Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Proxy Solicitation & Information Statement 2019

Mar 21, 2019

2190_rns_2019-03-21_15abfd8a-1f14-44cc-8023-f491d67b47a4.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Framboð til stjórnar á aðalfundi 2019

  1. mars 2019

Framboð til stjórnar á aðalfundi 2019

Aðilar í framboði til stjórnar á aðalfundi Íslandsbanka hf. 21. mars 2019

Aðalfundur Íslandsbanka hf. verður haldinn þann 21. mars n.k. í höfuðstöðvum bankans, Hagasmára 3, 201 Kópavogi, kl. 15:00.

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar bankans:

Aðalmenn

Friðrik Sophusson

Friðrik Sophusson er fæddur árið 1943 og hefur verið stjórnarformaður Íslandsbanka frá janúar 2010. Friðrik hefur viðtæka reynslu og þekkingu á sviði stefnumörkunar í efnahagsmálum, stjórnun og opinberri þjónustu á Íslandi. Hann hefur gegnt fjölmorgum trúnaðarstörfum fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök sem og sinnt stjórnarsetu. Friðrik var framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands 1972-1978 þegar hann tók sæti á Alþingi. Friðrik átti sæti í ríkisstjórn 1987-1988, þá sem iðnaðar- og orkumálaráðherra og síðar sem fjármálaráðherra 1991-1998. Árið 1999 tók Friðrik við starfi forstjóra Landsvirkjunar sem hann gegndi í tæp 11 ár. Hann er jafnframt stjórnarformaður Hlíðarenda ses.

Friðrik er með embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands.

Anna Þórðardóttir

Anna Þórðardóttir er fædd árið 1960 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hún hefur mikla reynslu af stjórnarsetu. Hún hefur setið í stjórn KPMG og í félagi löggiltra endurskoðenda. Hún situr í stjórn Framtíðarseturs Íslands, Heimavalla og er formaður endurskoðunarnefndar Haga. Anna starfaði hjá KPMG á árunum 1988-2015, þar af sem eigandi frá 1999 og bar m.a. ábyrgð á endurskoðun hjá eftirfarandi félögum: Reitum, Högum, 365, Baugi Group, Vodafone, Landfestum, Landey, 10-11 og Félagsbústöðum.

Anna er löggiltur endurskoðandi og er með Cand.oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún stundaði Cand.merc. nám í fjármálafræðum við Handelshøjskolen í Árhus.

Auður Finnbogadóttir

Auður Finnbogadóttir er fædd árið 1967 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hún hefur viðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Lifsverks lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar og MP banka. Auður hefur verið stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins og Norðlenska. Hún hefur meðal annars setið í stjórn Framtakssjóðs Íslands, Icelandair Group, RÚV, Landsnets og Nýja Kaupþings banka. Auður er virkur varamaður í kærunefnd útboðsmála og starfar sem verkefnastjóri stefnumótunar hjá Kópavogsbæ.

Auður er með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðleg viðskipti frá Háskólanum í Colorado, Boulder í Bandaríkjunum og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún lauk diplómanámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands voríð 2018 og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.


Framboð til stjórnar á aðalfundi 2019

Árni Stefánsson

Árni Stefánsson er fæddur árið 1966 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hann hefur viðtæka stjórnunarreynslu tengdri stóriðju á Íslandi. Hann starfar sem framkvæmdastjóri, og situr í framkvæmdastjórn hjá Rio Tinto. Árni hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri hjá Norðurálí Grundartanga, deildarstjóri hjá Landsneti og yfirmaður netrekstrar hjá Landsvirkjun.

Árni er með M.Sc. gráðu í rafmagns- og rekstrarverkfræði og B.sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Álaborgarháskóla í Danmörku.

Hallgrímur Snorrason

Hallgrímur Snorrason er fæddur árið 1947 hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Hann starfar sjálfstætt sem ráðgjafi í opinberri hagskýrslugerð. Hann gegndi starfi Hagstofustjóra 1985-2007 og var aðstoðarforstjóri Þjóðhagsstofnunar 1980-1984. Hann hefur setið í fjölda stjórna, m.a. bankaráði Útvegsbanka Íslands hf., Skýrr og Auðar Capital. Hann hefur jafnframt verið formaður ýmissa stjórnskipaðra nefnda, bæði innlendra sem og nefnda tengdum norrænu samstarfi, EFTA, ESB og OECD.

Hallgrímur er með M.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Lundi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Edinborg.

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Heiðrún Emilía Jónsdóttir er fædd árið 1969 og hefur verið stjórnarmaður frá apríl 2016. Auk þess að sitja í stjórn bankans er hún stjórnarmaður í Icelandair Group, Reginn fasteignafélagi og varaformaður Lögmannafélags Íslands. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Eimskipafélagi Íslands, Lex Lögmannsstofu og framkvæmdastjóri lögfræði- og mannaðssviðs KEA. Hún hefur viðtæka reynslu af stjórnarsetu frá árinu 1998. Hún hefur meðal annars verið formaður stjórnar Norðlenska, Íslenskra verðbréfa, Gildis lífeyrissjóðs og stjórnarmaður í stjórn Ístaks, Reiknistofu bankanna, Arion verðbréfavörslu, Þekkingar, Landssambands lífeyrissjóða, Símans og Olíuverzlunar Íslands.

Heiðrún er með embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hún lauk stjórnendanámi, Advanced Management Program (AMP) frá IESE Business School í Barcelona á Spáni 2017.

Tómas Már Sigurðsson

Tómas Már Sigurðsson er fæddur árið 1968 og hefur ekki áður setið í stjórn bankans. Tómas er aðstoðarforstjóri Alcoa Corporation, Pittsburg í Bandaríkjunum og stýrir stefnumótandi samstarfverkefnum félagsins. Tómas gegndi áður starfi forstjóra Alcoa Fjarðaáls og Alcoa á Íslandi, en fluttist í árslok 2011 til Genfar til að stýra Alcoa í Evrópu. Frá 2014-2018 var Tómas framkvæmdastjóri Alcoa Corporation á heimsvísu. Tómas var formaður Viðskiptaráðs Íslands frá 2009-2012 og sat í stjórn Samtaka iðnaðarins frá 2005-2011. Hann sat í framkvæmdastjórn Evrópska Álfélagsins/sambandsins, Eurometaux, og Bandaríska viðskiptaráðs Evrópusambandsins frá 2012-2014. Tómas er í dag í fjölda stjórna á vegum Alcoa ásamt því að vera í stjórn evrópska álframleiðenda.

Tómas er með BS gráðu í bygginga- og umhverfisverkfræði og mastersgráðu í skipulagsverkfræði frá Cornell Háskóla í Bandaríkjunum.


Framboð til stjórnar á aðalfundi 2019

Varamenn

Herdís Gunnarsdóttir og Pálmi Kristinsson, hafa bæði verið starfandi varamenn í stjórn Íslandsbanka frá apríl 2016. Herdís er með MBA frá Háskóla Íslands og Msc og Bsc í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Herdís er framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Pálmi er með Bsc í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og Msc í verkfræði frá Danmarks Tekniske Højskole. Pálmi er sjálfstætt starfandi ráðgjafi.

Óhæði stjórnarmanna

Þeir aðilar sem eru tilnefndir til aðal- og varamenn stjórnar eiga ekki hlut í bankanum, hvorki beint né í gegnum tengda aðila. Aðal- og varamenn eru jafnframt óháðir bankanum og eiganda hans. Þeir hafa engin hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins og eiganda bankans.

4