Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Proxy Solicitation & Information Statement 2026

Jan 26, 2026

2190_rns_2026-01-26_f58ac98c-7497-44db-80c6-17b0db42cf8b.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka óskar eftir framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka óskar eftir framboðum til stjórnar

Aðalfundur Íslandsbanka verður haldinn 19. mars 2026.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá leggur nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef Íslandsbanka.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka óskar eftir framboðum til stjórnar bankans sem kjörin verður á aðalfundi bankans þann 19. mars 2026. Framboðum skal skilað til tilnefningarnefndar á sérstöku eyðublaði gegnum vef bankans fyrir kl. 16:00 þann 4. febrúar 2025. Tilnefningarnefnd mun ekki leggja mat á framboð sem berast eftir þann tíma. Fyrirhugað er að nefndin birti tillögu sína samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund.

Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur framboða til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 14. mars 2026.

Vilji hluthafar koma sjónarmiðum á framfæri við nefndina er varðar störf hennar í aðdraganda aðalfundar, er þeim bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd í gegnum netfangið [email protected] eigi síðar en 4. febrúar 2026.

Frekari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, [email protected]