AI assistant
Islandsbanki — AGM Information 2021
Mar 18, 2021
2190_rns_2021-03-18_35df44ed-ea24-4707-a12d-a45812aac5a6.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Tillögur til aðalfundar 2021
- mars 2021
Tillögur til aðalfundar 2021
Fimmtudagur 18. mars 2021, kl. 15:00 í höfuðstöðvum bankans, Norðurturni, Hagasmára 3, 201 Kópavogi.
- Tillaga um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2020
Lagt er til að 3,4 milljarðar króna af hagnaði ársins 2020 verði greiddir í að til hluthafa. Greiðslan samsvarar um 50% af hagnaði ársins 2020 og er í samræmi við langtímastefnu bankans um 40-50% að greiðsluhlutfall. Stjórn bankans getur boðað til sérstaks hluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga um greiðslu arðs af hagnaði fyrri rekstrarára kann að vera lögð fram.
- Kosning stjórnar bankans
Lagt er til að eftirtaldir einstaklingar verði kjörnir aðal- og varamenn í stjórn Íslandsbanka hf. fram til næsta aðalfundar.
Aðalmenn:
Hallgrímur Snorrason
Heiðrún Jónsdóttir
Anna Þórðardóttir
Árni Stefánsson
Frosti Ólafsson
Guðrún Þorgeirsdóttir
Jökull H. Úlfsson
Varamenn:
Herdís Gunnarsdóttir
Óskar Jósefsson
Jafnframt er lagt til að Hallgrímur Snorrason verði kjörinn formaður stjórnar.
- Kosning endurskoðenda bankans
Lagt er til að aðalfundur samþykki að Ernst & Young verði kjörri endurskoðunarfélag bankans.
- Tillaga um laun til stjórnar fyrir næsta kjörtímabil
Lagt er til að aðalfundur Íslandsbanka samþykki að laun til stjórnarmanna verði kr. 450.000 á mánuði, laun til stjórnarformanns verði kr. 785.000 á mánuði og laun til varaformanns verði kr. 560.000 á mánuði. Því til viðbótar skuli greiða stjórnarmönnum kr. 225.000 á mánuði fyrir þátttöku í starfi undirnefnda stjórnar en auk þess fái formenn undirnefnda stjórnar greiddar kr. 50.000 á mánuði.
Laun til varamanns í stjórn verði kr. 225.000 fyrir hvern setinn stjórnarfund eða fund með Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands um hæfismat en þó aldrei hærri en laun aðalmanns innan hvers mánaðar. Greiðsla til hvers varamanns skal nema að lágmarki kr. 450.000 á ári.
- Tillaga um starfskjarastefnu bankans
Lagt er til að aðalfundur samþykki uppfærða starfskjarastefnu bankans í samræmi við hjálagða tillögu. Hinar fyrirhuguðu breytingar kveða á um að bankinn skuli tryggja að á hverjum tíma sé í gildi starfsábyrgðartrygging fyrir stjórnarmenn, bankastjóra og lykilstarfsmenn bankans, bæði starfandi og fyrverandi, vegna starfa þeirra í þágu bankans. Bankinn skal tryggja að þeim sé haldið skáðlausum af kröfum sem á þá kunna að verða gerðar eða á þá kunna að falla vegna starfa þeirra fyrir félagið að svo miklu leyti
Tillögur til aðalfundar 2021
sem slík krafa er ekki til komin fyrir saknæma háttsemi hlutaðeigandi sem metin er honum sem ásetningur eða stórfellt gáleysi.
Aðrar breytingar sem lagðar eru til eru minniháttar og fela ekki í sér efnislegar breytingar.
- Önnur mál
Engin.
Tillögur til aðalfundar 2021
Tillaga um starfskjarastefnu til aðalfundar Íslandsbanka hf. 18. mars 2021
1. gr. Markmið
Íslandsbanki leggur áherslu á að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk. Markmið starfskjarastefnunnar er að gera starf hjá bankanum að eftirsóknarverðum kosti fyrir hæft starfsfólk og þar með tryggja samkeppnishæfni bankans, framþróun og viðunandi arðsemi.
