AI assistant
Islandsbanki — Proxy Solicitation & Information Statement 2021
May 26, 2021
2190_rns_2021-05-26_7b45e5e8-286e-46b9-9f36-589bce921619.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Tillögur til hluthafafundar 2021
- mai 2021
Tillögur til hluthafafundar 2021
Miðvikudagur 26. maí 2021, kl. 15:00 í höfuðstöðvum Íslandsbanka hf. (hér eftir bankinn), Norðurturni, Hagasmára 3, 201 Kópavogi.
- Tillaga um ráðstöfun á hluta af listaverkasafni bankans til listasafna
Lagt er til að hluthafafundur samþykki að bankinn gefi 203 listaverk í eigu bankans til Listasafns Íslands eða viðurkenndra safna, skv. 10. gr. safnalaga 141/2011, í samráði við Listasafn Íslands. Verkin verði gefin með þeim skilmálum að bankinn hafi áfram í sínum vörslum þau 51 verk sem bankinn nýtir í starfsemi sinni. Um það verði gerður vörslusamningur milli bankans og Listasafns Íslands til fyrirfram skilgreinds tíma. Önnur verk, 152 talsins, verði gefin og afhent Listasafni Íslands eða öðrum viðurkenndum listasöfnum.
- Tillaga um breytingar á samþykktum bankans
Stjórn bankans leggur til að hluthafafundur samþykki nýjar samþykktir fyrir bankann í samræmi við hjálagða tillögu.
Um tillöguna:
Um heildarendurskoðun samþykkta bankans er að ræða. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Hlutafé bankans (krónur 10.000.000.000) skiptist eftirleiðis í 2.000.000.000 hluti, hver að nafnvirði fimm (5) krónur eða margfeldi þeirrar fjárhæðar. Hlutafé bankans tilheyrir allt einum flokki hlutafjár.
- Heimilt er að halda hluthafafundi rafrænt, í heild eða að hluta.
- Kosning stjórnar bankans skal framkvæmd sem margfeldiskosning milli einstaklinga, sbr. c liður 6. mgr. 63. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
-
Bankinn skal hafa starfandi þriggja manna tilnefningarnefnd sem hefur það meginhlutverk að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu í bankanum. Nefndarmenn tilnefningarnefndar skulu vera þrír (3) og skulu þeir kjörnir af stjórn til eins árs í senn. Nefndin skal vera sjálfstæð í störfum sínum og skal meirihluti nefndarmanna vera óháður félaginu og stjórnendum þess.
-
Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar
Lagt er til að hluthafafundur samþykki starfsreglur tilnefningarnefndar í samræmi við hjálagða tillögu.
- Önnur mál
Engin.