Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki M&A Activity 2007

Nov 8, 2007

2190_tar_2007-11-08_d315ce02-a387-4839-90b2-d8e5d0e0b3bd.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 243806

Landsbanki Íslands hf. - Yfirtökutilboð

Varðandi tilkynningar frá Cenkos Securities plc og Close Brothers Group plc

Vegna tilkynninga sem birtust nú í morgun frá ensku fjármálafyrirtækjunum Close Brothers Group plc og Cenkos Securities plc varðandi hugsanlega þátttöku bankans í yfirtökutilboði í Close Brothers Group plc, vill Landsbanki Íslands hf. taka fram eftirfarandi: Landsbankinn hefur í samvinnu við enska verðbréfafyrirtækið Cenkos Securities plc átt viðræður við stjórn Close Brothers Group plc í því skyni að kanna grundvöll þess að gera yfirtökutilboð í allt útistandandi hlutafé síðarnefnda félagsins á genginu 950 pens á hlut. Gangi viðskiptin eftir, hefur Landsbankinn í hyggju að kaupa bankastarfsemi Close Brothers Group plc en Cenkos Securities plc mun halda eftir öðrum þáttum starfseminnar. Viðræður um þessi viðskipti eru nú á frumstigi og engin vissa er fyrir því að þær muni leiða til þess að gert verði yfirtökutilboð í Close Brother's Group plc. Frekari upplýsingar veitir: Landsbanki Íslands hf. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, sími 898 0177, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, simi 820 6399.