AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Kaldalón hf.

Capital/Financing Update Nov 20, 2025

6045_rns_2025-11-20_3e121246-0fd4-48d8-9edb-7d88df462cf2.html

Capital/Financing Update

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Kaldalón hf.: Útboð á víxlum

Kaldalón hf.: Útboð á víxlum

Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, þriðjudaginn 25. nóvember næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 26 0601. Útboðið er í samræmi við stefnu félagsins um að vera reglulegur útgefandi víxla og skuldabréfa á markaði í gegnum útgáfuramma félagsins.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtunum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða miðvikudaginn 26. nóvember.   

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um nafnverð og flata vexti skal skilað til Landsbankans hf. fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn, 25. nóvember á netfangið: [email protected]  

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudaginn 1. desember 2025.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar (ESB) nr. 2017/1129 , sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; kaldalon.is/fjarfestar

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. [email protected]

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.