Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Earnings Release 2021

May 5, 2021

2190_rns_2021-05-05_a7f33bc4-8c9a-4ce2-b268-400bb15695e6.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

img-0.jpeg

Afkoma fyrsta

årsfjörnungs
2021

Íslandsbanki hf.

  1. maí 2021

1

Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjörðungs 2021 (1F21)

  • Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 3,6 ma. kr. á 1F21 (1F20: -1,4 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár var 7,7% á ársgrundvelli (1F20: -3,0%).
  • Hreinar vaxtatekjur námu 8,2 ma. kr. á fjörðungnum samanborið við 8,6 ma. kr. á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir lægra vaxtaumhverfi var vaxtamunur 2,4% samanborið við 2,8% á 1F20.
  • Hækkun í hreinum þóknanatekjum var 14,9% á milli ára, hækkun úr 2,5 ma. kr. í 2,9 ma. kr. er tilkomin vegna aukningar í bæði þóknanatekjum og -gjöldum.
  • Hreinar fjármunatekjur námu 293 m.kr. (1F21: -1,7 ma. kr.) sem skýrist einkum af hreinum virðisbreytingum og markaðsaðstæðum.
  • Stjörnunarkostnaður hækkæði lítillega á milli ára og nam 5,9 ma. kr. á fjörðungnum (1F20: 5,7 ma. kr.). Hækkunin í launalið skýrist einkum af samningsbundnum kjarahækkunum og starfslokagreiðslum á meðan annar rekstarkostnaður lækkar á milli ára.
  • Kostnaðarhlutfallið lækkar á milli ára og var 52,0% á fyrsta fjörðungi samanborið við 62,9% á sama tíma í fyrra. Aukning í notkun á stafrænum lausnum spilar þar lykilhlutverk.
  • Neikvæð virðisbreyting útlána er mun lægri á fyrsta ársfjörðungi ársins en á sama tíma í fyrra, samtals 518 m.kr. samanborið við 3,5 ma. kr. á 1F20, þróun sem skýrist af batnandi efnahagsaðstæðum. Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina var 0,05% á fyrsta ársfjörðungi (0,20% á ársgrundvelli) en var 0,91% fyrir árið 2020.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 2,3% á fjörðungnum en þar vegur þyngst aukning húsnæðislána.
  • Hlutfall lána með laskað lánshæfi lækkæði um 0,5% frá árslokum og var 2,4% (miðað við vergt bókfært virði) í lok mars.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 19 ma. kr. eða 2,8% frá áramótum.
  • Lausafjárstaða bankans er áfram sterk og öll lausafjárhlutföll vel yfir kröfum eftirlitaðila.
  • Eigið fé bankans nam 185 ma. kr. í lok mars og heildar eiginfjárhlutfall bankans var sterkt og nam 21,9%, það er yfir markmiði bankans sem er 17,5-19%. Vogunarhlutfallið var 12,6% í lok mars samanborið við 13,6% í árslok.
  • Fjárhagsleg markmið bankans hafa nú verið uppfærð í takti við stefnu bankans og batnandi efnahagsumhverfi.

2

Lykiltölur

1F21 4F20 3F20 2F20 1F20
REKSTUR Hagnaður eftir skatta, m.kr 3.615 3.525 3.361 1.245 (1.376)
Árðsemi eigin fjár (eftir skatta) 7,7% 7,6% 7,4% 2,8% (3,0%)
Vavtamunur (af heildareignum) 2,4% 2,5% 2,5% 2,6% 2,8%
Kostnaðarhlutfall¹ 52,0% 51,7% 46,7% 57,5% 62,9%
Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina (á ársgrundvelli) 0,20% 0,73% 0,44% 1,03% 1,51%
31.3.2021 31.12.2020 30.9.2020 30.6.2020 31.3.2020
EFNAHAGUR Útlán til viðskiptavina, m.kr 1.029.415 1.006.717 970.309 933.320 923.850
Eignir samtals, m.kr 1.385.235 1.344.191 1.328.724 1.303.256 1.255.691
Áhættuvegnar eignir, m.kr 954.712 933.521 942.339 923.133 911.375
Innlán frá viðskiptavinum, m.kr 698.575 679.455 698.610 681.223 647.795
Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum 147% 148% 139% 137% 143%
Hlutfall lána með laskað lánshæf² 2,4% 2,9% 3,3% 3,6% 2,8%
LAUSAFÉ Lausafjárhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar 172% 196% 136% 179% 177%
Hlutfall stöðugrar fjármögnunar (NSFR), allir gjaldmiðlar 119% 123% 113% 117% 120%
EIGID FÉ Eigið fé samtals, m.kr 185.471 186.204 182.509 179.722 179.542
Eiginfjáhlutfall 21,9% 23,0% 22,2% 22,2% 21,9%
Eiginfjáhlutfall þáttar 1 19,2% 20,1% 19,4% 19,4% 19,2%
Vogunarhlutfall 12,6% 13,6% 13,4% 13,4% 13,5%
  1. Reiknað sem: (stjörnunarkostnaður + framlag í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta) / (heldarrekstrartekjur)
  2. Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

