AI assistant
Sending…
Islandsbanki — Capital/Financing Update 2016
Jan 4, 2016
2190_rns_2016-01-04_d5d04b9a-15f5-4f42-afdd-e9feac75c1fa.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Íslandsbanki
Útgáfuáætlun og útboðsdagatal Íslandsbanka árið 2016 á innlendum markaði
Íslandsbanki birtir hér útgáfuáætlun og útboðsdagsdagatal fyrir árið 2016 fyrir sértryggð skuldabréf og vixla.
Sértryggð skuldabréf
- Áætluð heildarútgáfa markflokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður á bilinu 20-30 milljarðar króna á árinu 2016. Tveir flokkar, ISLA CB 16 og ISLA CBI 16, eru á gjaldaga á árinu og er nettó útgáfa ársins því áætluð á bilinu 13-23 milljarðar króna.
- Stefnt er að því að hafa útboð 11 sinnum á árinu 2016 og má sjá áætlaðar útboðsdagsetningar í töflu neðst í skjalinu. Fjárfestar geta áfram gengið út frá því að bæði verðtryggðir og óverðtryggðir flokkar verði boðnir út á hverjum ársfjórðungi.
- Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi Nasdaq Iceland a.m.k. 1 virkum degi fyrir útboð.
- Við lok árs 2015 var heildarupphæð útistandandi skuldabréfa bankans 51,5 milljarðar króna.
- Markflokkar sértryggðra skuldabréfa eru óverðtryggðu flokkarnir ISLA CB 19 og ISLA CB 23 og verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 22 og ISLA CBI 26. Til greina kemur að bæta við nýjum markflokkum á árinu.
| Flokkur | Tegund | Útgefið magn | Hámarksstærð | Markflokkur |
|---|---|---|---|---|
| ISLA CB 16 | ÓVT | 2,82 ma. kr. | 10 ma. kr. | Án viðskiptavaktar |
| ISLA CB 19 | ÓVT | 5,04 ma. kr. | 10 ma. kr. | Já |
| ISLA CB 23 | ÓVT | 6,88 ma. kr. | 20 ma. kr. | Já |
| ISLA CBI 16 | VTR | 4,00 ma. kr. | 10 ma. kr. | Án viðskiptavaktar |
| ISLA CBI 19 | VTR | 7,7 ma. kr. | 10 ma. kr. | Nei |
| ISLA CBI 20 | VTR | 4,12 ma. kr. | 20 ma. kr. | Nei |
| ISLA CBI 22 | VTR | 3,78 ma. kr. | 20 ma. kr. | Já |
| ISLA CBI 24 | VTR | 9,94 ma. kr. | 10 ma. kr. | Nei |
| ISLA CBI 26 | VTR | 7,24 ma. kr. | 20 ma. kr. | Já |
- Arion banki, Kvika og Landsbankinn eru viðskiptavakar sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka. Víðskiptavakar skuldbinda sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin og endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið, þar til heildarviðskipti viðskiptavaka með sértryggð skuldabréf Íslandsbanka hafa náð 500 m.kr. að nafnvírði þann daginn. Fyrir markflokka gildir að ef útistandandi nafnvírði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæði tilboða vera 60 m.kr. en 80 m.kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að nafnvírði. Fyrir aðra flokka skal lágmarksfjárhæði tilboða vera 20 m.kr. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða skal breytast í samræmi við þann tíma sem eftir er til gjaldaga.
Íslandsbanki
Víxlar
- Íslandsbanki mun áfram gefa út víxla í hverjum mánuði. Ávallt eru boðnir út nýir víxlar en auk þess eru eldri og styttri víxlar reglulega boðnir út samtímis. Útboðum er stillt upp þannig að skráning nýrra víxlaflokka mætir gjalddögum þeirra eldri. Heildarútgáfa víxla er óákvæðin og ræðst af markaðsaðstæðum.
Útboðsdagatal
- Áætlaðar útboðsdagsetningar víxla og sértryggðra skuldabréfa má sjá í töflu hér að neðan.
| Sértryggð skuldabréf | Víxlar |
|---|---|
| 14. janúar | 8. janúar |
| 9. febrúar | 4. febrúar |
| 9. mars | 15. mars |
| 8. apríl | 8. apríl |
| 19. maí | 12. maí |
| 8. júní | 8. júní |
| 14. júlí | |
| 9. ágúst | 9. ágúst |
| 15. september | 8. september |
| 18. október | 6. október |
| 11. nóvember | 17. nóvember |
| 1. desember | 8. desember |
- Íslandsbanki áskilur sér allan rétt til að breyta ofangreindri áætlun þ.m.t. fella niður, fjölga eða breyta útboðs dögum, breyta útgáfufjárhæð og gera aðrar breytingar eins og þörf er á, án fyrirvara. Breytingar verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
More from Islandsbanki
Capital/Financing Update
2026
May 21
Capital/Financing Update
2026
May 21
Capital/Financing Update
2026
May 20
Capital/Financing Update
2026
May 20
Transaction in Own Shares
2026
May 15
Transaction in Own Shares
2026
May 15
Transaction in Own Shares
2026
May 11
Transaction in Own Shares
2026
May 11
Transaction in Own Shares
2026
May 4
Transaction in Own Shares
2026
May 4