Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. AGM Information 2021

Mar 31, 2021

6045_rns_2021-03-31_7da90db1-6f70-4fb1-92cb-714a785532bc.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kaldalón hf.: Boðun aðalfundar

Kaldalón hf.: Boðun aðalfundar

FUNDARBOÐ

Aðalfundur Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, verður haldinn mánudaginn 19. apríl 2021, kl. 16:00, að Katrínartún 2, 105 Reykjavík,  9. hæð.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu.
  3. Kosning og skipun stjórnar og varastjórnar.
  4. Kjör endurskoðanda félagsins.
  5. Starfskjarastefna félagsins.
  6. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og endurskoðanda.
  7. Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.
  8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

***

Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis fram að aðalfundi.

Óski hluthafi eftir að fá ákveðið mál tekið fyrir á fundinum skal hann koma slíkri ósk á skriflega á framfæri við stjórn félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir boðaðan fundartíma.

Tilhögun fundarins verður í samræmi við þær sóttvarnarreglur sem í gildi verða á fundardegi.  Því getur þurft að takmarka aðgang að fundarsal og bjóða þess í stað upp á steymi, eða með öðrum hætti í samræmi við reglur hlutafélagalaga um hluthafafundi. Verða breytingar þar að lútandi tilkynntar í fréttakerfi kauphallar eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir fundinn.

Reykjavík, 31. mars 2021

F.h. stjórnar Kaldalóns hf.

Þórarinn Arnar Sævarsson

stjórnarformaður