AI assistant
Kaldalón hf. — Annual Report 2020
Mar 19, 2021
6045_rns_2021-03-19_a7bc2d69-f446-49bb-8bda-4a2a7b1a8dac.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Kaldalón hf.
Ársreikningur 2020
Efnisyfirlit
bls.
Skýrsla stjórnar ... 2 - 4
Áritun óháðs endurskoðanda ... 5 - 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 7
Efnahagsreikningur ... 8
Eiginfjáryfirlit ... 9
Sjóðstreymi ... 10
Skýringar ... 11 - 20
Kaldalón hf.
Kennitala 490617-1320
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík
2
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Kaldalón hf. flokkast sem fjárfestingafélag samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Félagið gerir ekki samstæðureikning heldur metur eignir í dóttur- og hlutdeildarfélögum á gangvirði og færir gangvirðisbreytingar í rekstrarreikning. Félagið flokkast sem lítið félag samkvæmt skilgreiningu laga um ársreikninga. Tilgangur félagsins er fjárfestingastarfsemi, þ.m.t. fasteignaþróun, kaup, sala, rekstur, eignarhald, umsýsla og uppbygging fasteigna og fasteignafélaga.
Starfsemin á árinu
Á árinu 2020 kom Kaldalón hf. að mikilli uppbýggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Félagið á tæplega helmingshlut í Kársnesbyggð ehf. sem lauk við byggingu á 78 íbúða verkefni við Hafnarbraut í Kópavogi. Sala á því verkefni er langt komin.
Í Urriðaholtstræti í Garðabæ lauk dótturfélag Kaldalóns, U 14-20 ehf., við byggingu 38 íbúða sem afhentar voru í lok júnímánaðar til kaupanda sem ganggald fyrir lóðakaup félagsins í Vogabyggð í Reykjavík. Þá voru dótturfélög Kaldalóns með 51 íbúð í byggingu að Urriðaholtsstræti 22-26 sem reiknað er með að verði fullbyggðar á fyrri hluta ársins 2021. Þetta eru 17 íbúðir í Urriðaholtsstræti 22 sem afhentar verða kaupanda sem ganggald fyrir lóðakaup félagsins á Steindórsreit í vesturbæ Reykjavíkur og svo 34 íbúðir í Urriðaholtsstræti 24 og 26 sem seldar verða á almennum markaði.
Í desember 2020 hófust jarðvegsframkvæmdir á stærsta uppbyggingarverkefni félagsins að Stefnisvogi í Vogabyggð sem samtals tekur til byggingarréttar á 324 íbúðum. Fyrsti áfanginn er 71 íbúðabygging að Stefnisvogi 2 sem fyrirhugað er að komi til afhendingar í árslok 2022. Síðar á árinu 2021 er áætlað að hafin verði bygging næsta áfanga sem tekur til 51 íbúðar að Stefnisvogi 1.
Á Steindórsreit í Vesturbæ eru framkvæmdir hafnar við 83 íbúða byggingu sem til stendur að tilbúnar verði til afhendingar á fyrri hluta ársins 2023. Þar er niðurrífi eldri bygginga að ljúka og ráðgert að hefja framkvæmdir á fyrri hluta ársins.
Fyrirhugað er að fækka dótturfélögum með sameiningu þeirra á árinu 2021.
Hagnaður varð af rekstri félagsins á árinu 2020 að fjárhæð 371 milljónum króna samanborið við 204 milljónir króna árið áður. Samkvæmt efnahagsreikningi 31. desember 2020 námu eignir félagsins 6.094 milljónum króna og jukust um 535 milljónir milli ára. Eigið fé félagsins nam 4.646 milljónir króna þann 31. desember 2020 samanborið við 4.192 milljónir króna þann 31. desember 2019.
Félagið er með eignastýringarsamning við Gamma Capital Management. Eini starfsmaðurinn hjá félaginu er Jónas Þór Þorvaldsson framkvæmdastjóri.
Það er álit stjórnar félagsins að allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig á stöðu félagsins í lok ársins, rekstrarárangri ársins og fjárhagslegri þróun félagsins, komi fram í ársreikningnum.
Fjármögnun
Á tímabilinu lækkuð skuldir Kaldalóns verulega, en á sama tíma jukust eignir félagsins þar sem virðisaukning hefur orðið í byggingaverkefnum félagsins og einnig hafa lóðir og byggingaréttir félagsins aukist í virði. Félagið hefur greitt niður skuldir sínar að stórum hluta og gert ráð fyrir áframhaldandi niðurgreiðslu skulda meðal annars með sölu á eign dótturfélags Kaldalóns á byggingarétti í Hnoðraholti í Garðabæ. Félagið hefur nú þegar fjármagnað fyrirhugað byggingaverkefni félagsins í Stefnisvogi 2 og á Steindórsreit. Áherslur í fjármagnsskipan félagsins eru að minnka skuldsetningu móðurfélagsins og auka getu þess til leggja dótturfélögum sínum til nauðsynlegt eigið fé til að hraða uppbýggingu á byggingalöðum félagsins.
3
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Framtíðaráform
Kaldalón er fasteignafélag sem aðallega hefur staðið í íbúðauppbyggingu. Markmið félagsins er að auka breidd og vægi eigna sem gefa af sér reglulegar tekjur. Félagið fjárfestir einnig í byggingatengdri starfsemi.
Covid-19
Stjórn og stjórnendur félagsins hafa fylgst með þróun mála tengdum Covid-19 heimsfaraldrinum og mögulegum áhrifum á félagið. Helstu áhrif af Covid-19 hafa verið þau að byggingaframkvæmdir hafa tafist lítillega vegna seinkunar á afgreiðslu á byggingaefni frá birgjum. Þá hefur afgreiðsla fjármálastofnana og opinbera aðila tekið óvenjulega langan tíma og haft áhrif á hraða uppbyggingar verkefna félagsins. Áhrif þessa á rekstur og afkomu félagsins eru þó ekki veruleg. Sala íbúða hefur gengið vel og aðstæður á fasteignamarkaði eru hagstæðar.
Stjórnarhættir
Stjórn Kaldalóns leggur áherslur á góða stjórnarhætti og mun í störfum sínum hafa til hliðsjónar leiðbeiningar Samtaka atvinnulifsins um góða stjórnarhætti.
