|---|
| U22 ehf. | 43.610.512 | 1.078.237.420 | ||
| U24 ehf. | 8.416.560 | 263.807.298 | ||
| U26 ehf. | 5.406.231 | 133.043.149 | ||
| U14-20 ehf | 40.595.135 | 1.436.596.809 | ||
| Steinsteypan ehf. | 65.299.201 | |||
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | (31.524.782) | (1.073.216.084) | ||
| Kársnesbyggð ehf. | (105.235.000) | |||
| Vesturbugt ehf. | 80.811.989 | |||
| Nes próunarfélag slhf. | 34.914.872 | |||
| Fasteignastýring ehf. | 45.003 | |||
| GAMMA Capital Management ehf. | (9.161.650) | (63.683.961) | ||
| Kvika banki hf. | (14.624.527) | 1.782.402 | (13.586.190) | |
| 98.028.438 | (55.310.959) | 3.094.538.143 | (1.255.721.235) | |
| Árið 2020 | Tekjur | Gjöld | Eignir | Skuldir |
| U22 ehf. | 36.384.654 | 1.070.026.908 | ||
| U24 ehf. | 15.081.596 | 239.657.138 | ||
| U26 ehf. | 11.919.713 | 211.536.918 | ||
| U14-20 ehf | 101.112.374 | 1.071.759.862 | ||
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 7.243.420 | (7.791.054) | 68.779.831 | (1.017.605.350) |
| Kársnesbyggð ehf. | 8.829.577 | 0 | ||
| Vesturbugt eignarhaldsfélag | 0 | 80.811.989 | ||
| Steinsteypan ehf. | 1.025.659 | 24.299.201 | ||
| Nes próunarfélag slhf. | 3.538.235 | 39.835.878 | ||
| Fasteignastýring ehf. | 45.003 | |||
| GAMMA Capital Management ehf. | (50.165.155) | (59.518.649) | ||
| Kvika banki hf. | 964.474 | (48.600.616) | (359.810.734) | |
| 186.099.702 | (106.556.825) | 2.806.752.728 | (1.436.934.733) |
Allir ofangreindir tengdir aðilar félagsins eru dóttur- eða hlutdeildarfélög að undanskyldum Kviku banka hf. og GAMMA sem eru umsýsluaðilar félagsins.
Lánasamningar milli Kaldalóns og dótturfélaga bera 7,5% vexti og skulu greiðast í einni greiðslu 31.12.2023. Hluti lánasamninga er flokkaður til skamms tíma í efnahagi þar sem áætlað er að verkefnum þeirra ljúki innan 12 mánaða og kröfurnar verði greiddar upp. Lánasamningar milli Kaldalóns og hlutdeildarfélaga bera 10-12% vexti og skulu greiðast í einni greiðslu 15. desember 2021.
10 Laun og launatengd gjöld
| Laun og launatengd gjöld greinast pannig: | 1.1. - 30.6.2021 | 1.1. - 30.6.2020 |
|---|---|---|
| Laun | 13.500.000 | 13.500.000 |
| Mótframlag í lífeyrissjóð | 2.720.250 | 3.243.375 |
| Launatengd gjöld | 2.330.344 | 3.573.692 |
| Stjórnarlaun | 4.050.000 | 7.425.000 |
| 22.600.594 | 27.742.067 |
Launakostnaður félagsins kemur til af störfum framkvæmdastjóra og stjórnar.
Framkvæmdastjóri hefur fengið áskriftarréttindi að hlutafé félagsins, sjá skýringu 8.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
18
Skýringar
| 11 Einskiptiskostnaður | 1.1. - 30.6.2021 | 1.1. - 30.6.2020 |
|---|---|---|
| Þóknanir tengdar umbreytingu félagsins | 27.000.000 | 0 |
12 Tekjuskattur
Tekjuskattur er reiknaður en ekki færður í ársreikninginn þar sem aðaltekjur félagsins, tekjur af hlutabréfum, eru undanþegnar tekjuskatti. Því verður til hjá félaginu yfirfæranlegt tap sem greinist þannig:
| Skattalegt tap ársins 2018, nýtanlegt til ársloka 2028 | 62.947.112 |
|---|---|
| Skattalegt tap ársins 2019, nýtanlegt til ársloka 2029 | 92.113.178 |
| Skattalegt tap ársins 2020, nýtanlegt til ársloka 2030 | 25.535.553 |
| Skattalegt tap tímabilsins 1.1 - 30.6.2021, nýtanlegt til ársloka 2031 | 42.789.296 |
| 223.385.139 |
Félagið á tekjuskattsinneign sem ekki er færð upp í ársreikningnum vegna óvissu um nýtingu. Félagið er samskattað með dótturfélögum sínum.
13 Handbært fé
Handbært fé samanstendur af bankainnstæðum. Engar veðsetningar eru á handbæru fé. Kaldalón hf. flokkast sem fjárfestingafélag samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Handbært fé endurspeglar því handbært fé í Kaldalóni hf. en ekki heildar samstæðu (dóttur- og hlutdeildarfélögum) á þeim tímapunkti sem árshlutareikningur nær til.
14 Áhættustýring
Félagið stendur frammi fyrir eftirfarandi megin áhættum vegna fjármálagerninga:
- Markaðsáhætta
- Hlutabréfaáhætta (verðáhætta)
- Vaxtaáhætta
Markaðsáhætta: áhættan að verðbreytingar á mörkuðum hafi áhrif á gangvirði og framtíðarsjóðstregmi fjármálagerninga. Markaðsáhættan er tilkomin vegna opinnar stöðu í hlutabréfum og vaxtaberandi gerningum, en slíkir fjármálagerningar eru næmir fyrir almennum og sértækum markaðsbreytingum og flökti í markaðsbreytum, til dæmis vöxtum, skuldaraálagi og hlutabréfaverði. Sjá næmnigreiningu í skýringu 6.
Vaxtaáhætta: Vaxtaberandi skuldir félagsins eru með breytilegum vöxtum. Því geta breytingar á vöxtum haft áhrif á afkomu félagsins.
Lausafjáráhætta: Félagið er háð því að hafa aðgang að fjármagni til þess að geta framkvæmt og þarf framkvæmdafjármögnun til þess að geta farið af stað í verkefni. Megin þorri eigna félagsins er bundið í fasteignum og lóðum og því er mikilvægt fyrir félagið að hafa aðgang að lausafé til rekstrar og til þess að umbreytt eignum í lausafé.
Kaldalón hf. Samandreginn árshlutareikningur 30.6.2021
Óendurskoðað
Fjárhæðir í íslenskum krónum
Undirritunarsíða
Jón Þór Gunnarsson

Undirritað af:
Jón Þór Gunnarsson
1511852159
Dags: 20.08.2021
Timi: 17:03:25
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 01cfd518-191d-4f07-bca3-393b7fac19fc
Helen Neely

Undirritað af:
Helen Neely
0503724489
Dags: 20.08.2021
Timi: 17:25:39
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 01cfd518-191d-4f07-bca3-393b7fac19fc
Atli Þór Jóhannsson

Undirritað af:
Atli Þór Jóhannsson
1207883539
Dags: 20.08.2021
Timi: 17:33:31
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 01cfd518-191d-4f07-bca3-393b7fac19fc
Jón Skaftason

Undirritað af:
Jón Skaftason
0208834569
Dags: 20.08.2021
Timi: 17:16:55
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 01cfd518-191d-4f07-bca3-393b7fac19fc
Gunnar Henrik B Gunnarsson

Undirritað af:
Gunnar Henrik B Gunnarsson
1505745449
Dags: 20.08.2021
Timi: 17:26:50
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 01cfd518-191d-4f07-bca3-393b7fac19fc