AI assistant
Islandsbanki — AGM Information 2021
Mar 18, 2021
2190_rns_2021-03-18_e391ebb4-c38f-4617-9aaf-9d86e0dd573c.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Adalfundur Íslandsbanka 2020
Åvarp stjörnar ormanns
Ávarp stjórnarformanns
Kæru aðalfundargestir
Árið 2020 var erfitt á margan hátt. Þetta var árið sem við tókumst á við heimsfaraldur, sáum landið meira og minna lokast og glímdum við krefjandi verkefni í atvinnu- og efnahagslífi. Þetta ástand var ókunnugt og við renndum blint í sjóinn, en allir urðu að bregðast hratt við án þess að vita fyllilega hvað væri í vændum. Ólíkt því sem var árið 2008 snerist efnahagsvandinn ekki um skuldir fyrirtækja og heimila heldur um tímabundinn tekjubrest hjá hluta af viðskiptavinum bankans. Sterk gjaldeyrisstaða ríkissjóðs og skynsamleg hagstjórn síðustu ára vó þó á móti samdrætti í hagkerfinu. Atvinnurekstur hafði gengið vel og heimili nutu þess að kaupmáttur hafði aukist mikið. Með ýmsum ráðstöfunum, ekki síst stórtækum efnahagsráðstöfunum stjórnvalda, hefur tekist að koma í veg fyrir stigvaxandi atvinnuleysi, draga úr áhrifum tekjubrestsins og verja hagkerfið í heild sinni fyrir miklum áföllum. Efnahagssamdrátturinn á síðasta ári reyndist minni en reiknað var með í upphafi. Framvindan það sem af er þessu ári bendir einnig til þess að efnahagslífið sé að styrkjast og þjóðlífið að færast nær fyrra horfi. Í nylegri þjóðhagsspá Íslandsbanka er því spáð kröftugum efnahagsbata á næstu misserum.
Íslandsbanki lagði mikla áherslu á að styðja við fyrirtæki og einstaklinga í samræmi við hlutverk hans, að vera hreyflafl til góðra verka. 1.500 heimili og 650 fyrirtæki eru meðal þeirra viðskiptavina bankans sem nýttu sér tímabundin úrræði sem í boði voru um greiðsluhlé og lengingar lána á árinu. Þessu lauk formlega í árslok 2020 en í framhaldi af því hefur bankinn samið við ýmsa viðskiptavini um lengra greiðsluhlé í takt við þarfir þeirra. Hér var
einkum um að ræða fyrirtæki í ferðabjónustu.
Í ljósi mótlætisins vegna heimsfaraldursins verður að telja að rekstur Íslandsbanka hafi gengið vel á liðnu ári og afkoma verið viðunandi. Bankinn skilaði hagnaði sem nam 6,8 milljörðum króna og leggur bankastjórnin til að helmingur hans verði greiddur út í arð til eiganda, íslenska ríkisins, í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans.
Þjónustubreytingar
Bankinn þurfti að grípa til ýmissa ráðstafana vegna samkomutakmarkana samfara Covid-faraldrinum. Óhætt er að segja að faraldurinn hafi flýtt fyrir þróun sem þegar var hafin með rafrænum samskiptum. Viðskiptavinir hafa í auknum mæli nýtt stafrænar lausnir þar sem sóttvarnir gerðu það að verkum að takmarka þurfti að gengi að útibúum. Strax í upphafi faraldursins var lögð áhersla á reglulegt upplýsingaflæði til viðskiptavina bankans sem við teljum hafa skipt skópum. Við erum þakklát viðskiptavinum fyrir þolinmæði þeirra við þessar aðstæður. Stóraukin notkun þeirra á stafrænum lausnum bankans og sú nýjung að bóka sér tíma hjá ráðgjafa hefur breytt bankabjónustu mikið og ljóst að flestir vilja halda áfram á sömu braut. Sérstaklega var hugað að þeim hópi viðskiptavina sem ekki hefur tók á að nýta sér stafrænar lausnir. Til dæmis var boðið upp á símaþjónustu í sérstöku símanúmeri fyrir eldri borgara. Míki leftirspurn var eftir þeirri þjónustu en þúsundir símtala berast í hverjum mánuði í númer eldri borgara. Við munum
halda áfram á þeirri vegferð að einfalda bankabjónustu með stafrænum lausnum en gæta þess á sama tíma að bjóða persónulega þjónustu við stærri ákvarðanir.
Störf stjórnar
Starf stjórnar bankans á liðnu ári hefur óneitanlega litast af heimsfaraldrinum og hafa mun fleiri stjórnar-fundir verið haldnir um fjarfundabúnað en áður. Enda þótt fjarfundir komi ekki að fullu í stað funda augliti til auglits, hefur starf stjórnarinnar gengið vel við þessar breyttu aðstæður. Haldið hefur verið áfram að efla áhættumenningu í bankanum en skoðun og mat á hvers kyns áhættupáttum í rekstri bankans er veigamikill þáttur í starfi stjórnarinnar á hverjum tíma. Stjórnin hefur lagt ríka áherslu á stefnumótun og að vanda sérstaklega til vinnu við undirbúning og gerð fimm ára viðskiptaáætlunar bankans. Sú vinna nýtist vel sem grunnur að gerð skýrslu um mat bankans á eiginfjárþörf hans.
Sjálfbærnimál í brennidepli
Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá þeim góða árangri sem náðist á síðasta ári í innleiðingu á sjálfbærnistefnu Íslandsbanka. Þessi stefna rímar vel við arðsemismarkmið og önnur fjárhagsleg markmið bankans og hefur styrkt bæði rekstur og stöðu bankans í samfélaginu. Góðar horfur eru á að hún
Ávarp stjórnarformanns
styrki líka stöðu hans á fjármálamarkaði. Við vorum stolt af því að vera fyrsti bankinn til að birta sjálf-
bæran fjármálaramma og tókust útgáfur grænna skuldabréfa einkar vel í kjólfarið. Bankinn leitast við
að vera bæði fyrirmynd í samfélaginu og hreyfiafl til
góðra verka en það hlutverk bankans hefur sjaldan
verið jafn mikilvægt og nú þegar viðskiptavinir okkar
kljást við áhrif heimsfaraldurs.
Miðað við umræður og athafnir hér á landi og í
viðskiptalöndum okkar að undanförnu er ég þess
fullviss að sjálf bærnimál munu skipta miklu máli
þegar kemur að áhuga fjárfesta á bankanum og er
ánægjulegt að sjá þann aukna áhuga sem þessum
mikilvæga málaflokki er sýndur.
Skráning hlutafjár
Fjármálaráðherra féltst nýlega á tillögu Bankasýslu
ríkisins um að selja allt að 35% hlut í bankanum.
Almenningur mun því hafa tök á að kaupa hlut
í bankanum en einnig er markmiðið að höfða til
erlendra fagfjárfesta. Stjórninn hefur á undanförnum
vikum unnið með stjórn og starfsfólki Bankasýslu
ríkisins að undirbúningi á skráningu og sölu á hluta
af eignarhlut ríkisins í bankanum, sem stefnt er
að því að ljúka um mitt þetta ár. Það er gott að sjá
hversu faglega hefur verið staðið að þeirri vinnu
og undirbúningi enda er það mikilvægt fyrir ferlið
sjálft og almenning að ferlið sé gagnsætt og traust.
Segja má að stefnt hafi verið að því að skrá hlutafé
bankans í kauphöll frá því bankinn var stofnaður
haustið 2008. Það er tilhlökkunarefni fyrir stjórn
og starfsfólk að sjá þau gömlu áform um sölu og
skráningu verða að veruleika.
Tillögur til aðalfundar
Fyrir þessum fundi liggja tillögur í samræmi við
hlutafélagalög og lög um fjármálafyrirtæki.
Í fyrsta lagi leggur stjórn bankans til að 3,4 milljarðar
króna af hagnaði ársins 2020 verði greiddir í arð til
hluthafa. Greiðslan samsvarar um 50% af hagnaði
ársins 2020 og er í samræmi við langtímastefnu
bankans um 40–50% arðgreiðsluhlutfall.
Í öðru lagi gerir Bankasýsla ríkisins, sem fer með
eignarhald á bankanum, tillögu um að eftirtaldir
verði kjörnir í stjórn:
Stjórnarformaður:
Hallgrímur Snorrason
Aðrir stjórnarmenn:
Anna Þórðardóttir
Árni Stefánsson
Frosti Ólafsson
Guðrún Þorgeirsdóttir
Heiðrún Jónsdóttir og
Jökull H. Úlfsson
Sem varamenn verði kjörin þau:
Herdís Gunnarsdóttir og Óskar Jósefsson
Í þriðja lagi er flutt tillaga þess efnis að Ernst og
Young verði áfram falið að endurskoða reikninga
félagsins.
Í fjórða lagi liggur fyrir tillaga um að laun stjórnar-
manna verði hækkuð um 7% – en þau hafa staðið
óbreytt frá árinu 2018.
Í fimmta lagi liggur fyrir fundinum tillaga að
uppfærðri starfskjarastefnu. Lögð er til sú breyting
að í stefnunni verði kveðið á um að bankinn skuli
tryggja að á hverjum tíma sé í gildi starfsábyrgðar-
trygging fyrir stjórnarmenn, bankastjóra og lykil-
starfsmenn bankans, bæði starfandi og fyrverandi,
vegna starfa þeirra í þágu bankans. Bankinn skal
tryggja að þeim sé haldið skáðlausum af kröfum
sem á þá kunna að verða gerðar eða á þá kunna að
falla vegna starfa þeirra fyrir félagín að svo fremi að
krafan verði ekki rakin til ásetnings eða stórfells
gáleysis. Svipuð ákvæði er nú að finna í starfs-
kjarastefnu margra stórra fyrirtækja og lífeyrissjóða.
Þakkir
Við lok þess starfsárs vil ég þakka samstarfsfólki í
bankastjórninní fyrir ágætt samstarf. Ennfremur
vil ég þakka stjórn og starfsmönnum Bankasýslu
ríkisins fyrir samstarfið á árinu.
Sérstaklega vil ég þakka stjórnendum og starfsfólki
Íslandsbanka fyrir framlag þeirra á því krefjandi ári
sem nú er að baki. Hröð og góð viðbrögð sýna þá
miklu elju sem býr í starfsfólki og stjórnendum á
krefjandi tímum. Það má með sönnu segja að þraut-
seigja og jákvæðni einkenni þennan öfluga hóp sem
sem Íslandsbanki hefur á að skipa.