Hlutafé
Hluthafar voru í byrjun ársins 109 en í lok tímabils 120, þar af eru 10 stærstu eftirfarandi:
| Nafnverð* | Hlutdeild | |
|---|---|---|
| Strengur Holding ehf. | 1.049 | 28,81% |
| Investar ehf. | 459 | 12,61% |
| Kvika banki hf. | 229 | 6,30% |
| Arion banki hf. | 214 | 5,88% |
| Íslandsbanki hf. | 200 | 5,49% |
| DFT ehf. | 168 | 4,60% |
| Premier eignarhaldsfélag ehf. | 155 | 4,26% |
| Loran ehf. | 155 | 4,26% |
| Vátryggingafélag Íslands hf. | 150 | 4,12% |
| Fagfjárfestasjóðurinn Algi slhf | 142 | 3,91% |
| 10 stærstu hluthafar samtals | 2.922 | 80,24% |
| Aðrir hluthafar (99 talsins) | 720 | 16,97% |
| Samtals útistandandi hlutir | 3.642 | 97,21% |
| Eigin hlutir | 1 | |
| Hlutafé samkvæmt ársreikningi | 3.641 |
- í milljónum króna
Félagið hefur gefið út og virkjað áskriftarréttindi sem fjallað er um í samþykktum ásamt því að gera kaupréttarsamning, sjá skýringu 8.
Eigin hlutir félagsins í ársbyrjun voru 66 m.kr. og hefur lækkað í 0,6 m.kr. Sjá nánar í skýringu 8.
Stjórn félagsins leggur ekki til að greiddur verði arður á árinu 2021. Vísað er til eiginfjáryfirlits vegna ráðstöfunar á hagnaði ársins.
4
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Yfirlýsing stjórnarmanna
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar er það álit okkar að hann gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu félagsins þann 31. desember 2020 og rekstrarafkomu, breytingu á handbæru fé og breytingar á eigið fé félagsins fyrir árið 2020 samt því að gerð er grein fyrir helstu áhættu- og óvissuþáttum sem félagið stendur frammi fyrir.
Jafnframt er það álit okkar að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins og lýsi áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn Kaldalóns hf. og framkvæmdastjóri staðfesta hér með ársreikning félagsins fyrir árið 2020 með áritun sinni.
Reykjavík, 19. mars 2021

5
Áritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa Kaldalóns hf.
Álit
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Kaldalóns hf. fyrir árið 2020, að undanskilinni skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra.
Ársreikningurinn innifelur
- Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
- Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2020
- Efnahagsreikningur 31. desember 2020
- Eiginfjáryfirlit 2020
- Sjóðstreymi ársins 2020
- Skýringar, sem innifela helstu reikningsskilaðferðir og aðrar skýringar.
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra er undanskilin endurskoðun, sbr. kafla um aðrar upplýsingar.
Grundvöllur álits
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er nánar útskýrð í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda.
Óhæði
Við erum óháð félaginu samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur og endurskoðun og síðareglna sem gilda um endurskoðendur á Íslandi og varða endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins. Við uppfyllum jafnframt aðrar kröfur um starf okkar sem endurskoðendur í samræmi við ákvæði síðareglna.
Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Aðrar upplýsingar, þ.m.t. skýrsla stjórnar
Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra sem lá fyrir við áritun okkar. Álit okkar á ársreikningnum nær ekki til skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra og við staðfestum hana ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins ber okkur að yfirfara aðrar upplýsingar þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær eru í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða skilning sem við höfum aflað við endurskoðunina eða ef svo virðist að verulegar rangfærslur séu í þeim. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekki greint atriði sem ber að greina sérstaklega frá.
Hvað varðar skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra höfum við, í samræmi við ákvæði 104. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, yfirfarið að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins ber stjórnendum félagsins að meta hæfi þess til áframhaldandi starfsemi. Stjórnendum ber að semja ársreikning félagsins á þeirri forsendu að um áframhaldandi starfsemi sé að ræða, nema stjórnendur ætli að leysa félagið upp eða hætta rekstri þess, eða hafi ekki raunhæft val um annað en að hætta starfsemi félagsins. Stjórnendum félagsins ber að setja fram viðeigandi skýringar varðandi hæfi þess til áframhaldandi starfsemi ef við á og hvers vegna stjórnendur beita forsendunni um áframhaldandi starfsemi við gerð og framsetningu ársreikningsins.
Stjórn og endurskoðunarnefnd skal hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.
6
Áritun óháðs endurskoðanda
Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka og gefa út áritun með áliti okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa en ekki trygging þess að endurskoðun, sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, muni ávallt leiða í ljós alla verulega annmarka séu þeir til staðar. Annmarkar geta stafað af sviksemi eða mistökum og eru metnir verulegir ef þeir, einir og sér eða samanlagðir, gætu haft áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir notenda sem grundvallaðar eru á ársreikningnum.
Endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegu mati og faglegri tortryggni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Greinum og metum áhættuna af verulegum annmörkum, vegna sviksemi eða mistaka, og skipuleggjum endurskoðunaraðgerðir til að mæta þessari áhættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi grunnur fyrir áliti okkar. Áhættan af því að greina ekki verulega annmarka sem stafa af sviksemi er meiri en áhætta af annmörkum vegna mistaka, þar sem sviksemi getur stafað af fölsun, misvísandi framsetningu ársreiknings, að mikilvægum atriðum sé viljandi sleppt, samanteknum ráðum eða að innra eftirlit sé sniðgengið.
Öflum skilnings á innra eftirliti sem er viðeigandi fyrir endurskoðun okkar í þeim tilgangi að hanna endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álít á virkni innra eftirlits félagsins.
Metum hvort val stjórnenda á reikningsskilaðferðum sé viðeigandi og hvort matsaðferðir þeirra séu raunhæfar. Einnig skoðum við hvort tengdar skýringar séu við hæfi.
Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um áframhaldandi starfsemi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að veruleg óvissa ríki, ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum í ársreikningnum um óvissuna og ef þær upplýsingar eru ekki nægjanlegar að okkar mati, víkjum við frá fyrirvaralausu áliti. Niðurstaða okkar byggir á þeim endurskoðunargögnum sem við höfum aflað fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni leitt til þess að félagið verði ekki lengur rekstrarhæft.
Metum framsetningu, gerð og innihald ársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum og hvort hann grundvallast á fyrirliggjandi færslum og atburðum og gefi glögga mynd samanber álít okkar.
Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp geta komið í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka í innra eftirliti ef við á.
Reykjavík, 19. mars 2021
PricewaterhouseCoopers ehf.
Atli Þór Jóhannsson
löggiltur endurskoðandi
7
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2020
| Skýringar | 2020 | 2019 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrargjöld | |||
| Laun og launatengd gjöld | 12 | 53.423.717 | 52.071.947 |
| Skrifstofu- og stjörnunarkostnaður | 64.124.056 | 108.554.572 | |
| 117.547.773 | 160.626.519 | ||
| Rekstrartap | (117.547.773) | (160.626.519) | |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | |||
| Vaxtatekjur | 11 | 186.099.703 | 114.437.020 |
| Vaxtagjöld | 11 | (85.075.730) | (45.941.179) |
| Gangvirðisbreyting eignarhluta í félögum | 6 | 387.060.315 | 296.627.194 |
| 488.084.288 | 365.123.035 | ||
| Heildarafkoma ársins | 370.536.515 | 204.496.516 |
Skýringar á bls. 11 til 20 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
8
Efnahagsreikningur 31. desember 2020
| Eignir | Skýringar | 31.12.2020 | 31.12.2019 |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Fjáreignir: | |||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 5, 6 | 2.759.822.627 | 2.186.275.267 |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 5, 6 | 444.370.685 | 582.884.438 |
| Lán til tengdra aðila | 9 | 1.245.695.886 | 2.666.684.420 |
| 4.449.889.198 | 5.435.844.125 | ||
| Veltufjármunir | |||
| Lán til tengdra aðila | 9 | 1.561.056.842 | 0 |
| Skammtímakröfur | 212.183 | 2.716.121 | |
| Handbært fé | 14 | 82.365.032 | 120.006.110 |
| 1.643.634.057 | 122.722.231 | ||
| Eignir samtals | 6.093.523.255 | 5.558.566.356 |
Eigíð fé og skuldir
| Eigíð fé | |||
|---|---|---|---|
| Hlutafé | 3.640.996.528 | 3.575.378.734 | |
| Bundinn eiginfjárreikningur | 1.176.112.387 | 789.052.072 | |
| Ójafnað tap | (171.410.886) | (172.271.554) | |
| Eigíð fé samtals | 8 | 4.645.698.029 | 4.192.159.252 |
| Skuldir | |||
| Langtímaskuldir: | |||
| Skuldir við lánastofnanir | 7 | 0 | 398.666.667 |
| Skuld við tengd félög | 9 | 1.017.605.350 | 0 |
| 1.017.605.350 | 398.666.667 | ||
| Skammtímaskuldir: | |||
| Skuldir við lánastofnanir | 7 | 352.962.919 | 802.527.846 |
| Skuld við tengd félög | 9 | 66.368.649 | 121.694.075 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 10.888.308 | 43.518.516 | |
| 430.219.876 | 967.740.437 | ||
| Skuldir samtals | 1.447.825.226 | 1.366.407.104 | |
| Eigíð fé og skuldir samtals | 6.093.523.255 | 5.558.566.356 |
Almennar upplýsingar 1 - 5
Tengdir aðilar 9
Umsýslupóknun 10
Tekjuskattur 13
Áhættustýring 15
Skýringar á bls. 11 til 20 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
9
Eiginfjáryfirlit 2020
| Árið 2020 | Hlutafé | Bundinn eiginfjár-reikningur | Ójafnað tap | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Staða í ársbyrjun | 3.575.378.734 | 789.052.073 | (172.271.554) | 4.192.159.253 |
| Seld eigin bréf | 65.617.794 | 17.384.468 | 83.002.262 | |
| Heildarafkoma ársins | 387.060.315 | (16.523.800) | 370.536.515 | |
| Staða í árslok | 3.640.996.528 | 1.176.112.387 | (171.410.886) | 4.645.698.029 |
| Árið 2019 | ||||
| Staða í ársbyrjun | 2.842.720.837 | 492.424.879 | (80.140.876) | 3.255.004.840 |
| Innborgað hlutafé | 732.657.897 | 732.657.897 | ||
| Heildarafkoma ársins | 296.627.194 | (92.130.678) | 204.496.516 | |
| Staða í árslok | 3.575.378.734 | 789.052.073 | (172.271.554) | 4.192.159.253 |
Skýringar á bls. 11 til 20 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
10
Sjóðstreymi ársins 2020
| 2020 | 2019 | |
|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | ||
| Greiddur kostnaður | (203.019.469) | (82.349.755) |
| Innborgaðar vaxtatekjur | 959.472 | 982.503 |
| Greidd vaxtagjöld | (20.032.277) | (44.149.030) |
| Handbært fé til rekstrar | (222.092.274) | (125.516.282) |
| Fjárfestingahreyfingar | ||
| Hlutafjáraukning dótturfélaga | (47.973.292) | (15.457.219) |
| Fjárfestingar í fasteignum og lóðum | 0 | (685.000.000) |
| Lán til dóttur- og hlutdeildarfélaga | (685.414.376) | (1.007.246.038) |
| Innborgað frá dóttur- og hlutdeildarfélögum | 729.734.491 | 399.911.356 |
| (3.653.177) | (1.307.791.901) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | ||
| Innborgað hlutafé | 83.002.262 | 770.042.366 |
| Tekin ný lán frá lánastofnunum | 0 | 871.618.229 |
| Greidd lán frá lánastofnunum | (905.483.993) | 0 |
| Lán frá dóttur- og hlutdeildarfélögum | 1.010.586.104 | 0 |
| Greitt til dóttur- og hlutdeildarfélaga | 0 | (109.837.229) |
| 188.104.373 | 1.531.823.366 | |
| (Lækkun) hækkun á handbæru fé | (37.641.078) | 98.515.183 |
| Handbært fé í byrjun árs | 120.006.110 | 21.490.927 |
| Handbært fé í árslok | 82.365.032 | 120.006.110 |
Fjárfestinga- og fjármögnunarhreyfingar sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi
| Affent fasteignir og lóðir | 0 | (812.959.543) |
|---|---|---|
| Lán til dóttur og hlutdeildarfélaga | 0 | 812.959.543 |
Skýringar á bls. 11 til 20 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
11
Skýringar
1. Almennar upplysingar
Kaldalón hf., hér eftir nefnt félagið, er íslenskt hlutafélag með starfsemi í Reykjavík. Aðsetur þess er Katrínartúni 2, Reykjavík.
Tilgangur félagsins er fjárfestingastarfsemi, þ.m.t. fasteignapróun, kaup, sala, rekstur, eignarhald, umsýsla og uppygging fasteigna og innviða tengdum fasteignaverkefnum og fasteignafélaga, lánastarfsemi ásamt kaupum og sölu félaga, fjármálagerninga, ýmiss konar skuldaviðurkenninga, s.s. lánssamninga og skuldabréfa, allt í tengslum við fasteignaviðskipti, fasteignapróun, uppygging inniða í tengslum við fasteignaverkefni eða fjármögnun byggingaframkvæmda og annar skyldur rekstur. Félaginu er heimilt að eiga hlut í félögum í starfsemi tengdri byggingargeiranum, þ.m.t. í steypustöðvum. Félaginu er þannig heimilt að eiga skráð og óskráð hlutabréf og skuldabréf.
Stjórn félagsins og framkvæmdastjóri samþykktu þessi reikningsskil 19. mars 2021.
2 Grundvöllur reikningsskila
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur félagsins er jafnframt í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga.
Ársreikningurinn er gerður og birtur í íslenskum krónum sem er stafrækslugjaldmiðill félagsins. Til að auka upplysingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtur á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplysingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtur í skýringum.
Félagið telst fjárfestingarfélag samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, en félagið stýrir eignasafni sínu á grundvelli gangvírðis og hefur eingöngu tekjur af fjárfestingum sínum í gegnum gangvírðisbreytingar og aðrar tekjur af fjárfestingum. Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverði að því undanskildu að eignarhlutir í dóttur- og hlutdeildarfélögum og veltufjáreignir eru færðar á gangvírði. Félagið gerir ekki samstæðureikning.
3 Yfírilt um helstu reikningsskilaaðferðir
Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði tímabilin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.
Félagið hefur tekið upp alla alþjóðlega reikningsskilastaðla, breytingar á þeim og túlkanir sem Evrópusambandið hefur staðfest og hafa tekið gildi frá og með reikningsárinu sem hófst 1. janúar 2020 og eiga við um starfsemi þess. Félagið hefur ekki tekið upp staðla, breytingar á stöðlum eða túlkanir sem taka gildi eftir 31. desember 2020 en heimilt er að taka upp fyrr.
Nýjir reikningsskilastaðlar teknir upp á árinu
Engir nýjir reikningsskilastaðlar tóku gildi á árinu 2020. Kaldalón innleiddi nokkrar breytingar á eldri stöðlum, en þær breytingar hafa ekki áhrif á reikningsskil félagsins.
Nýjir reikningsskilastaðlar á næsta ári
Ekki er búist við að breytingar á stöðlum og túlkunum sem hafa verið gefnar út af IFRS en taka gildi um fjárhagsár sem hefjast 1. janúar 2021 eða síðar muni hafa veruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
12
Skýringar
4 Mat og ákvarðanir
Við gerð reikningsskilanna þurfa stjórnendur að meta ýmis atriði og gefa sér forsendur um mat á eignum, skuldum, tekjum og gjöldum. Þó svo mat þetta sé samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað. Matsóvissa félagsins felst að langmestu leyti í ákvörðun gangvirðis eignarhluta þess í öðrum félögum. Gerð er grein fyrir eignarhlutum í öðrum félögum og matsaðferðum í skýringum 5 og 6.
5 Flokkun fjáreigna og fjárskulda
Fjáreignir og fjárskuldir eru flokkaðar í sérstaka flokka sem segja til um hvernig meta skuli þær eftir upphaflega skráningu þeirra. Um síðara mat hvers flokks fer sem hér segir:
- Lán og kröfur, metnar á afskrifuðu kostnaðarverði;
- Fjáreignir sem tilgreindar eru á gangvirði gegnum rekstrarreikning, metnar á gangvirði;
- Aðrar fjárskuldir, metnar á afskrifuðu kostnaðarverði.
Taflan hér á eftir sýnir flokkun fjáreigna og fjárskulda félagsins í samræmi við IFRS 9 og gangvirði þeirra.
| Árið 2020 | Lán og kröfur | Fjáreignir tilgreindar á gangvirði | Skuldir á afskrifuðu kostnaðarverði | Samtals bókfært verð |
|---|---|---|---|---|
| Fjáreignir félagsins | ||||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 2.759.822.627 | 2.759.822.627 | ||
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 444.370.685 | 444.370.685 | ||
| Lán til tengdra félaga | 2.806.752.728 | 2.806.752.728 | ||
| Skammtímakröfur | 212.183 | 212.183 | ||
| Handbært fé | 82.365.032 | 82.365.032 | ||
| Samtals | 2.889.329.943 | 3.204.193.312 | 6.093.523.255 | |
| Fjárskuldir félagsins | ||||
| Skuldir við lánastofnanir | 352.962.919 | 352.962.919 | ||
| Skuldir við tengd félög | 1.083.973.999 | 1.083.973.999 | ||
| Aðrar skammtímaskuldir | 10.888.308 | 10.888.308 | ||
| Samtals | 1.447.825.226 | 1.447.825.226 | ||
| Árið 2019 | ||||
| Fjáreignir félagsins | ||||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 2.186.275.267 | 2.186.275.267 | ||
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 582.884.438 | 582.884.438 | ||
| Lán til tengdra félaga | 2.666.684.420 | 2.666.684.420 | ||
| Skammtímakröfur | 2.716.121 | 2.716.121 | ||
| Handbært fé | 120.006.110 | 120.006.110 | ||
| Samtals | 2.789.406.651 | 2.769.159.705 | 5.558.566.356 | |
| Fjárskuldir félagsins | ||||
| Skuldir við lánastofnanir | 1.201.194.513 | 1.201.194.513 | ||
| Skuldir við tengd félög | 121.694.075 | 121.694.075 | ||
| Aðrar skammtímaskuldir | 43.518.516 | 43.518.516 | ||
| Samtals | 1.366.407.104 | 1.366.407.104 |
Á hverjum uppgjørsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign hefur rýrnað í virði ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburður sem hafa orðið benta til þess að vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar verði lægra en áður var talið.
Enginn atburður hefur orðið sem bendir til þess að til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
13
Skýringar
6 Gangvirði fjáreigna og fjárskulda
a Prepaskipting gangvirðis
Gangvirði er skipt í þrjá flokka eftir því hvort aðferðirnar sem eru notaðar við ákvörðun gangvirðis byggja á markaðsgögnum eða ekki. Markaðsgögn endurspegla markaðsupplysingar frá óháðum aðilum. Gangvirði sem byggir ekki á markaðsgögnum byggja á forsendum sem félagið gefur sér. Byggt á þessum tveimur tegundum breyta er prepaskipting gangvirðis ákvörðuð pannig:
- Prep 1 - Uppgefið verð á virkum markaði. Hér er um að ræða skráð hlutabréf og skuldabréf í kauphöllum.
- Prep 2 - Hér er verð byggt á gögnum, öðrum en uppgefnum verðum eins og í prep 1, sem þó eru aðgengileg á markaði, annað hvort beint eða óbeint. Gögn sem notuð eru við gangvirðisútreikninga hér geta verið t.d. LIBOR vaxtakúrfa og lánshæfismat mótaðila.
- Prep 3 - Hér fellur undir gangvirði eigna og skulda sem ekki byggir á markaðsgögnum. Hér er aðallega um að ræða hlutabréf sem verðmetin eru út frá gögnum sem eru að verulegu leyti óaðgengileg á markaði.
Eftirfarandi tafla sýnir prepaskiptingu við ákvörðun gangvirðis þeirra fjáreigna sem færðar eru á gangvirði í reikningsskil félagsins. Félagið birtir ekki gangvirði annarra fjáreigna þar sem bókfært verð þeirra er talið endurspegla gangvirði.
- prep
| Árið 2020 | |||
|---|---|---|---|
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 2.759.822.627 | ||
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 444.370.685 | ||
| 3.204.193.312 | |||
| Árið 2019 | |||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 2.186.275.267 | ||
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 582.884.438 | ||
| 2.769.159.705 | |||
| Breyting á fjáreignum félagsins sem falla í 3. prep gangvirðis. | |||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | Eignarhlutir í hlutdeildarf. | Samtals | |
| Árið 2020 | |||
| Staðá í upphafi | 2.186.275.267 | 582.884.438 | 2.769.159.705 |
| Fjárfest á árinu | 47.973.292 | 0 | 47.973.292 |
| Gangvirðisbreyting færð í rekstrarreikning | 525.574.068 | (138.513.753) | 387.060.315 |
| Bókfært verð í árslok | 2.759.822.627 | 444.370.685 | 3.204.193.312 |
| Þar af eru uppsafnaðar óinnleystar gangvirðisbreytingar sem hafa verið færðar í rekstrarreikning | 1.176.112.387 | ||
| Eignarhlutir í dótturfélögum | Eignarhlutir í hlutdeildarf. | Samtals | |
| Árið 2019 | |||
| Staðá í upphafi | 1.988.806.309 | 483.726.203 | 2.472.532.512 |
| Gangvirðisbreyting færð í rekstrarreikning | 197.468.958 | 99.158.235 | 296.627.194 |
| Bókfært verð í árslok | 2.186.275.267 | 582.884.438 | 2.769.159.706 |
| Þar af eru uppsafnaðar óinnleystar gangvirðisbreytingar sem hafa verið færðar í rekstrarreikning | 789.052.072 |
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
14
Skýringar
6 Gangvirði fjáreigna og fjárskulda, frh.
b Eignarhlutir í félögum
Eignarhlutir í félögum greinast á eftirfarandi hátt:
| Staðsetning | Eignarhlut-deild í % | Nafnverð | Bókfært verð | ||
|---|---|---|---|---|---|
| 31.12.2020 | 31.12.2019 | ||||
| Dótturfélög: | |||||
| U 14-20 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 560.795.542 | 227.631.438 |
| U22 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 100.397.712 | 90.594.741 |
| U24 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 153.850.800 | 113.027.379 |
| U26 ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 159.713.361 | 95.344.385 |
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | Reykjavík | 100,00% | 109.000.000 | 1.301.065.212 | 1.249.150.616 |
| Vesturbugt eignarhaldsfélag ehf. | Reykjavík | 59,50% | 1.470.000 | 149.000.000 | 149.000.000 |
| Fasteignastýring ehf. | Reykjavík | 100,00% | 500.000 | 0 | (2.973.292) |
| Steinsteypan ehf | Reykjavík | 50,00% | 70.059.096 | 335.000.000 | 264.500.000 |
| 2.759.822.627 | 2.186.275.267 | ||||
| Hlutdeildarfélög: | |||||
| Kársnesbyggð ehf. | Reykjavík | 49,99% | 188.384.034 | 248.170.685 | 381.567.598 |
| Nes Próunarfélag hf. | Reykjavík | 32,70% | 1.635.000 | 196.200.000 | 201.316.840 |
| 444.370.685 | 582.884.438 |
c Verðmatsaðferðir og forsendur sem ekki byggja á markaðsupplýsingum
Félagið á eignarhluti í tíu félögum sem keyptir voru á árinu 2017 og fram til loka 2018. Í öllum félögunum fer fram fasteignapróun sem felst í uppbýggingu fasteigna að undanskyldri Steinsteypunni ehf. sem sér um rekstur steypustöðvar og Fasteignastýringar ehf. sem takmarkaður rekstur er í.
Kaldalón metur virði félaganna út frá nokkrum þáttum. Í þeim tilvikum sem greitt hefur verið fyrir hönnun, jarðvinnu og gatnagerðargjöld ofl. er sá kostnaður eignfærður og bætist við kaupverð lóðanna. Hvað varðar verkefni þar sem byggingaframkvæmdir eru hafnar með sökllum er framvinda metin samkvæmt framvinduskýrslu til fjármálastofnunar og heildarframlegð verkefnisins er metin samkvæmt verk- og kostnaðaráætlun á móti áætluðu sölverði fasteigna. Gangvirðisaukning hvers tíma er vænt heildarframlegð verkefnis fyrir skatta að teknu tilliti til framvindu og að frádreginni 10-25% varúðarfærslu, eftir því hvaða mikil óvissa ríkir um framkvæmdakostnað og sölverðmæti. Þar sem lítið er eftir af framkvæmdinni og lítil óvissa ríkir um sölverðið þá er varúðin 10% en þar sem framkvæmdir eru stytra komnar á veg og ekki er mikil vissa með sölverð er tekn 25% varúð. Pess ber að geta að þessi varúð er til viðbótar við óvissupátt í verkaætlunum dótturfélaga Kaldalóns sem er 5% til 8%. Varúðarfærsla vegna framvindu nemur 54.703.970 kr. í árslok 2020.
