AI assistant
Islandsbanki — Earnings Release 2017
Feb 14, 2018
2190_rns_2018-02-14_5cb2bfb3-0f63-4bf9-a1ec-8e96b3fed59e.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Islandsbanki hf.: Ársuppgjör 2017
Islandsbanki hf.: Ársuppgjör 2017
HELSTU ATRIÐI Í UPPGJÖRI ÁRSINS 2017
* Hagnaður eftir skatta var 13,2 ma. kr. samanborið við 20,2 ma. kr. árið
2016. Munurinn skýrist aðallega af einskiptistekjum af sölu Borgunar á
hlutum í Visa Europe 2016. Arðsemi eigin fjár var 7,5% á árinu, samanborið
við 10,2% árið 2016.
* Hagnaður af reglulegri starfsemi var 13,8 ma. kr. samanborið við 15,1 ma.
kr.árið 2016.
* Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall
þáttar 1 (CET1) var 10,3% á árinu 2017, samanborið við 10,7% árið 2016.
* Hreinar vaxtatekjur voru 30,0 ma. kr. (2016: ISK 31,8 ma. kr.), sem er 5,7%
lækkun milli ára. Vaxtamunur var 2,9% (2016: 3,1%).
* Hreinar þóknanatekjur voru 13,8 ma. kr. samanborið við 13,7 ma. kr. árið
2016, sem er 0,2% hækkun milli ára.
* Stjórnunarkostnaður var 27 ma. kr., örlítið hærri en árið 2016. Þegar
einskiptiskostnaður er undanskilinn hækkar kostnaður um 4,5% sem þýðir
raunhækkun um 2,7% sé tillit tekið til verðbólgu. Þetta má aðallega rekja
til fjárfestingar í tæknibúnaði þar á meðal Sopra kerfinu sem mun leysa af
hólmi eldri grunnkerfi innlána og greiðslumiðlunar. Höfuðstöðvar bankans
voru sameinaðar í nýjum höfuðstöðvum í Norðurturni í Kópavogi sem hafði
tímabundinn viðbótarkostnað í för með sér.
* Kostnaðarhlutfall var 62,5% (2016: 56,9%), en sértækur bankaskattur og
einskiptiskostnaður eru undanskildir við útreikning kostnaðarhlutfalls.
* Heildar eignir voru 1.036 ma. kr. (sept17: 1,078 ma. kr.). Útlán til
viðskiptavina og lausafjársafn bankans voru samtals 92% af stærð
efnahagsreiknings við lok tímabilsins.
* Útlán til viðskiptavina jukust um 9,8% (67,3 ma. kr.) á árinu og voru 755
ma. kr. í lok árs. Ný útlán voru 199 ma. kr. á árinu og dreifðust vel á
milli viðskiptaeininga bankans.
* Gæði eignasafns bankans halda áfram að batna, en hlutfall lána í vanskilum
umfram 90 daga var 1,0% (sept17: 1,1%).
* Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu á árinu sem er í samræmi við væntingar um
4,6% (27 ma. kr.) og voru 567 ma. kr. í árslok.
* Eiginfjárhlutfall var 24,1% og eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 22,6% í
árslok, samanborið við 22,6% og 22,5% við lok september 2017.
* Lausafjárstaða bankans er sterk og umfram kröfur eftirlitsaðila og innri
viðmið. Við árslok var lausafjárhlutfallið (LCR) 142% (sept17: 183%) og
fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 117% (sept17: 115%).
* Vogunarhlutfall var 16,2% við árslok samanborið við 15,3% við lok sept
2017, sem telst hóflegt bæði í innlendum og erlendum samanburði.
* Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með lánshæfismat frá tveimur
alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. Í janúar 2017 hækkaði Fitch Ratings
mat sitt í BBB/F3 með stöðugum horfum og í október 2017 hækkaði S&P Global
Ratings mat sitt í BBB+/A-2 með stöðugum horfum. Fitch staðfesti matið í
desember 2017.
HELSTU ATRIÐI Á 4. ÁRSFJÓRÐUNGI 2017
* Hagnaður eftir skatta var 3,1 ma. kr. (4F16: 4,6 ma. kr.). Arðsemi eigin
fjár var 6,9% á fjórðungnum, samanborið við 9,0% á 4F16.
* Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall
þáttar 1 (CET1) var 8,1% á fjórðungnum (4Q16: 11,7%).
* Hreinar vaxtatekjur voru 7,3 ma. kr. (4F16: 8,1 ma. kr.) og vaxtamunurinn
var 2,8% (4F16: 3,2%).
* Hreinar þóknanatekjur voru 3,6 ma. kr. (4F16: 3,8 ma. kr.).
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Árið 2017 var tímabil breytinga og uppbyggingar fyrir okkur hjá Íslandsbanka.
Við innleiddum nýtt skipulag, fullkláruðum flutning í nýjar höfuðstöðvar og
endurnýjuðum grunnkerfi bankans. Við héldum áfram að undirbúa bankann fyrir
breytt alþjóðlegt regluverk, tæknilegar áskoranir og að takast á við nýja
keppinauta á markaði.
Þrátt fyrir þessar miklu breytingar gekk rekstur bankans mjög vel á árinu.
Lánasafn bankans óx um 9,8% og námu ný lán 199 milljörðum króna og skilaði
bankinn 13,2 milljarði króna hagnaði eftir skatta með arðsemi af reglulegri
starfsemi upp á 10,3% sem er í samræmi við okkar markmið.
Lánshæfismat bankans hækkaði og stigum við frekari skref í átt að hagstæðari
fjármagnsskipan með fyrstu víkjandi skuldabréfaútgáfu íslensks
fjármálafyrirtækis á erlendum markaði frá árinu 2008.
Bankinn hélt stöðu sinni á árinu sem leiðandi bankastofnun á Íslandi í þjónustu
við viðskiptavini en fimmta árið í röð mældist bankinn hæstur í Íslensku
ánægjuvoginni og í flestum þáttum þjónustukannana á meðal einstaklinga og
fyrirtækja og var jafnframt valinn besti bankinn á Íslandi að mati The Banker.
Við erum spennt að kynna ýmsar nýjungar á komandi misserum sem munu gagnast
viðskiptavinum okkar og treysta stöðu Íslandsbanka sem leiðandi
fjármálafyrirtækis á Íslandi.
FJÁRFESTATENGSL
Símafundur með fjárfestum á ensku
Markaðsaðilum er boðið upp á símafund í dag, 14. febrúar, kl. 9.30 á ensku.
Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans.
Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: [email protected].
Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir
fundinn.
Afkomufundur á íslensku
Í dag, 14. febrúar, kl. 11.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á
opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er
haldinn á 9. hæð höfuðstöðva bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á
veitingar.
Skrá mig á fjárfestafund
Frekari fjárhagsupplýsingar:
Frekari upplýsingar tengdar ársuppgjörinu má finna á vef fjárfestatengsla
Íslandsbanka
Fjárhagsdagatal og þögul tímabil
Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér
Nánari upplýsingar veita
* Fjárfestatengsl - Gunnar Sveinn Magnússon,
[email protected] og í síma 440 4665
* Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir,
[email protected] og í síma 440 4005
Viðhengi
[]
Viðhengi: