AI assistant
Islandsbanki — Proxy Solicitation & Information Statement 2021
Mar 18, 2021
2190_rns_2021-03-18_357521c5-b532-4d02-bdc4-2adf45221249.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð til stjórnar á aðal-fundi 2021
- mars 2021
Framboð til stjórnar á aðalfundi 2021
Aðilar í framboði til stjórnar á aðalfundi Íslandsbanka hf. 18. mars 2021
Aðalfundur Íslandsbanka hf. verður haldinn þann 18. mars nk. í höfuðstöðvum bankans, Hagasmára 3, 201 Kópavogi, kl. 15:00.
Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar bankans:
Aðalmenn
Hallgrímur Snorrason
Hallgrímur Snorrason er fæddur árið 1947. Hann hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016 og stjórnarformaður frá mars 2020. Hann starfar sjálfstætt sem ráðgjafi í opinberri hagskýrslu-gerð á alþjóðavettvangi. Hann gegndi starfi Hagstofustjóra 1985-2007 og var aðstoðarfor-stjóri þjóðhagsstofnunar 1980-1984. Hann hefur setið í fjölda stjórna, m.a. bankaráði Útvegs-banka Íslands hf., Skyrr og Auðar Capital. Hann hefur jafnframt verið formaður ýmissa stjórn-skipaðra nefnda, bæði innlendra sem og nefnda tengdum norrænu samstarfi, EFTA, ESB og OECD.
Hallgrímur er með M.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Lundi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Edinborg.
Anna Þórðardóttir
Anna Þórðardóttir er fædd árið 1960 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Anna hefur mikla reynslu af stjórnarsetu. Hún hefur setið í stjórn KPMG og félags löggiltra endurskoð-enda. Hún situr í stjórn Framtíðarseturs Íslands og er formaður endurskoðunarnefndar Haga. Anna starfaði hjá KPMG á árunum 1988-2015, þar af sem eigandi frá 1999 og bar m.a. ábyrgð á endurskoðun hjá eftirfarandi félögum: Reitum, Högum, 365, Baugi Group, Vodafone, Land-festum, Landey, 10-11 og Félagsbústöðum.
Anna er löggiltur endurskoðandi og er með Cand.oec.on. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún stundaði Cand.merc. nám í fjármálafræðum við Handelshøjskolen í Árhus.
Árni Stefánsson
Árni Stefánsson er fæddur árið 1966 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hann hefur viðtæka stjórnunarreynslu tengdri stóriðju á Íslandi. Hann starfar sem framkvæmdastjóri, og situr í framkvæmdastjórn, hjá Rio Tinto. Árni hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri hjá Norðurálí Grundartanga, deildarstjóri og í framkvæmdaráði hjá Landsneti og sem stjórnandi hjá Landsvirkjun..
Árni er með M.Sc. gráðu í rafmagns- og rekstrarverkfræði.
Frosti Ólafsson
Frosti Ólafsson er fæddur árið 1982 og hefur verið stjórnarmaður frá mars 2020. Frosti starfar sem sjálfstæður ráðgjafi. Hann starfaði áður sem forstjóri ORF Liftækni, leiðandi þekkingar-fyrirtækis í plöntuliftækni sem jafnframt á og rekur snyrtivörumerkið BIOEFFECT, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og ráðgjafi hjá McKinsey & Company. Í sínum fyrri verk-efnum hefur Frosti veitt leiðandi innlendum og alþjóðlegum fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu á breiðu sviði, m.a. við stefnumörkun, hagsmunagæslu, rekstrarumbætur og stjórnarhætti. Frosti situr í stjórn Háskólans í Reykjavík og öðrum félögum sem tengjast háskólanum, í stjórn framtakssjóðsins Freyju og í stjórn Controlant.
Framboð til stjórnar á aðalfundi 2021
Frosti er með MBA gráðu frá London Business School og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og Macquire University í Sydney, Ástraliu.
Guðrún Þorgeirsdóttir
Guðrún Þorgeirsdóttir er fædd árið 1979 og hefur verið stjórnarmaður frá mars 2020. Hún er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá PayAnalytics. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Skeljungi. Guðrún hefur reynslu sem framkvæmdastjóri áhættustýringar og sem fjárfestingarstjóri. Hún er reyndur stjórnarmaður og hefur gegnt stjórnarstörfum í tryggingarfélögum, fjármálafyrirtækjum og verslunar- og þjónustufyrirtækjum og hefur meðal annars setið í stjórn Vátryggingafélags Íslands, Lífís, Lyfju og Lýsingu.
Guðrún er með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, MBA frá HEC School of Management í Frakklandi og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Heiðrún Emilía Jónsdóttir
Heiðrún Emilía Jónsdóttir er fædd árið 1969 og hefur verið stjórnarmaður frá april 2016 og varaformaður stjórnar frá mars 2020. Auk þess að sitja í stjórn bankans er hún stjórnarmaður í Regin fasteignafélagi og Royal Arctic Line. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Eimskipafélagi Íslands, Lex Lögmannsstofu og framkvæmdastjóri lögfræði- og mannaðssviðs KEA. Hún hefur viðtæka reynslu af stjórnarsetu frá árinu 1998. Hún hefur meðal annars verið formaður stjórnar Norðlenska, Íslenskra verðbréfa, Gildis lífeyrissjóðs og stjórnarmaður í stjórn Símans, Icelandair Group, Olíuverzlunar Íslands, Ístaks, Reiknistofu bankanna, Arion verðbréfavörslu, Þekkingar og Landssambands lífeyrissjóða. Þá sat hún í stjórn Lögmannafélags Íslands 2016-2019, og var varaformaður þess 2018-2019.
Heiðrún er með embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hún lauk stjórnendanámi, Advanced Management Program (AMP) frá IESE Business School í Barcelona á Spáni 2017.
Jökull H. Úlfsson
Jökull H. Úlfsson er fæddur árið 1963 og hefur ekki áður setið í stjórn bankans. Jökull hefur starfað á fjármálamarkaði sl. 25 ár þar sem hann hefur öðlast fjölbreytta þekkingu á starfsemi fjármálafyrirtækja. Jökull starfaði lengst af hjá Arion banka hf. og forverum hans sem stjórnandi í eignastýringu, viðskiptaþróun og mannaðsmálum. Hann sat í stjórn Stefnis hf. á árunum 2013 til 2019 og gegndi stöðu framkvæmdastjóra Stefnis hf. frá 2019 til 2020.
Jökull hefur lokið cand. oceon. prófi í viðskiptafræði af fjármálasviði frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Varamenn
Herdís Gunnarsdóttir hefur verið varamaður í stjórn Íslandsbanka frá april 2016. Hún tók sæti í aðalstjórn bankans í nóvember 2020. Herdís er framkvæmdastjóri réttindasviðs Tryggingastofnunar. Herdís er með MBA frá Háskóla Íslands og M.Sc og B.Sc í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands.
Óskar Jósefsson hefur verið varamaður í stjórn Íslandsbanka frá mars 2020. Óskar er framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar Ferðamála og hefur sinnt því starfi frá árinu 2016. Óskar hefur verið stjórnandi og stjórnarmaður í nokkrum af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi m.a. Símanum, Ístaki, PWC o.fl. Óskar er véla- og rekstrarverkfræðingur M.Sc frá Aalborg University.
Framboð til stjórnar á aðalfundi 2021
Óhæði stjórnarmanna
Þeir aðilar sem eru tilnefndir til aðal- og varamenn stjórnar eiga ekki hlut í bankanum, hvorki beint né í gegnum tengda aðila. Aðal- og varamenn eru jafnframt óháðir bankanum og eiganda hans. Þeir hafa engin hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins og eiganda bankans.
4