Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Earnings Release 2016

May 11, 2016

2190_rns_2016-05-11_0e32417d-bdfd-4ef2-bf95-8a14df938d32.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Islandsbanki hf. : Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2016

Islandsbanki hf. : Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2016

Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2016

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2016 var
staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 11. maí 2016.
Reikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður:

* Hagnaður bankans eftir skatta var 3,5 ma. kr. á fyrstu 3 mánuðum ársins
2016 samanborið við 5,4ma. kr. á sama tímabili 2015. Munurinn  stafar einkum
af hærri tekjum í óreglulegum liðum, þ.e. hrein virðisbreyting útlána og
hærri fjármunatekna, á fyrsta ársfjórðungi 2015.
* Arðsemi eigin fjár var  6,9% samanborið við 11,8% á sama tíma 2015.
* Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 3,6 ma. kr.á fjórðungnum, samanborið
við 4,4, ma. kr. á 1F15 og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað
við 14% eiginfjárhlutfall A var 10,1% samanborið við 15,0% á sama tímabili
2015.
* Hreinar vaxtatekjur voru 7,5 ma. kr. (3M15: 6,2 ma. kr.) sem er  aukning um
22%. Vaxtamunur var 2,9% (3M15: 2,7%).
* Hreinar þóknanatekjur voru 3,1 ma. kr. (3M15: 2,9 ma. kr.) eða  8,3% aukning
milli ára.; þar af var 2,6% aukning hjá móðurfélaginu.
* Kostnaðarhlutfall var 58,3%  (3M15: 55,3%).  Bankaskattur og
einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls.
* Útlán til viðskiptavina jukust um 1,7% eða í 677,1 ma. kr. á fyrsta
ársfjórðungi. Aukningin dreifist vel á mismunandi  útlánaeiningar bankans.
* Heildareignir voru 1.021 ma. kr. (des15:  1.046ma. kr.).
* Innlán frá viðskiptavinum minnkuðu um 8,2% milli ára og voru 544 ma. kr. í
lok tímabilsins, sem var í takt við væntingar tengdum nauðasamningum
slitabúa og greiðslu stöðugleikaframlaga.
* Bankinn gaf út eitt skuldabréf í erlendum gjaldmiðli á tímabilinu, eða 35
milljón dollara skuldabréf.
* Eiginfjárhlutfallið er sterkt, var 29,7% (des15: 30,1%) og eiginfjárhlutfall
A (Tier 1) var 28,1% (des15: 28,3%).
* Lausafjárstaða bankans er sterk og er umfram kröfur eftirlitsaðila og innri
viðmið. Við lok mars 2016 var LCR hlutfallið liquidity coverage ratio) 154%
(des15: 143%) og heildar NSFR hlutfallið var 118% (Des15: 120%).
* Vogunarhlutfall var 18,7% við lok tímabilsins samanborið við 18,1% við lok
árs 2015,og telst hóflegt.
* Hlutfall lána með vanskil umfram 90 daga og virðisrýrnun var 2,1% (des15:
2,2%).
* Í janúar 2016 breytti S&P horfum lánshæfismats bankans í jákvæðar og í apríl
staðfesti Fitch lánshæfismatið BBB-/F2 með stöðugum horfum. Íslandsbanki er
eini íslenski bankinn með lánshæfismat í fjárfestingarflokki frá tveimur
lánshæfismatsfyrirtækjum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

Árið fer vel af stað hjá Íslandsbanka og afkoma er í takt við væntingar
stjórnenda. Við sjáum vöxt í bæði vaxtatekjum og þóknanatekjum. Frá árslokum
2015 hafa útlán bankans aukist um tvö prósent. Lausafjárstaða bankans er mjög
sterk og bankinn því vel í stakk búinn til að taka þátt í fjölbreyttum
verkefnum. Grunnrekstur er áfram sterkur en vel hefur tekist til að einfalda og
efla vöruframboð bankans. Launakostnaður hefur aukist, líkt og hjá öðrum
fyrirtækjum, í kjölfar kjarasamninga og er í takt við launavísitölu.

Nýlega kynnti bankinn niðurfellingu á lántökugjöldum fyrstu kaupenda en þannig
vill bankinn koma til móts við þann hóp sem fer sífellt stækkandi. Um leið var
kynnt netgreiðslumat þar sem hægt er að sækja um greiðslumat með rafrænni
undirskrift. Þetta er hluti af stafrænni vegferð bankans þar sem við viljum
reyna að einfalda húsnæðislánaferlið fyrir viðskiptavini og efla þjónustu okkar.

Í byrjun ársins gaf bankinn út 35 milljóna dollara skuldabréf á hagkvæmum
kjörum. Útgáfan kom í kjölfar þess að horfur á lánshæfismati S&P voru færðar úr
stöðugum í jákvæðar. Jafnframt hefur bankinn verið virkur í útgáfum á víxlum og
sértryggðum skuldabréfum hér heima.

Á haustmánuðum mun Íslandsbanki flytja höfuðstöðvar sínar í Norðurturninn í
Kópavogi. Þar mun sameinast starfsemi sem nú er á fjórum stöðum. Það er því
mikil hagræðing sem fylgir nýjum höfuðstöðvum sem verða nútímalegar og
framsæknar.

Símafundur á ensku

Boðið verður upp á símafund kl. 13.00 á ensku í dag þann 11. maí. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á [email protected]. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

Nánari upplýsingar veita:

* Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  [email protected] og í síma
440 3187.
* Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, [email protected]
og í síma 440 4005.

[HUG#2011643]

Viðhengi: