AI assistant
Islandsbanki — Earnings Release 2021
Jul 28, 2021
2190_rns_2021-07-28_b8e388b2-088c-46dc-8943-4209f0ab3c0a.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning

Afkoma annars
årsfjörnungs
2021
Íslandsbanki hf.
- júli 2021
1
Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs 2021 (2F21) – sterkur fjórðungur með jákvæða virðisrýrnun
- Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 5,4 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi (2F20: 1,2 ma. kr.). Arðsemi eigin fjár var 11,6% á ársgrundvelli (2F20: 2,8%) sem er yfir fjárhagslegum markmiðum bankans.
- Stækkun lánasafnsins leiddi hækkun á hreinum vaxtatekjum á milli ára. Hreinar vaxtatekjur námu 8,4 ma. kr. á 2F21 samanborið við 8,2 ma. kr. á 2F20.
- Þóknanir af eignastýringu, fjárfestingarbanka og verðbréfaviðskiptum sem og þóknanir vegna útlána leiddu til hækkunar hreinna þóknanatekna sem hækkuðu um 26% á milli ára og voru samtals 2,9 ma. kr.
- Hreinar fjármunatekjur námu 619 m.kr. á 2F21 samanborið við 181 m.kr. tap á 1F20, breytingin stafar aðallega af hækkunum á innlendum hlutabréfamarkaði.
- Stjórnunarkostnaður hækkæði um 10,5% á milli ára og nam samtals 6,5 ma. kr. á 2F21. Hækkunin skýrist að mestu leyti af 588 m.kr. einskiptiskostnaði vegna hlutafjárútboðs bankans.
- Kostnaðarhlutfall bankans lækkæði á milli ára, úr 57,5% á 1F20 í 49,9% á 1F21.
- Virðisrýrnun var jákvæð á 2F21 um 1,1 ma. kr. og er viðsnúningurinn aðallega vegna batnandi útlits í ferðabjónustu en á 2F20 var virðisrýrnun neikvæð um 2,4 ma. kr. vegna áhrifa COVID-19. Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina var -0,42% á ársgrundvelli á 2F21 samanborið við 1,03% á 2F20.
- Útlán til viðskiptavina jukust um 5,9% frá lok mars og 8,2% frá árslokum helst vegna umsvifa í húsnæðislánum en einnig var vöxtur í lánum til fyrirtækja.
- Í lok uppgjörstímabilsins hafði hlutfall lána með laskað lánshæfi (vergt bókkfært virði) lækkæði úr 2,9% í árslok í 2,1% aðallega vegna uppgreiðslna á lánum á stigi 3.
- Innlán frá viðskiptavinum jukust um 67 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi og 86 ma. kr. frá árslokum. Stór hluti af hækkuninni tengist uppgjöri vegna sölu bankans og er því líklega tímabundin.
- Lausafjárstaða bankans er áfram sterk og öll lausafjárhlutföll vel yfir innri viðmiðum og kröfum eftirlitsaðila.
- Eigið fé bankans nam 190 ma. kr. í lok júní og heildareiginfjárhlutfall bankans var 22,9% samanborið við 21,9% í lok mars, það er vel yfir markmiði bankans sem er 18,3–19,8%. Vogunarhlutfallið var 12,4% í lok júní samanborið við 12,6% í lok mars sem telst hátt í alþjóðlegum samanburði.
Helstu atriði í afkomu á fyrri árshelmingi ársins 2021 (1H21) – viðsnúningur frá fyrra ári
- Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 9,0 ma. kr. á fyrri helmingi ársins (1H20: -131 m.kr.). Arðsemi eigin fjár var 9,7% á ársgrundvelli samanborið við -0,1% á 1H20.
- Hreinar vaxtatekjur námu samtals 16,6 ma. kr. á 1H21 sem er lækkun um 1,2% á milli ára og skýrist af lægra vaxtaumhverfi á milli tímabila.
- Hreinar þóknanatekjur hækkuðu um 20,2% á milli ára vegna nokkurra liða, þ. á m. þóknana vegna eignastýringar, fjárfestingarbanka og verðbréfaviðskipta sem og þóknana vegna útlána, og námu samtals 5,8 ma. kr. á fyrri helmingi ársins.
- Hreinar fjármunatekjur námu 912 m.kr. á 1H21 samanborið við tap á 1H20 að fjárhæð 1,9 ma. kr.
- Stjórnunarkostnaður hækkæði á milli ára en hækkunina má aðallega rekja til einskiptiskostnaðar í tengslum við skráningu bankans.
2
- Kostnaðarhlutfall lækkáði verulega á milli ára, frá 60,1% á 1H20 í 50,6% á 1H21.
- Hrein virðisrýrnun á 1H21 var jákvæð um 622 m.kr. samanborið við neikvæða virðisrýrnun að fjárhæð 5,9 ma.kr. á 1H20. Jákvæð virðisrýrnun er vegna bjartari horfa í ferðabjónustu en fyrir ári síðan var neikvæð virðisrýrnun tengd upphafi heimsfaraldurs COVID-19.
Lykiltölur
| 2F21 | 2F20 | 1H21 | 1H20 | 2020 | ||
|---|---|---|---|---|---|---|
| REKSTUR | Hagnaður (tap) eftir skatta, m.kr | 5.431 | 1.245 | 9.046 | (131) | 6.755 |
| Arðsemi eigin fjár (eftir skatta) | 11,6% | 2,8% | 9,7% | -0,1% | 3,7% | |
| Vaxtamunur (af heildareignum) | 2,4% | 2,6% | 2,4% | 2,7% | 2,6% | |
| Kostnaðarhlutfall¹ | 49,9% | 57,5% | 50,6% | 60,1% | 54,3% | |
| Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina | -0,42% | 1,03% | -0,12% | 1,28% | 0,91% | |
| 30.6.2021 | 31.3.2021 | 31.12.2020 | 30.9.2020 | 30.6.2020 | ||
| EFNAHAGUR | Útlán til viðskiptavina, m.kr | 1.089.723 | 1.029.415 | 1.006.717 | 970.309 | 933.320 |
| Eignir samtals, m.kr | 1.446.860 | 1.385.235 | 1.344.191 | 1.328.724 | 1.303.256 | |
| Áhættuvegnar eignir, m.kr | 924.375 | 954.712 | 933.521 | 942.339 | 923.133 | |
| Innlán frá viðskiptavinum, m.kr | 765.614 | 698.575 | 679.455 | 698.610 | 681.223 | |
| Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum | 142% | 147% | 148% | 139% | 137% | |
| Hlutfall lána með laskað lánshæf² | 2,1% | 2,4% | 2,9% | 3,3% | 3,6% | |
| LAUSAFÉ | Lausafjárhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar | 187% | 172% | 196% | 136% | 179% |
| Hlutfall stöðugrar fjármögnunar (NSFR), allir gjaldmiðlar | 122% | 119% | 123% | 113% | 117% | |
| EIGID FÉ | Eigið fé samtals, m.kr | 190.355 | 185.471 | 186.204 | 182.509 | 179.722 |
| Eiginfjáhlutfall | 22,9% | 21,9% | 23,0% | 22,2% | 22,2% | |
| Eiginfjáhlutfall þáttar 1 | 20,1% | 19,2% | 20,1% | 19,4% | 19,4% | |
| Vogunarhlutfall | 12,4% | 12,6% | 13,6% | 13,4% | 13,4% |
- Reiknað sem: (stjörnunarkostnaður + framtag í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta - einskiptislöir) / (heildarrekstrartekjur - einskiptislöir)
- Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bökfært virði
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu Íslandsbanka á öðrum ársfjörðungi sem var 5,4 milljarðar en það samsvarar 11,6% arðsemi á ársgrundvelli og er yfir fjárhagslegum markmiðum bankans. Virðisrýrnun á fjörðungnum var jákvæð um 1,1 milljarð króna og er það mikill viðsnúningur frá öðrum ársfjörðungi í fyrra þar sem COVID-19 hafði mikil áhrif. Göður gangur er í þóknunum miðað við sama tímabil í fyrra og kostnaðarhlutfallið er rétt undir 50%. Lánasafnið heldur áfram að stækka og hefur vaxið um rúmlega 8% frá áramótum. Við sjáum að vöxturinn er helstur í húsnæðislánum þar sem góður gangur hefur verið á fasteignamarkaðnum síðustu misseri en einnig hefur verið aukning í útlánum bæði til minni og stærri fyrirtækja.
Það má með sanni segja að fyrri helmingur ársins hafi verið viðburðaríkur hjá bankanum. Hlutabréf Íslandsbanka voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 22. júní. Um var að ræða stærsta frumútboð hlutabréfa sem farið hefur fram hér á landi. Metþáttaka var í hlutafjárútboðinu og margföld umframeftirspurn og er bankinn með mesta fjölda hluthafa allra skráðra félaga á Íslandi.
Afkomuefni
Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda.