Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Mar 7, 2025

2190_rns_2025-03-07_3f57fdb7-64b2-4e66-a231-636ec1d62186.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

islandsbanki.is

  1. mars 2025

Íslandsbanki hf.: Skýrsla tilnefningarnefndar og upplýsingar um frambjóðendur

Stjórn Íslandsbanka hf. boðaði til aðalfundar bankans með tilkynningu 7. mars 2025. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 31. mars 2025, kl. 16:00, í fundarsalnum Háteig á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænní þátttöku á fundinum. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer eingöngu fram með rafrænum hætti.

Í samræmi við sampýkktir bankans hefur bankinn starfandi tilnefningarnefnd sem hefur það hlutverk að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu á aðalfundi bankans, eða eftir atvikum á hluthafafundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef bankans.

Með tilkynningu í kerfi Kauphallarinnar og auglýsingu á vefsíðu bankans þann 20. janúar 2025 óskaði tilnefningarnefnd Íslandsbanka eftir framboðum til stjórnar, og sjónarmiðum hluthafa varandi störf nefndarinnar í aðdraganda aðalfundar fyrir 17. febrúar 2025.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka leggur til að eftirtaldir einstaklingar verði kjörnir í stjórn Íslandsbanka hf. á aðalfundi bankans 31. mars nk.

  • Agnar Tómas Möller, stjórnarmaður
  • Haukur Örn Birgisson, stjórnarmaður
  • Helga Hlín Hákonardóttir, stjórnarmaður
  • Linda Jónsdóttir, stjórnarmaður
  • Stefán Pétursson, stjórnarmaður
  • Stefán Sigurðsson, stjórnarmaður
  • Valgerður Hrund Skúladóttir, stjórnarmaður
  • Herdís Gunnarsdóttir, varastjórn
  • Páll Grétar Steingrímsson, varastjórn

Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Linda Jónsdóttir verði endurkjörin sem formaður stjórnar.

Nánar er fjallað um framangreindar tillögur í skýrslu tilnefningarnefndar sem er meðfylgjandi.

Störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund, þ.e. klukkan 16:00 þann 26. mars 2025. Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til stjórnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað sem finna má á vef bankans.

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl, [email protected].