Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Proxy Solicitation & Information Statement 2020

Mar 19, 2020

2190_rns_2020-03-19_5e520947-71b6-4454-b091-b5fe0c554fcd.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Framboð til stjórnar á aðalfundi 2020

  1. mars 2020

Framboð til stjórnar á aðalfundi 2020

Aðilar í framboði til stjórnar á aðalfundi Íslandsbanka hf. 19. mars 2020

Aðalfundur Íslandsbanka hf. verður haldinn þann 19. mars n.k. í höfuðstöðvum bankans, Hagasmára 3, 201 Kópavogi, kl. 15:00.

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar bankans:

Aðalmenn:

Stjórnarformaður:

Hallgrímur Snorrason

Hallgrímur Snorrason er fæddur árið 1947 hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hann starfar sjálfstætt sem ráðgjafi í opinberri hagskýrslugerð. Hann gegndi starfi Hagstofustjóra 1985-2007 og var aðstoðarforstjóri Þjóðhagsstofnunar 1980-1984. Hann hefur setið í fjölda stjórna, m.a. bankaráði Útvegsbanka Íslands hf., Skyrr og Auðar Capital. Hann hefur jafnframt verið formaður ýmissa stjórnskipaðra nefnda, bæði innlendra sem og nefnda tengdum norrænu samstarfi, EFTA, ESB og OECD.

Hallgrímur er með M.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Lundi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Edinborg.

Aðrir stjórnarmenn:

Anna Þórðardóttir

Anna Þórðardóttir er fædd árið 1960 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hún hefur mikla reynslu af stjórnarsetu. Hún hefur setið í stjórn KPMG og í félagi löggiltra endurskoðenda. Hún situr í stjórn Framtíðarseturs Íslands, Heimavalla og er formaður endurskoðunarnefndar Haga. Anna starfaði hjá KPMG á árunum 1988-2015, þar af sem eigandi frá 1999 og bar m.a. ábyrgð á endurskoðun hjá eftirfarandi félögum: Reitum, Högum, 365, Baugi Group, Vodafone, Landfestum, Landey, 10-11 og Félagsbústöðum.

Anna er löggiltur endurskoðandi og er með Cand.oec.on. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún stundaði Cand.merc. nám í fjármálafræðum við Handelshøjskolen í Árhus.

Árni Stefánsson

Árni Stefánsson er fæddur árið 1966 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hann hefur viðtæka stjórnunarreynslu tengdri stóriðju á Íslandi. Hann starfar sem framkvæmdastjóri, og situr í framkvæmdastjórn hjá Rio Tinto. Árni hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri hjá Norðurálí Grundartanga, deildarstjóri hjá Landsneti og yfirmaður netrekstrar hjá Landsvirkjun.

Árni er með M.Sc. gráðu í rafmagns- og rekstrarverkfræði og B.sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Álaborgarháskóla í Danmörku.

Flóki Halldórsson

Flóki Halldórsson er fæddur árið 1973 og hefur ekki áður setið í stjórn bankans. Hann hefur viðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Hann var framkvæmdastjóri Stefnis á árunum 2009-2019. Á árunum 2001-2009 starfaði hann sem sjóðstjóri hjá forvera Stefnis. Þar áður var Flóki fjárfestingarstjóri hjá Burðarási. Flóki hefur gegnt stjórnarstörfum hjá félögum tengdum starfsemi Stefnis og síðastliðið ár sat hann í stjórn Stefnis.


Framboð til stjórnar á aðalfundi 2020

Flóki er með EMBA gráðu frá Copenhagen Business School og B.A. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Frosti Ólafsson

Frosti Ólafsson er fæddur árið 1982 og hefur ekki setið áður í stjórn bankans. Frosti er fráfarandi forstjóri ORF Liftækni, leiðandi þekkingarfyrirtækis í plöntuliftækni sem jafnframt á og rekur snyrtivörumerkið BIOEFFECT. Frosti hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og ráðgjafi hjá McKinsey & Company. Í sínum fyrri verkefnum hefur Frosti veitt leiðandi innlendum og alþjóðlegum fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu á breiðu sviði, m.a. við stefnumörkun, hagsmunagæslu, rekstrarumbætur og stjórnarhætti. Að loknum tíma sínum hjá ORF Liftækni mun Frosti starfa sem sjálfstæður ráðgjafi. Frosti situr í stjórn Háskólans í Reykjavik og félögum sem tengjast háskólanum, í stjórn framtakssjóðsins Freyju og í ýmsum dötturfélögum sem heyra undir ORF Liftækni.

Frosti er með MBA gráðu frá London Business School og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og Macquire University í Sydney, Ástraliu.

Guðrún Þorgeirsdóttir

Guðrún Þorgeirsdóttir er fædd árið 1979 og hefur ekki áður setið í stjórn bankans. Guðrún er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá PayAnalytics. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Skeljungi. Guðrún hefur reynslu sem framkvæmdastjóri áhættustýringar og sem fjárfestingarstjóri. Guðrún er reyndur stjórnarmaður og hefur gegnt stjórnarstörfum í tryggingarfélögum, fjármálafyrirtækjum og verslunar- og þjónustufyrirtækjum og hefur meðal annars setið í stjórn Vátryggingafélags Íslands, Lífís, Lyfju og Lýsingu.

Guðrún er með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, MBA frá HEC School of Management í Frakklandi og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Heiðrún Emilía Jónsdóttir er fædd árið 1969 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Auk þess að sitja í stjórn bankans er hún stjórnarmaður í Icelandair Group, Reginn fasteignafélagi og varaformaður Lögmannafélags Íslands. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Eimskipafélagi Íslands, Lex Lögmannsstofu og framkvæmdastjóri lögfræði- og mannaðssviðs KEA. Hún hefur viðtæka reynslu af stjórnarsetu frá árinu 1998. Hún hefur meðal annars verið formaður stjórnar Norðlenska, Íslenskra verðbréfa, Gildis lífeyrissjóðs og stjórnarmaður í stjórn Ístaks, Reiknistofu bankanna, Arion verðbréfavörslu, Þekkingar, Landssambands lífeyrissjóða, Símans og Olíuverzlunar Íslands.

Heiðrún er með embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hún lauk stjórnendanámi, Advanced Management Program (AMP) frá IESE Business School í Barcelona á Spáni 2017.


Framboð til stjórnar á aðalfundi 2020

Varamenn

Herdís Gunnarsdóttir hefur verið starfandi varamaður í stjórn Íslandsbanka frá apríl 2016. Herdís er með MBA frá Háskóla Íslands og Msc og Bsc í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Herdís er framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Óskar Jósefsson hefur verið framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar Ferðamála frá árinu 2016. Óskar hefur verið stjórnandi og stjórnarmaður í nokkrum af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi m.a. Símanum, Ístaki, PWC o.fl. Óskar er véla- og rekstrarverkfræðingur M.Sc frá Aalborg University.

Óhæði stjórnarmanna

Þeir aðilar sem eru tilnefndir til aðal- og varamenn stjórnar eiga ekki hlut í bankanum, hvorki beint né í gegnum tengda aðila. Aðal- og varamenn eru jafnframt óháðir bankanum og eiganda hans. Þeir hafa engin hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins og eiganda bankans.

4