Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandic Salmon AS M&A Activity 2008

Feb 20, 2008

3632_rns_2008-02-20_f4ef6997-f8e5-4aba-aecb-899dc66a5998.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 255510

Icelandic Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Icelandic Group selur birgðir og vörumerki Ocean to Ocean í Kanada

Ocean to Ocean, dótturfélag Icelandic USA, hefur gengið frá samningum um sölu á vöruheitum Ocean to Ocean í Canada, viðskiptasamböndum, umbúðum, vörumerkjum Ocean to Ocean Canada og birgðum. Kaupendur eru stjórnendur Ocean to Ocean. Meðal stjórnendanna eru Joe Wineck forstjóri og Lillian Chow aðstoðarforstjóri og eiga þau meirihluta í félaginu sem kaupir eignirnar. Ástand á rækjumörkuðum hefur versnað til muna á síðastliðnum árum. Ocean to Ocean seldi birgðir sínar og vörumerki í Bandaríkjunum í árslok 2007. Sala á Kanada hlutanum gerir Icelandic USA kleift að einbeita sér að sínu sviði sem er fullunnar sjávarafurðir og hefðbundnar bolfiskafurðir. Salan hefur óveruleg áhrif á rekstur og efnahag Icelandic Group en Ocean to Ocean hefur verið rekið með tapi síðastliðin ár. Til framtíðar mun salan hafa jákvæð áhrif á rekstur Icelandic USA. Tilgangur sölunnar er að skerpa áherslur í rekstri Icelandic Group og lækkun skulda. Nánari upplýsingar veitir: Finnbogi A. Baldvinsson forstjóri Icelandic Group S: +49 1723 198 727 Um Icelandic Group Icelandic Group (OMX Nordic Exchange: IG) er alþjóðlegt net fyrirtækja sem starfa hvert á sínum markaði við framleiðslu og sölu sjávarafurða. Á mörgum mörkuðum er félagið þekkt fyrir vörumerki sitt ICELANDIC, sérstaklega innan veitingahúsa og mötuneyta. Félagið er einnig stór birgi smásöluverslana með framleiðslu undir eigin vörumerkjum eða undir vörumerkjum smásölukeðjanna. Starfsmenn Icelandic Group eru um 4.600. Hjá þeim stóra hópi liggur yfirgripsmikil þekking sem spannar allt frá veiðum og frumvinnslu sjávarfangs til vöruþróunar og framleiðslu tilbúinna rétta og þekking á markaði.