AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Icelandic Salmon AS

Pre-Annual General Meeting Information Apr 4, 2008

3632_agm-r_2008-04-04_c556eca7-926e-4539-8a32-4a85a302331f.html

Pre-Annual General Meeting Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 257475

Icelandic Group hf. - Boðun hluthafafundar

- Aðalfundur 18. apríl 2008

FUNDARBOÐ Aðalfundur Icelandic Group hf. verður haldinn á Radisson SAS, Hótel Sögu, Sunnusal, Hagatorgi, Reykjavík, föstudaginn 18. apríl nk. og hefst kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins. 2. Tillaga stjórnar um að félagið taki lán með breytirétti, skv. VI. kafla hlutafélagalaga nr. 2/1995. Fjárhæð lánsins skal vera í íslenskum krónum sem samsvari allt að fjárhæð € 41.000.000 á þeim degi sem lánið er tekið. Lánstíminn er 4 ár. Lánsfjárhæðinni ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði samkvæmt skilmálum lánsskjala má breyta í hluti í félaginu við gjalddaga lánsins og fá eigendur skuldaskjalanna einn hlut fyrir hverja krónu. Hlutafé félagsins verður hækkað sem nemur þeirri fjárhæð sem nauðsynlegt er til að mæta breytiréttinum, samanlagt allt að nafnverði kr. 15.000.000.000 og falla hluthafar frá forgangsrétti til áskriftar að hlutum þessum. 3. Tillaga stjórnar um að hluthafafundur veiti stjórn félagsins umboð til að óska eftir afskráningu félagsins úr kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi. 4. Önnur mál. Hluthöfum er sérstaklega bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Ennfremur verður hægt að nálgast þau gögn á vefsíðu félagsins, www.icelandic.is, eða á aðalskrifstofu félagsins frá sama tíma. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn á fundarstað. Reykjavík 4. apríl 2008. Stjórn Icelandic Group hf.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.