Verðmæti byggingaverkefnis í Vogabyggð eru byggð á mati fasteignasala á markaðsverði lóða að viðbættum áorðnum tilkostnaði. Gangvirði Vesturbugtar eignarhaldsfélags og Steindórsreits er metið út frá kaupverði að viðbættum framkvæmdakostnaði sem fallið hefur til. Vesturbugt ehf. á lóð á samnefndu svæði og er undirbúningur verkefnisins í gangi en vegna ófyrirséðra atburða var þörf á endurskoða tímaáætlanir í samkomulagi Reykjavíkurborgar og Vesturbugtar. Samkomulag hefur náðst þar sem tímaáætlun verkefnisins hefur verið uppfærð og unnið er að minniháttar breytingu á deiliskipulagi sem eru nauðsynlegar til að markmið verkefnisins náist. Verðmæti Próunarfélagsins Hnoðraholts ehf. er byggt á sölusamningi lóðarinnar sem undirritaður var í ársbyrjun 2021.
Gangvirði Nes próunarfélags er metið út frá upprunalegu kaupverði að viðbættum framkvæmdakostnaði sem hefur fallið til ásamt endurmati á lóð félagsins. Endurmat lóða byggir á mati óháðs fasteignasala. Kaldalón hefur samþykkt kauptilboð í hlut sinn í Nes próunarfélagi og byggir verðmat á hlut félagsins á því verði.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
15
Skýringar
6 Gangvirði fjáreigna og fjárskulda, frh.
c Verðmatsaðferðir og forsendur sem ekki byggja á markaðsupplýsingum, frh.
Verðmat á Steinsteypunni byggir kennitöluverðmati m.v. þriggja ára rekstraráætlun. Beitt var nokkrum mismunandi aðferðum svo sem sjóðsstreymisverðmati og kennitöluverðmati og var í núverandi mati notuð sú niðurstaða sem skilar lægri niðurstöðu eða áæltaðri EBITDA 2021 Steinsteypunnar margfölduð með 5,5. Sú niðurstaða skilar að verðmæti eigin fjár Steinsteypunnar sé 670 m.kr. og hlutur Kaldalóns 50% af því. Niðurstaða sjóðsstreymismats var að virði eigin fjár væri 782 m.kr.
Mikilvægasta breytan við mat á eignum Kaldalóns er nú lóðaverð. Við 10% lækkun á markaðsvirði lóða lækkar eigið fé félagsins um 532 m.kr. og við 10% hækkun á markaðsvirði lóða hækkar eigið fé félagsins um sömu fjárhæð. Breytingar á framlegð byggingaverkefna hefur nú minni áhrif á eiginfjárstöðu Kaldalóns en 10% lækkun framlegðar núverandi byggingaverkefna lækkar eigið fé um 59 m.kr. og 10% hækkun framlegðar sömu verkefna hækkar eigið fé um 59 m.kr.
Innviðagjöld
Af lóðum dótturfélaga Kaldalóni er gert ráð fyrir að sveitafélög innheimti innviðagjöld. Reiknuð fjárhæð innviðagjalda sem verða innheimt um það bil 888 milljónir. Í matsvirði lóða er gert ráð fyrir að innviðagjöld verði greidd samkvæmt ofangreindu. Innviðagjöld greiðast til viðbótar álögðum gatnagerðargjöldum. Innviðagjöld eru að mati stjórnar Kaldalóns innheimt án lagastoðar. Nú er í gangi dómsmál um lögmæti innviðagjalds, dómur mun að óbreyttu ganga í Landsrétti á árinu 2021. Ef innviðagjöld verða dæmd ólögmæt þá eykst matsvirði lóða Kaldalóns og dótturfélaga um 888 m.kr. fyrir skatt
7 Skuldir við lánastofnanir
Í lok árs voru langtímaskuldir félagsins við lánastofnanir kr. 0. Skammtímaskuldir nema 1.474 milljónum króna, þar af eru skuldir við lánastofnanir 353 m.kr. Ráðgert er að greiða upp skuldir til lánastofnana á fyrsta ársfjörðungi ársins 2021. Skuldir við tengd félög nema 1.093 milljónir króna og er um að að mestu um að ræða lán innan samstæðu. Með sölu dótturfélags Kaldalóns á byggingarétti í Hnoðraholti lækka skuldir samstæðunnar verulega og gert er ráð fyrir að skuldir Kaldalóns lækki líka umtalsvert í kjölfarð.
Lán félagsins bera 4,4% til 6,0% vexti.
| Skuldir við lánastofnanir greinast á eftirfarandi hátt: | 2020 | 2019 |
|---|---|---|
| Staða í ársbyrjun | 1.201.194.513 | 310.631.392 |
| Tekin ný lán | 0 | 871.618.229 |
| Greitt af lánum | (905.483.993) | 0 |
| Áfallnir vextir | 57.252.399 | 18.944.892 |
| 352.962.919 | 1.201.194.513 | |
| Skuldir við lánastofnanir flokkast þannig í efnahagsreikningi: | ||
| Langtímahluti | 0 | 398.666.667 |
| Skammtímahluti | 352.962.919 | 802.527.846 |
| 352.962.919 | 1.201.194.513 |
Skuldir við lánastofnanir flokkast til langtíma í ársreikningi félagsins þegar skuldir eru á gjaldaga eftir 12 mánuði eða lengur. Kvika banki hf. er flokkaður sem tengdur aðili vegna umsýslusamnings, sjá nánari upplýsingar í skýringu 9.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
16
Skýringar
8 Eigið fé
a Hlutafé
| Hlutafé félagsins greinist pannig: | 2020 | 2019 |
|---|---|---|
| Heildarhlutafé | 3.641.570.537 | 3.641.570.537 |
| Eigin bréf | (574.009) | (66.191.803) |
| 3.640.996.528 | 3.575.378.734 | |
| Útgefið hlutafé samkvæmt sambykktum, hver hlutur nemur 1 kr. | 3.641.570.537 | 3.641.570.537 |
Samkvæmt sambykktum hefur stjórn heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 6.000 milljóna króna að nafnverði. Heimild pessi gildir til 31. mars 2023.
Eigin bréf
Félagið seldi á árinu eigin hluti að nafnverði 65.617.794 á markaði. Í lok árs á félagið eigin hluti að nafnverði 574.009 kr. eða 0,0158% af útgefnu hlutafé, sem ætlaðir eru til endursölu.
Áskriftarréttindi
Skv. grein 2.2 í sambykktum félagsins hefur stjórn félagsins heimild til að gefa út áskriftarréttindi fyrir 180.000.000 kr. að nafnverði.
Í ágúst 2019 gaf stjórn Kaldalóns út áskriftarréttindi að 180.000.000 hlutum að nafnvirði með gildistíma 5 ár frá útgáfu þeirra. Áskriftargengið er 1,0 að viðbættri 7,5% árlegri hækkun. Á seinni hluta árs 2019 var kaupréttur að áskriftarréttindunum nýttur að fullu. Handhafar áskriftarréttindanna hafa eftirfarandi heimildir til að nýta þau (1) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu ágúst 2019 til júní 2020, (2) að einum sjötta (1/6 hluta) frá júli 2020 til júní 2021, (3) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2021 til júní 2022, (4) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2022 til júní 2023, (5) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2023 til júní 2024 og (6) að einum sjötta (1/6 hluta) á tímabilinu júli 2024 til júní 2025. Nánar er fjallað um áskriftarréttindin og skilmála þeirra í sambykktum félagsins og vísast til þeirra varandi frekari upplýsingar.
Kaupréttarsamningur
Í júli 2019 gerði Kaldalón lánasamning við Kviku banka hf. Í tengslum við þetta lán veitti Kaldalón hf. Kviku kauprétt á 315.000.000 hlutum á genginu 1,0. Kaupverð fyrir hlutina skal vera 1,0 að viðbættri ávöxtun á ársgrunni fyrir hvern mánuð frá útgáfudegi. Ávöxtunin skal nema 1 mánaða REIBOR vöxtum auk 5,0% vaxtaálags. Kauprétturinn gildir til 26. júli 2022.
b Bundinn eiginfjárreikningur
Á bundinn eiginfjárreikning eru færðar óinnleystar gangvirðisbreytingar, að teknu tilliti til skattaáhrifa ef við á, vegna fjáreigna sem tilgreindar eru á gangvirði í gegnum rekstrarreikning og óheimilt er að ráðstafa til eigenda í formi arðs.
c Óráðstafað eigið fé / Ójafnað tap
Óráðstafað eigið fé er sá hluti af eigin fé félagsins sem hægt er að ráðstafa til hluthafa í formi arðs.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
17
Skýringar
9 Viðskipti við tengda aðila
Viðskipti milli Kaldalóns hf., eigenda þess og félaga tengdum þeim uppfylla skilyrði skilgreiningar um viðskipti við tengda aðila. Skilmálar og skilyrði þessa viðskipta voru ákveðin í samræmi við markaðstaðla og venjur.
Engin viðskipti sem uppfylla skilgreiningar um viðskipti við tengda aðila voru við stjórnarmenn eða aðila þeim nátengdum fjölskylduböndum, eða fyrirtækja í þeirra eigu á árinu.
| 2020 | 2019 | |
|---|---|---|
| Lán til tengdra aðila | ||
| U22 ehf. | 1.070.026.908 | 439.453.149 |
| U24 ehf. | 239.657.138 | 205.285.542 |
| U26 ehf. | 211.536.918 | 172.308.205 |
| U14-20 ehf | 1.071.759.862 | 1.499.060.031 |
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 68.779.831 | 60.981.761 |
| Vesturbugt eignarhaldsfélag | 80.811.989 | 187.070.575 |
| Steinsteypan ehf. | 24.299.201 | 79.135.718 |
| Nes þróunarfélag slhf. | 39.835.878 | 22.947.643 |
| Fasteignastýring ehf. | 45.003 | 441.796 |
| 2.806.752.728 | 2.666.684.420 | |
| Lán til tengdra aðila flokkast þannig í efnahagsreikningi: | ||
| Langtímahluti | 1.245.695.886 | 2.666.684.420 |
| Skammtímahluti | 1.561.056.842 | 0 |
| 2.806.752.728 | 2.666.684.420 | |
| 2020 | 2019 | |
| Skuld við tengd félög | ||
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 1.017.605.350 | 0 |
| GAMMA Capital Management ehf. | 59.518.649 | 28.218.774 |
| Kvika banki hf. | 6.850.000 | 93.475.301 |
| 1.083.973.999 | 121.694.075 | |
| Skuld við tengd félög flokkast þannig í efnahagsreikningi: | ||
| Langtímahluti | 1.017.605.350 | 0 |
| Skammtímahluti | 66.368.649 | 121.694.075 |
| 1.083.973.999 | 121.694.075 |
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
18
Skýringar
9 Viðskipti við tengda aðila, frh.
Í eftirfarandi töflu kemur fram fjárhæð viðskipta við tengda aðila og staða eigna og skulda í árslok.
| Árið 2020 | Tekjur | Gjöld | Eignir | Skuldir |
|---|---|---|---|---|
| U22 ehf. | 36.384.654 | 1.070.026.908 | ||
| U24 ehf. | 15.081.596 | 239.657.138 | ||
| U26 ehf. | 11.919.713 | 211.536.918 | ||
| U14-20 ehf | 101.112.374 | 1.071.759.862 | ||
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 7.243.420 | (7.791.054) | 68.779.831 | (1.017.605.350) |
| Kársnesbyggð ehf. | 8.829.577 | 0 | ||
| Vesturbugt eignarhaldsfélag | 0 | 80.811.989 | ||
| Steinsteypan ehf. | 1.025.659 | 24.299.201 | ||
| Nes próunarfélag slhf. | 3.538.235 | 39.835.878 | ||
| Fasteignastýring ehf. | 45.003 | |||
| GAMMA Capital Management ehf. | (50.165.155) | (59.518.649) | ||
| Kvika banki hf. | 964.474 | (48.600.616) | (359.810.734) | |
| 186.099.703 | (106.556.825) | 2.806.752.728 | (1.436.934.733) | |
| Árið 2019 | ||||
| U22 ehf. | 22.283.496 | 439.453.149 | ||
| U24 ehf. | 8.229.980 | 205.285.542 | ||
| U26 ehf. | 4.812.416 | 172.308.205 | ||
| U14-20 ehf | 50.308.612 | 1.499.060.031 | ||
| Próunarfélagið Hnoðraholt ehf. | 3.014.600 | 60.981.761 | ||
| Kársnesbyggð ehf. | 18.935.342 | 187.070.575 | ||
| Vesturbugt eignarhaldsfélag | 4.134.018 | 79.135.718 | ||
| Steinsteypan ehf. | 523.542 | |||
| Nes próunarfélag slhf. | 1.212.643 | 22.947.643 | ||
| Fasteignastýring ehf. | 441.796 | |||
| GAMMA Capital Management ehf. | (28.218.774) | (28.218.774) | ||
| Kvika banki hf. | 982.371 | (99.095.213) | (766.873.508) | |
| 114.437.020 | (127.313.987) | 2.666.684.420 | (795.092.282) |
Allir ofangreindir tengdir aðilar félagsins eru dóttur- eða hlutdeildarfélög að undanskyldum Kviku banka hf. og GAMMA sem eru umsýsluæðilar félagsins.