Í starfskjarastefnu felast jafnframt markmið um að traust ríki um stjórn og starfsemi bankans, að bankinn sé í forystu á sviði góðra stjórnarháttá og sjálfbærni, að hagsmuna hans sé gætt í hvívetna, sem á ekki síst við um orðspor og trúverðugleika, og að hann starfi í samræmi við þau viðmið, gildi og viðskiptasiðferði sem eðlilegt er að gildi um banka, í heild eða hluta, í opinberri eigu.
Starfskjarastefnan skal stuðla að heilbrigðum rekstri til lengri tíma litið og ekki hvetja til óeðlilegrar áhættusækni. Bankinn leggur áherslu á að starfskjór stjórnenda og annarra starfsmanna séu samkeppnishæf en hófleg og ekki leiðandi. Við ákvörðun um starfskjór skal horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að viðurkenndum jafnréttissjónarmiðum. Í samræmi við 79. gr. a. í lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, skal starfskjarastefna bankans lögð fram til samþykktar á aðalfundi.
2. gr. Eigandastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki
Í eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki frá febrúar 2020 kemur fram að setja skuli starfskjarastefnu sem sé samkeppnishæf, en hófleg og ekki leiðandi.
Samkeppnishæf starfskjarastefna í þessum skilningi felur í sér að bankinn eigi að geta laðað að og haldið hæfu starfsfólki og að bankinn geti verið samkeppnishæfur um starfsfólk þó að laun séu undir hæstu launum í samfélaginu.
Þegar rætt er um að laun skuli ekki vera leiðandi ber að líta til launapróunar í viðu samhengi og taka með í reikninginn áhrif á launapróun almennt. Launakjór fyrirtækja sem eru með því allra hæsta sem tíðkast á vinnumarkaði, en þó ekki hæst, eru talin leiðandi.
Hófsemi felur það í sér að ákvarðanir um laun séu teknar með varkárum hætti og stuðli ekki að miklum eða vaxandi mun í launum. Einnig skal taka eðlilegt tillit til þeirra kjara sem fyrirtæki í meirihluta eigu hins opinbera greiða starfsmönnum sem gegna sambærilegum störfum. Forðast skal miklar launabreytingar á stuttu tímabili. Þess í stað er æskilegra að laun séu hækuð með reglubundnum hætti til samræmis við almenna launapróun. Laun og önnur hlunnindi skulu vera einföld og gagnsæ eins og kostur er.
3. gr. Starfskjaranefnd
Starfskjaranefnd bankans skal skipuð þremur stjórnarmönnum. Hlutverk starfskjaranefndar er að vera leiðbeinandi fyrir stjórn og bankastjóra um starfskjór helstu stjórnenda bankans. Skal nefndin fylgjast með því að starfskjór helstu stjórnenda bankans séu innan ramma starfskjarastefnunnar og gefa stjór skýrslu þar um árlega í tengslum við aðalfund bankans sem skal birta jafnframt með árskýrslu stjórnar hvert ár. Jafnframt skal nefndin fylgjast með þróun launasamninga, starfsmannafjölda og launautgjalda. Stjórn skal setja nefndinni starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um hlutverk hennar og gera opinberar á heimasíðu bankans.
Tillögur til aðalfundar 2021
4. gr. Starfskjör stjórnarmanna
Stjórnarmönnum skal greiða föst mánaðarleg laun í samræmi við ákvörðun aðalfundar ár hvert, svo sem kveðið er á um í 79. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Við ákvörðun um fjárhæð launa skal taka mið af þeim tíma sem stjórnarmenn verja til starfans, þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og afkomu bankans. Starfskjaranefnd gerir rökstudda tillögu til stjórnar um laun stjórnarmanna fyrir komandi starfsár. Stjórn tekur afstöðu til tillögu starfskjaranefndar og gerir endanlega tillögu um laun sem lögð er fyrir aðalfund. Bankinn greiðir jafnframt ferðakostnað vegna starfa stjórnarmanna sem hafa lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins. Óheimilt er að gera starfskjörnarmanna við stjórnarmenn.
5. gr. Starfskjör bankastjóra og stjórnenda
Starfskjör bankastjóra og stjórnenda bankans skulu vera samkeppnishæf en hófleg og ekki leiðandi, sbr. 2. gr. þessarar starfskjarastefnu.
Ekki skal gera samninga við bankastjóra og stjórnendur bankans sem fela í sér starfskjörkagreiðslur, umfram ákvæði ráðningarsamninga, kjarasamninga og skyldur samkvæmt lögum. Samningsbundinn uppsagnarfrestur bankastjóra og stjórnenda skal ekki vera lengri en sex til tólf mánuðir, að teknu tilliti til ábyrgðar og verkefna.
6. gr. Skaðleysi stjórnar, bankastjóra og lykilstarfsmanna
Bankinn skal tryggja að á hverjum tíma sé í gildi starfsábyrgðartrygging fyrir stjórnarmenn, bankastjóra og lykilstarfsmenn bankans, bæði starfandi og fyrverandi, vegna starfa þeirra í þágu bankans. Bankinn skal tryggja að þeim sé haldið skaðlausum af kröfum sem á þá kunna að verða gerðar eða á þá kunna að falla vegna starfa þeirra fyrir félagið að svo miklu leyti sem slík krafa er ekki til komin fyrir saknæma háttsemi hlutaðeigandi sem metin er honum sem ásetningur eða stórfellt gáleysi.
7. gr. Starfskjarastefna dótturfélaga og fleira
Stjórn bankans skal stuðla að því að starfskjarastefnur dótturfélaga hans séu samkeppnishæfar en hóflegar og ekki leiðandi.
Jafnframt skal stjórn stuðla að því að viðmið í eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki, sbr. 2. gr. þessarar starfskjarastefnu, komi þar fram með skýrum hætti.
Bankastjóra er skylt að leggja fyrir stjórn bankans tillögu að starfskjarastefnu dótturfélaga sem og tillögu að stjórnarlaunum.
8. gr. Breytilegir kjaraþættir
Bankinn skal ekki gera eða heimila samninga um kaupauka, þ.e. ekki heimila samninga um starfskjör sem eru skilgreind með árangri og eru ekki þáttur í föstum starfskjörum, þar sem endanleg fjárhæð eða umfang þeirra liggur ekki fyrir með nákvæmum hætti fyrirfram.
Ef stjórn bankans hyggst taka upp slíkt kaupaukakerfi innan samstæðu bankans þarf áður að fá samþykki hluthafafundar.
9. gr. Upplysingagjöf
Bankinn skal gera grein fyrir kjörum stjórnarmanna, kjörum bankastjóra og kjörum hvers og eins framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn í ársskýrslu sinni.
Tillögur til aðalfundar 2021
Starfskjarastefnu þessa skal birta á heimasíðu bankans.
10. gr. Samþykkt starfskjarastefnu og fleira
Starfskjarastefnan skal tekin til afgreiðslu á aðalfundi bankans og borin undir fundinn til samþykktar, synjunar eða breytingar.
Heimilt er að endurskoða starfskjarastefnuna oftar en árlega og skulu breytingar þá lagðar fyrir hluthafafund til samþykktar.
Starfskjarastefnan er leiðbeinandi fyrir bankann og stjórn. Stjórn skal færa til bókar í fundargerðarbók frávik frá starfskjarastefnunni og skulu þau frávik studd greinargóðum rökum. Gera skal grein fyrir frávikum á næsta aðalfundi bankans.