Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. Environmental & Social Information 2024

Aug 18, 2024

6045_rns_2024-08-18_f308cae0-e7fb-4b4f-97bf-0713e2edda9c.html

Environmental & Social Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 449578

Kaldalón hf. - Other information disclosed according to the rules of the Exchange

Kaldalón hf.: Birting á vottaðri umgjörð um græna fjármögnun

Kaldalón hefur birt umgjörð um græna fjármögnun í þeim tilgangi að geta gefið út græn skuldabréf (Green Financing Framework). Markmið útgáfu umgjarðarinnar er að fjármagna eða endurfjármagna umhverfisvottaðar fasteignir, umhverfisvænar fjárfestingar og önnur verkefni í samræmi við stefnu félagsins.

Verkefnin sem fjármögnuð verða með grænum skuldabréfum þurfa að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í umgjörð félagsins, en umgjörðin byggir á alþjóðlegum viðmiðum (e. Green Bond Principles) sem International Capital Market Association (ICMA), Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði hafa sett saman af eftirfarandi stoðum:

  • Ráðstöfun fjármuna
  • Ferli um mat og val á verkefnum
  • Stýring fjármuna
  • Upplýsingagjöf

Umgjörðin hefur hlotið vottun frá Sustainalytics sem er leiðandi viðurkenndur vottunaraðili á heimsvísu. Samkvæmt vottuninni er umgjörð Kaldalóns hf. trúverðug, áhrifarík og í samræmi við ofangreind viðmið ICMA.

Græna umgjörðin var unnin í samstarfi við Landsbankann.

Grænu umgjörðina, ásamt áliti Sustainalytics, má nálgast á vef Kaldalóns.

Jón Þór Gunnarson, forstjóri

„Í dag birtir Kaldalón umgjörð um græna fjármögnun. Árið 2023 gaf félagið í fyrsta skipti út grunnlýsingu vegna 30 milljarða útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Félagið gefur í dag út fyrsta græna fjármögnunarramma félagsins og mun í framhaldi gefa út græn skuldabréf á markaði.

Græn skuldabréf eru liður í fjármögnun umhverfisvænna fjárfestinga okkar á borð við umhverfisvottaðar fasteignir. Útgáfan er í samræmi við markmið Kaldalóns um umhverfisvernd og sjálfbærni. „

Nánari upplýsingar veitir

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri

[email protected]