Lánasamningar milli Kaldalóns og dótturfélaga bera 7,5% vexti og skulu greiðast í einni greiðslu 31.12.2023. Hluti lánasamninga er flokkaður til skamms tíma í efnahagi þar sem áætað er að verkefnum þeirra ljúki innan 12 mánaða og kröfurnar verði greiddar upp. Lánasamningar milli Kaldalóns og hlutdeildarfélaga bera 10-12% vexti og skulu greiðast í einni greiðslu 15. janúar 2021.
10 Umsýsluþóknun
Kaldalón var með eignastýringarsamning við Kviku banka hf. í byrjun árs. Á miðjú ári 2019 færðist starfsemi sérhæfðra fjárfestinga frá Kviku banka yfir til GAMMA og kjólfarið var gerður nýr samningur milli Kaldalóns og GAMMA Capital Management ehf. Um er að ræða eignastýringarsamning. Fyrir þjónustu sína fær GAMMA greidda árlega eignastýringarþóknun sem nema skal 1,5% á ársgrundvelli af heildarvirði eigin fjár félagsins. Póknunin skal reiknuð ársfjörðungslega og greidd eftir á í lok hvers ársfjörðungs. Póknunin er gjaldfærð meðal skrifstofu- og stjórnunarkostnaðar.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
19
Skýringar
11 Vaxtatekjur og vaxtagjöld
Til vaxtatekna og vaxtagjalda sem færðar eru í yfirlit yfir heildarafkomu teljast vextir af handbæru fé, vextir af skuldabréfum og vaxtagjöld af skuldum
| Vaxtatekjur greinast á eftirfarandi hátt: | 2020 | 2019 |
|---|---|---|
| Vaxtatekjur af bankareikningum tengdra aðila | 964.474 | 982.371 |
| Vaxtatekjur af lánum til tengdra aðila | 185.135.229 | 113.454.649 |
| 186.099.703 | 114.437.020 | |
| Vaxtagjöld greinast á eftirfarandi hátt: | ||
| Vaxtagjöld af skuldum við lánastofnanir | 22.029.779 | 2.215.169 |
| Vaxtagjöld af skuldum við tengdar lánastofnanir | 54.976.007 | 40.612.917 |
| Vaxtagjöld af skuldum við tengda aðila | 7.791.054 | 0 |
| Önnur vaxtagjöld | 278.890 | 3.113.093 |
| 85.075.730 | 45.941.179 |
12 Laun og launatengd gjöld
| Laun og launatengd gjöld greinast þannig: | 2020 | 2019 |
|---|---|---|
| Laun | 27.000.000 | 30.700.000 |
| Mótframlag í lífeyrissjóð | 6.498.375 | 6.398.375 |
| Launatengd gjöld | 5.000.342 | 4.398.572 |
| Stjórnarlaun | 7.462.500 | 5.287.500 |
| Laun fjárfestingaráls | 7.462.500 | 5.287.500 |
| 53.423.717 | 52.071.947 |
Launakostnaður félagsins kemur til af störfum framkvæmdastjóra og stjórnar.
Framkvæmdastjóri hefur fengið áskriftarréttindi að hlutafé félagsins, sjá skýringu 8.
13 Tekjuskattur
Tekjuskattur er reiknaður en ekki færður í ársreikninginn þar sem aðaltekjur félagsins, tekjur af hlutabréfum, eru undanþegnar tekjuskatti. Því verður til hjá félaginu yfirfæranlegt tap sem greinist þannig:
| Skattalegt tap ársins 2018, nýtanlegt til ársloka 2028 | 62.947.112 |
|---|---|
| Skattalegt tap ársins 2019, nýtanlegt til ársloka 2029 | 92.113.178 |
| Skattalegt tap ársins 2020, nýtanlegt til ársloka 2030 | 25.535.553 |
| 180.595.843 |
Félagið á tekjuskattsinneign sem ekki er færð upp í ársreikningnum vegna óvissu um nýtingu. Félagið er samskattað með dótturfélögum sínum.
14 Handbært fé
Handbært fé samanstendur af bankainnstæðum. Engar veðsetningar eru á handbæru fé.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum
20
Skýringar
15 Áhættustýring
Félagið stendur frammi fyrir eftirfarandi megin áhættum vegna fjármálagerninga:
- Markaðsáhætta
- Hlutabréfaáhætta (verðáhætta)
- Vaxtaáhætta
Kaldalón hf. ver ekki ofangreindar áhættur félagsins.
Markaðsáhætta: áhættan að verðbreytingar á mörkuðum hafi áhrif á gangvirði og framtíðarsjóðstregmi fjármálagerninga. Markaðsáhætta er tilkomin vegna opinnar stöðu í hlutabréfum og vaxtaberandi gerningum, en slíkir fjármálagerningar eru næmir fyrir almennum og sértækum markaðsbreytingum og flökti í markaðsbreytum, til dæmis vöxtum, skuldaraálagi og hlutabréfaverði. Sjá næmnigreiningu í skýringu 6.
Vaxtaáhætta: Vaxtaberandi skuldir félagsins eru með breytilegum vöxtum. Því geta breytingar á vöxtum haft áhrif á afkomu félagsins.
Lausafjáráhætta: Félagið er háð því að hafa aðgang að fjármagni til þess að geta framkvæmt og þarf framkvæmdafjármögnun til þess að geta farið af stað í verkefni. Megin þorri eigna félagsins er bundið í fasteignum og lóðum og því er mikilvægt fyrir félagið að hafa aðgang að lausafé til rekstrar og til þess að umbreytt eignum í lausafé.
Kaldalón hf. Ársreikningur 2020
Fjárhæðir í íslenskum krónum