Það er ánægjulegt að sjá að afkoma fyrsta ársfjörðungs kemur vel út og er í takti við þá þróun sem var á seinni hluta síðasta árs. Hagnaður bankans á tímabilinu var 3,6 milljarðar sem skilar árðsemi eigin fjár upp á 7,7% og er það mikill viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra. Vöxtur var í heildartekjum á milli ára og virðisrýrnun var mun lægri en á fyrsta ársfjörðungi síðasta árs. Fjárfestingar undanfarinna ára í innviðum og stafrænum lausnum og aukin stafraen notkun viðskiptavina leiddu til lækkunar á kostnaðarhlutfalli bankans á milli ára. Innlán frá viðskiptavinum jukust um 2,8% og útlán til viðskiptavina jukust um 2,3% frá árslokum. Aukninguna í útlánum má aðallega rekja til áframhaldandi aukinnar eftirspurnar á húsnæðislánamarkaði en mun styttri bíðtími er eftir afgreiðslu húsnæðislána en áður og mælist mikil ánægja með þjónustuna. Við finnum að eftirspurnin er líka orðin fjölbreyttari og nú býður bankinn viðskiptavinum sínum græn húsnæðislán við fjármögnun á vistvænu húsnæði á hagstæðari kjörum.

Þróun stafrænna lausna á síðustu árum hefur verið hröð og tók stökk þegar þörfin var hvað mest í upphafi heimsfaraldurs. Frá árinu 2017 höfum við séð 20% árlegan vöxt í fjölda notenda í appi og nú eru 99% snertinga við einstaklinga stafraenar. Við höldum áfram á stafrænni vegferð og meðal nýjunga sem við kynntum nýverið er viðbót í appið þar sem viðskiptavinir geta fylgst með kolefnisspori einkaneyslu sinnar.

Nýlega kynntum við markmið Íslandsbanka um að ná fullu kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Undanfarin tvö ár hefur eigin rekstur bankans verið kolefnishlutlaus en nú á markmiðið einnig við um kolefnisspor af öllu lána- og eignasafni bankans. Við erum afar stolt af þessu markmiði sem er í takti við metnaðarflulla áætlun Íslands í loftslagsmálum. Á dögunum hlaut Íslandsbanki flest stig íslenskra fyrirtækja í UFS mati Reitunar en samkvæmt matinu hefur bankinn unnið vel að því að koma sjálfbærnimiðáði hugsun inn í starfsemi bankans. Einnig hlaut bankinn Kuðunginn, umverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf í þágu umhverfismála á síðasta ári. Þessir áfangar styðja svo sannarlega við það hlutverk bankans að vera hreyfiafl til góðra verka og sýnum við það í verki með góðum árangri á sviði sjálfbærnimála.

Fjárhagsstaða bankans er áfram sterk og undirstöður traustar. Efnahagsreikningur bankans er traustur með eigin- og lausafjárhlutföll vel yfir innri markmiðum og kröfum eftirlitsaðila. Fjárhagsleg markmið bankans hafa verið uppfærð með það að markmiði að gefa skýrari mynd af þróun og áherslum í stefnu


3

bankans. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á opinberum vettvangi lýst því yfir að unnið sé að skráningu hlutabréfa bankans á skipulegan verðbréfamarkað, að undangengnu útboði, og að stefnt sé að því að hún eigi sér stað í júní. Það er því ljóst að spennandi tímar eru framundan.

Afkomuefni

Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda.