AI assistant
Islandsbanki — Earnings Release 2021
Oct 28, 2021
2190_rns_2021-10-28_44273ce9-6104-40bb-9466-6012307a9850.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning

Afkoma priöja
årsfjörnungs
2021
Íslandsbanki hf.
- október 2021
Íslandsbanki – Afkoma þriðja ársfjórðungs 2021
HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU
Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs 2021 (3F21) – besta afkoma í meira en fimm ár
- Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,6 ma. kr. á þriðja ársfjórðungi (3F20: 3,4 ma. kr.). Arðsemi eigin fjár var 15,7% á ársgrundvelli (3F20: 7,4%) sem er yfir fjárhagslegum markmiðum bankans og spám greiningaraðila.
- Hreinar vaxtatekjur námu 8,8 ma. kr. á 3F21 samanborið við 8,3 ma. kr. á 3F20. Hækkunin á milli ára er tilkomin vegna stækkunar á lánasafni bankans.
- Hreinar þóknanatekjur jukust um 20% á milli ára og námu samtals 3,4 ma. kr. á 3F21. Eignastýring, fjárfestingarbanki og verðbréfaviðskipti leiddu hækkunina.
- Bankinn leggur aðaláherslu á kjarnastarfsemi þar sem vaxtatekjur og þóknanatekjur voru samanlagt 92% af rekstrartekjum á 3F21. Þessir tveir tekjuliðir jukust um 9% á milli ára.
- Hreinar fjármunatekjur námu 941 m.kr. á 3F21 samanborið við 255 m.kr. tap á 3F20, breytingin stafar aðallega af jákvæðri virðisbreytingu á fjárfestingu í óskráðum félögum og vegna tekna af skráðum hluta- og skuldabréfum.
- Stjórnunarkostnaður er sambærilegur milli ára að upphæð 5,1 ma. kr. á 3F21.
- Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði á milli ára í 39,4% á 3F21, sem er undir markmiði bankans, úr 46,7% á 3F20 og var það aðallega vegna sterkrar rekstrarafkomu og hagkvæmari reksturs.
- Virðisrýrnun var jákvæð á 3F21 um 1,8 ma. kr. og skýrist helst af batnandi útliti í ferðabjónustu og lækkaði virðisrýrnun á lánum til einstaklinga vegna uppfærðs áhættumatslíkans, en á 3F20 var virðisrýrnun neikvæð um 1,1 ma. kr. vegna áhrifa COVID-19. Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina var -0,64% á ársgrundvelli á 3F21 samanborið við 0,44% á 3F20.
- Útlán til viðskiptavina drógust saman um 0,8% á fjórðungnum og voru 1.081 ma. kr. í lok september þar sem aukning í fasteignalánum hefur dregist saman í kjólfar vaxtahækkana Seðlabanka Íslands. Útlán til viðskiptavina hafa aukist um 7,4% frá árslokum, aðallega vegna umsvifa í húsnæðislánum auk þess sem vöxtur var í lánum til fyrirtækja.
- Í lok uppgjörstímabilsins hafði hlutfall lána með laskað lánshæfi (vergt bókfært virði) lækkað í 2,0% úr 2,1% í lok júní og 2,9% í árslok, aðallega vegna uppgreiðslu lána á stigi 3.
- Innlán frá viðskiptavinum drógust saman um 11 ma. kr. á þriðja ársfjórðungi sem skýrist af uppgjöri vegna sölu bankans. Innlán frá viðskiptavinum hafa aukist um 75 ma. kr. frá árslokum.
- Lausafjárstaða bankans er áfram sterk og öll lausafjárhlutföll vel yfir innri viðmiðum og kröfum eftirlitsaðila.
- Íslandsbanki gaf í september út fyrsta skuldabréf bankans sem telur til víkjandi eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1) að fjárhæð 750 milljónir sænskra króna með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár. Útgáfan ber 475 punkta álag ofan á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum. Töluverð umframeftirspurn var eftir útgáfunni sem seld var til fjárfesta í Skandinavíu og á meginlandi Evrópu.
- Eigið fé bankans nam 197 ma. kr. í lok september og heildareiginfjárhlutfall bankans var 24,7%, að hagnaði fjórðungsins meðtöldum, samanborið við 23,0% í árslok 2020. Eiginfjárhlutfall þáttar 1 var 20,6 samanborið við 23,0% í árslok 2020. Það er vel yfir markmiði bankans sem er 18,3–19,8%. Vogunarhlutfallið var 13,2% í lok september samanborið við 13,6% í árslok 2020 sem telst hátt í alþjóðlegum samanburði.
Íslandsbanki – Afkoma þriðja ársfjörðungs 2021
Helstu atriði í afkomu á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 (9M21) – viðsnúningur frá fyrra ári vegna jákvæðrar virðisrýrnunar
- Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 16,6 ma. kr. á fyrstu níu mánuðum ársins (9M20: 3,2 ma. kr.). Arðsemi eigin fjár var 11,7% á ársgrundvelli samanborið við 2,4% á 9M20.
- Hreinar vaxtatekjur námu samtals 25,4 ma. kr. á 9M21 sem er hækkun um 1,1% á milli ára og skýrist af lægra vaxtaumhverfi á milli tímabila.
- Hreinar þóknanatekjur hækkuðu um 20,1% á milli ára og námu samtals 9,2 ma. kr. á 9M21. Vöxturinn dreifist nokkuð jafnt eftir liðum sem sýnir að tekjurnar aukast á sterkum grunni.
- Hreinar fjármunatekjur námu 1,9 ma. kr. á 9M21 samanborið við tap á 9M20 að fjárhæð 2,2 ma. kr.
- Stjórnunarkostnaður hækkæði á milli ára en hækkunina má aðallega rekja til einskiptiskostnaðar í tengslum við skráningu bankans eða um 663 m.kr. á 1H21, aukins launakostnaðar vegna kjarasamningshækkana og kostnaðar vegna uppsagna.
- Kostnaðarhlutfall lækkæði verulega á milli ára, úr 55,3% á 9M20 í 46,6% á 9M21.
- Hrein virðisrýrnun á 9M21 var jákvæð um 2,4 ma. kr. samanborið við neikvæða virðisrýrnun að fjárhæð 7,0 ma. kr. á 9M20. Jákvæð virðisrýrnun er aðallega vegna bjartari horfa í ferðabjónustu en fyrir ári síðan var neikvæð virðisrýrnun tengd upphafi heimsfaraldurs COVID-19. Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina var -0,30% á ársgrundvelli á 9M21 samanborið við 0,98% á 9M20.
Lykiltölur
| 3F21 | 3F20 | 9M21 | 9M20 | 2020 | ||
|---|---|---|---|---|---|---|
| REKSTUR | Hagnaður eftir skatta, m.kr | 7.587 | 3.361 | 16.633 | 3.230 | 6.755 |
| Arðsemi eigin fjár (eftir skatta) | 15,7% | 7,4% | 11,7% | 2,4% | 3,7% | |
| Vaxtamunur (af heildareignum) | 2,4% | 2,5% | 2,4% | 2,6% | 2,6% | |
| Kostnaðarhlutfall¹ | 39,4% | 46,7% | 46,6% | 55,3% | 54,3% | |
| Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina | (0,64%) | 0,4% | (0,30%) | 1,0% | 0,9% | |
| 30.9.21 | 30.6.21 | 31.3.21 | 31.12.20 | 30.9.20 | ||
| EFNAHAGUR | Útlán til viðskiptavina, m.kr | 1.081.418 | 1.089.723 | 1.029.415 | 1.006.717 | 970.309 |
| Eignir samtals, m.kr | 1.456.372 | 1.446.860 | 1.385.235 | 1.344.191 | 1.328.724 | |
| Áhættuvegnar eignir, m.kr | 917.764 | 924.375 | 954.712 | 933.521 | 942.339 | |
| Innlán frá viðskiptavinum, m.kr | 754.442 | 765.614 | 698.575 | 679.455 | 698.610 | |
| Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum | 143% | 142% | 147% | 148% | 139% | |
| Hlutfall lána með laskað lánshæfi² | 2,0% | 2,1% | 2,4% | 2,9% | 3,3% | |
| - | - | - | - | - | ||
| LAUSAFÉ | Lausafjárhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar | 225% | 187% | 172% | 196% | 136% |
| Hlutfall stöðugrar fjármögnunar (NSFR), allir gjaldmiðlar | 121% | 122% | 119% | 123% | 113% | |
| EIGID FÉ | Eigið fé samtals, m.kr | 197.381 | 190.355 | 185.471 | 186.204 | 182.509 |
| Eiginfjáhrultfall almenns þáttar 1³ | 20,6% | 20,1% | 19,2% | 20,1% | 19,4% | |
| Eiginfjáhrultfall þáttar 1³ | 21,8% | 20,1% | 19,2% | 20,1% | 19,4% | |
| Eiginfjáhrultfall³ | 24,7% | 22,9% | 21,9% | 23,0% | 22,2% | |
| Vogunarhlutfall³ | 13,2% | 12,4% | 12,6% | 13,6% | 13,4% |
- Reiknað sem: (stjórnunarkostnaður + framtag í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta – einskiptislõir) / (heildarrekstrartekjur – einskiptislõir).
- Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði.
- Að meðtöldum hagnaði þriðja ársfjörðungs.
Íslandsbanki – Afkoma þriðja ársfjórðungs 2021
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Afkoma Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi var sú besta í rúmlega fimm ár og nam hagnaður fjórðungsins 7,6 milljörðum króna sem samsvarar 15,7% arðsemi á ársgrundvelli sem er umfram markmið bankans og spár greiningaraðila. Bætt afkoma frá fyrra ári skýrist helst af jákvæðri virðisrýrnun sem nam 1,8 milljarði króna á fjórðungnum en undirliggjandi rekstur var einnig gríðarsterkur. Viðsnúningur virðisrýrnunar er tilkominn vegna bjartari horfa í ferðabjónustu og er hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina áfram á réttri leið. Vaxtatekjur jukust um 6% milli ára í kjólfar aukningar útlána til viðskiptavina á tímabilinu, mest vegna fasteignalána. Hreinar þóknanatekjur jukust um 20% vegna sterks undirliggjandi reksturs þar sem nánast allir starfsþættir stuðla að hækkuninni. Kostnaðarhlutfall var 39,4% sem er undir markmiðum bankans og er tilkomið vegna góðrar tekjumyndunar og hagræðingaraðgerða á undanförnum misserum. Með þessari frammistöðu er Íslandsbanki á góðri leið með að ná 10% arðsemi á ársgrundvelli til lengri tíma litið. Þar að auki var útgáfa víkjandi skuldabréfs að upphæð 750m. kr. sænskra króna á fjórðungnum liður í þeirri vegferð að besta samsetningu efnahagsreiknings bankans.
Mikil viðskipti hafa verið með hlutabréf Íslandsbanka í Nasdaq kauphöllinni frá því að frumútboði bankans lauk í júní. Hluthafar íslandsbanka eru þeir fjölmennustu af þeim fyrirtækjum sem skráð eru í íslensku kauphöllina, mikil viðskipti hafa verið með hlutabréfin og gengi bréfanna haldist sterkt frá skráningu samanborið við önnur félög skráð í íslensku kauphöllina og skráða evrópska banka.
Viðskiptavinir nýttu sér þjónustu bankans í miklum mæli á fjórðungnum var notkun stafrænna lausna meiri en nokkru sinni fyrr. Bankinn tók þátt í útgáfu grænna/blárra skuldabréfa Brims og samfélags skuldabréfs Grunnstoðar, dótturfyrirtækis Háskólans í Reykjavik.
Innleiðing nýs lánakerfis gengur vel og samkvæmt áætlun er stefnt að því að innleiðingu verði lokið fyrir áramót. Þá mun bankinn hafa lokið uppfærslu á öllum grunnkerfum bankans sem gerir okkur enn betur í stakk búin að þjónusta viðskiptavini okkar með stafrænum hætti.
Afkomuefni
Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda.
Íslandsbanki – Afkoma þriðja ársfjörðungs 2021
FJÁRFESTATENGL
Afkomufundur og vefstreymi föstudaginn 29. október 2021
Íslandsbanki mun halda afkomufund/vefstreymi föstudaginn 29. október kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila í höfuðstöðvum bankans, Hagasmára 3, 9.hæð. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á þriðja ársfjörðungi. Fundurinn fer fram á ensku.
Skráning á fundinn fer fram á þessari síðu. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að honum loknum.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:
Ísland +354 800 74 37
Danmörk: +45 354 45 577
Svíþjóð: +46 8 566 42 651
Noregur: +47 235 00 243
Bretland: +44 33 330 00 804
Bandarikin: +1 631 913 1422
Aðgangskóði: 90140657#
Fjárhagsdagatal
Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjørs á neðangreindum dagsetningum
Árshlutauppgjör 4F21 – 10. febrúar 2022
Hluthafafundur – 17. mars 2022
Árshlutauppgjör 1F22 – 5. mái 2022
Árshlutauppgjör 2F22 – 28. júli 2022
Árshlutauppgjör 3F22 – 27. október 2022
Vinsamlega athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Fjárfestaefni
Allt fjárfestaefni mun verða birt á heimasiðu fjárfestatengsla þar sem upplýsingar um fjárhagsdagatal og þögul tímabil er einnig aðgengilegt:
https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl