AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Icelandic Salmon AS

Earnings Release May 15, 2008

3632_er_2008-05-15_2047c8a1-3593-49e7-908e-714f9c6138da.pdf

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Fréttatilkynning Reykjavík 15. maí 2008

Icelandic Group hf. – 1. ársfjórðungur 2008:

Rekstur á áætlun - rekstrarkostnaður lækkar um 17%

Styrking evru felur í sér €7,5 milljóna gengistap.

Helstu niðurstöður fyrsta ársfjórðungs

  • Vörusala € 321,1 milljónir
  • 11% samdráttur í tekjum að teknu tilliti til gengisáhrifa
  • Hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) € 11,9 milljónir
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) er € 7,3 milljónir
  • Tap € 7,3 milljónir
  • Vaxtaberandi skuldir lækka um €37 milljónir
  • Handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti € 32,9 milljónir
  • Heildareignir € 723 milljónir eiginfjárhlutfall 16,1%
  • Birgðir samstæðunnar lækka um € 43,7 milljónir frá áramótum
  • Heildarskuldir samstæðunnar lækka um € 57,1 milljón frá áramótum

Finnbogi A. Baldvinsson forstjóri Icelandic Group:

Rekstur Icelandic Group hf. var samkvæmt áætlun á fyrsta ársfjórðungi. Það eru vissulega jákvæð teikn, en á móti kemur frávik sem eru fjármagnsliðirnir. Félagið er að vinna á mörgum mörkuðum og gengisþróun hefur mikil áhrif á félagið. Gengistap á ársfjórðungnum nam sjö og hálfri milljón evra en var á sama tíma í fyrra 55 þúsund evrur. Á móti kemur að vaxtaberandi skuldir samstæðunnar lækka um 37 milljónir evra sem er að hluta til vegna styrkingar evrunnar.

Við höfum náð að lækka rekstrarkostnað samsteypunnar umtalsvert eða um 17% þegar bornir eru saman fyrstu ársfjórðungar í fyrra og í ár.

Víkjandi lán sem félagið er að ganga frá gerir það að verkum að við getum óhikað tekist á við þau stóru verkefni sem framundan eru. Ég er þess fullviss að reksturinn mun skila aukinni framlegð þegar líður á árið.

Ársfjórðungayfirlit - lykiltölur
Fjárhæðir í € ´000
1F 2008 4F 2007 3F 2007 2F 2007 1F 2007
Vörusala 321.082 327.784 327.428 344.001 385.161
Kostnaðarverð seldra vara (287.009) (299.355) (293.661) (312.604) (342.927)
Framlegð 34.073 28.429 33.767 31.397 42.234
Aðrar rekstrartekjur 1.417 4.318 1.934 1.230 1.656
Rekstrarkostnaður (28.060) (47.439) (31.712) (33.136) (34.334)
Áhrif hlutdeildarfélaga (105) (70) (274) (11) (43)
Rekstrarhagnaður (-tap) 7.325 (14.762) 3.715 (520) 9.513
Hrein fjármagnsgjöld (15.161) (12.620) (8.781) (1.214) (5.872)
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt (7.836) (27.382) (5.066) (1.734) 3.641
Tekjuskattur 583 (1.609) 2.517 1.650 (1.354)
(Tap) hagnaður tímabilsins (7.253) (28.991) (2.549) (84) 2.287
EBITDA 11.883 1.367 8.506 4.295 14.170
EBITDA hlutfall 3,7% 0,4% 2,6% 1,2% 3,7%
Fimm ára yfirlit - efnahagsreikningur
Fjárhæðir í € ´000 31.3.2008 31.12.2007 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004
Fastafjármunir 348.146 366.146 407.282 275.231 142.400
Veltufjármunir 374.808 429.917 499.468 415.184 279.994
Eignir samtals 722.954 796.063 906.750 690.415 422.394
Eigið fé 116.282 132.330 176.241 116.741 35.759
Langtímaskuldir 182.535 195.442 228.182 142.837 112.860
Skammtímaskuldir 424.137 468.291 502.327 430.837 273.775
Eigið fé og skuldir samtals 722.954 796.063 906.750 690.415 422.394

Rekstrarreikningur fyrsta ársfjórðungs 2008

Reikningsskilaaðferðir

Við gerð þessa árshlutareiknings er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings 2007.

Rekstrarreikningur - lykiltölur
Fjárhæðir í € ´000 1F 2008 1F 2007 Breyting %
Vörusala 321.082 385.161 -16,6%
Kostnaðarverð seldra vara (287.009) (342.927) -16,3%
Framlegð 34.073 42.234 -19,3%
Aðrar rekstrartekjur 1.417 1.656 -14,4%
Rekstrarkostnaður (28.060) (34.334) -18,3%
Áhrif hlutdeildarfélaga (105) (43)
Rekstrarhagnaður (-tap) (EBIT) 7.325 9.513 -23,0%
Hrein fjármagnsgjöld (15.161) (5.872) 158,2%
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt (7.836) 3.641 -315,2%
Tekjuskattur 583 (1.354) -143,1%
(Tap) hagnaður tímabilsins (7.253) 2.287 -417,1%
EBITDA 11.883 14.170 -16,1%
EBITDA hlutfall 3,7% 3,7%
(Tap) hagnaður á hlut (0,0025) 0,0008

Vörusala fjórðungsins nam € 321,1 milljónum samanborið við € 385,2 milljónir á sama tímabili síðasta árs. Lækkun nemur 16,6%. Helstu ástæður samdráttarins eru styrking evru gagnvart öðrum gjaldmiðlum, aflögð starfsemi í OTO, ásamt almennt minni sölu á mörkuðum félagsins vegna efnahagssamdráttar.

Starfsþættir – skipting eftir eðli rekstrar

Sala eftir eðli rekstrar greinist þannig:

Starfsþættir - skipting sölu eftir eðli rekstrar
Fjárhæðir í € ´000
1F 2008 1F 2007 Breyting%
Framleiðslufyrirtæki 262.017 320.050 -18,1%
Sölu- og markaðsfyrirtæki 131.593 150.065 -12,3%
Þjónustu og eignarhaldsfélög 640 4.548 -85,9%
394.250 474.663 -16,9%
Jöfnunarfærslur (73.168) (89.502) -18,2%
Sala samtals 321.082 385.161 -16,6%

Rekstrarhagnaður (EBIT) nam € 7,3 milljónum samanborið við € 9,5 milljónir á sama tímabili síðasta árs.

Hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) á fjórðungnum nam € 11,9 milljónum samanborið við € 14,2 milljónir á sama tímabili síðasta árs.

Hrein fjármagnsgjöld í fjórðungnum námu € 15,2 milljónum samanborið við € 5,9 milljónir á sama tímabili ársins 2007. Gengistap í fjórðungnum nam € 7,5 milljónum samanborið við € 0,1 milljón á sama tímabili síðasta árs.

Tekjufærður tekjuskattur í rekstrarreikningi nemur € 0,6 milljónum sem samsvarar 7,4% tekjuskatti.

Tap fyrsta ársfjórðungs nam € 7,3 milljónum samanborið við € 2,3 milljón hagnað á sama tímabili síðasta árs.

Efnahagsreikningur
Efnahagsreikningur samstæðunnar- lykiltölur
Fjárhæðir í € ´000 31.3.2008 31.12.2007 Breyting %
Fastafjármunir 348.146 366.146 -4,9%
Veltufjámunir 374.808 429.917 -12,8%
Eignir samtals 722.954 796.063 -9,2%
Eigið fé 116.282 132.330 -12,1%
Langtímaskuldir 182.535 195.442 -6,6%
Skammtímaskuldir 424.137 468.291 -9,4%
Eigið fé og skuldir samtals 722.954 796.063 -9,2%

Heildareignir Icelandic Group í lok fjórðungsins námu € 723 milljónum samanborið við €796 milljónir í lok árs 2007.

Fastafjármunir námu € 348,1 milljónum í marslok samanborið við € 366,1 milljón í árslok 2007. Óefnislegar eignir námu € 217,0 milljónum samanborið við € 227,2 milljónir í lok árs 2007.

Veltufjármunir námu € 374,8 milljónum. Þar af eru birgðir € 198,8 milljónir samanborið við € 242,5 milljónir í árslok 2007.

Heildarskuldir í lok tímabilsins námu € 606,7 milljónum samanborið við € 663,7 milljónir í árslok 2007. Nettó skuldir (heildarskuldir að frádregnum veltufjármunum) námu € 231,9 milljón í marslok, samanborið við € 233,8 milljónir í árslok 2007. Vaxtaberandi skuldir námu € 477,6 milljónum samanborið við € 514,5 milljónir í árslok 2007.

Eigið fé í marslok nam € 116,3 milljónum samanborið við € 132,3 milljónir í árslok 2007. Eiginfjárhlutfallið er 16,1% samanborið við 16,6% í árslok 2007.

Sjóðstreymi

Sjóðstreymi - lykiltölur
Fjárhæðir í € ´000 2008 2007 Breyting %
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 32.926 10.722 207%
Handbært fé frá rekstri 26.968 3.374 699%
Fjárfestingarhreyfingar (7.644) (2.381) -221%
Fjármögnunarhreyfingar (19.478) 8.627 -326%
Breyting handbærs fjár (154) 9.620 -102%

Handbært fé frá rekstri fyrir greiðslu skatta og vaxta nam € 32,9 milljónum samanborið við € 10,7 milljónir á sama tímabili síðasta árs. Að teknu tilliti til greiðslu vaxta og tekjuskatts nam handbært fé til rekstrar € 27,0 milljónum en á sama tímabili síðasta árs nam handbært fé frá rekstri € 3,4 milljónum. Hreinar fjárfestingar námu € 7,6 milljónum samanborið við € 2,4 milljónir á sama tímabili síðasta árs. Fjármögnunarhreyfingar námu € 19,5 milljónum en á fyrsta ársfjórðungi síðsta árs nam fjárhæðin € 8,6 milljónum. Handbært fé í marslok nam € 26,7 milljónum.

Atburðir eftir fyrsta ársfjórðung 2008

Icelandic Group óskar eftir afskráningu úr kauphöll OMX

Í framhaldi af aðalfundi Icelandic Group hf. fór stjórn félagsins þess á leit við NASDAQ OMX Nordic Exchange á Íslandi að hlutir félagsins verði teknir úr viðskiptum af aðalmarkaði NASDAQ OMX ICE.

Lokun verksmiðju Coldwater i Redditch

Coldwater Seafood hefur náð samkomulagi við starfsmenn Redditch verksmiðjunnar og verkalýðsfélög á svæðinu, um að loka verksmiðjunni eftir undangenginn 90 daga samningaferil sem hófst í byrjun mars. Náðst hefur samkomulag við starfsmenn um uppsaganarákvæði og verður verksmiðjunni lokað þann 6. júní 2008. Framleiðsla tilbúinna rétta verður flutt í verksmiðjur Coldwater í Grimsby. Áætlun um flutning á framleiðslunni er í vinnslu ásamt undirbúningi að lokun Redditch verksmiðjunnar.

Lán með breytirétti.

Á aðalfundi félagsins var samþykkt tillaga stjórnar um að félagið taki lán með breytirétti, skv. VI. kafla hlutafélagalaga nr. 2/1995. Fjárhæð lánsins er í íslenskum krónum en samsvarar allt að € 41.000.000 á þeim degi sem lánið verður tekið. Lánstíminn er 4 ár. Lánsfjárhæðinni ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði samkvæmt skilmálum lánsskjala má breyta í hluti í félaginu við gjalddaga lánsins og fá eigendur skuldaskjalanna einn hlut fyrir hverja krónu. Hlutafé félagsins verður hækkað sem nemur þeirri fjárhæð sem nauðsynlegt er til að mæta breytiréttinum, samanlagt allt að nafnverði kr. 15.000.000.000 og féllu hluthafar frá forgangsrétti.

Samþykkt árshlutareiknings

Stjórn Icelandic Group hf. samþykkti árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2008 á stjórnarfundi .15. maí 2008.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila

Föstudaginn 16. maí verður haldinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila. Fundurinn fer fram í húsnæði félagsins að Borgartúni 27 (fyrstu hæð) Reykjavík og hefst kl. 8:30. Á fundinum munu stjórnendur félagsins kynna árshlutauppgjörið. Hægt verður að nálgast kynninguna á vefsvæði félagsins, www.icelandic.is, og á vefsvæði OMX Nordic Exchange á Íslandi (www.omxgroup.com/omxcorp/) að fundi loknum.

Birtingaráætlun 2008

Annar ársfjórðungur 2008 vika 33 2008
Þriðji ársfjórðungur 2008 vika 46 2008
Ársuppgjör 2008 vika 10 2009

Birtingaráætlun er einnig að finna á vefsíðu Icelandic Group, www.icelandic.is.

Fréttatilkynningar

Ef óskað er eftir að fá sendar fréttatilkynningar Icelandic Group í tölvupósti er hægt að skrá sig á eftirfarandi síðu: http://icelandic.is/index.aspx?GroupId=84

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir:

Finnbogi Baldvinsson, forstjóri S: +49 1723 198 727

Reykjavík, 15. maí 2008 Icelandic Group

Um Icelandic Group

Icelandic Group (OMX Nordic Exchange: IG) er alþjóðlegt net fyrirtækja sem starfa hvert á sínum markaði við framleiðslu og sölu sjávarafurða á alþjóðlegum mörkuðum. Á mörgum mörkuðum er félagið þekkt fyrir vörumerki sitt ICELANDIC, sérstaklega innan veitingahúsa og mötuneyta. Félagið er einnig stór birgi smásöluverslana með framleiðslu undir eigin vörumerkjum eða undir vörumerkjum smásölukeðjanna. Starfsmenn Icelandic Group eru um 4.600. Hjá þeim stóra hópi liggur yfirgripsmikil þekking sem spannar allt frá veiðum og frumvinnslu sjávarfangs til vöruþróunar og framleiðslu tilbúinna rétta og þekking á markaði.

Fimm ára yfirlit - rekstrarreikningur
Fjárhæðir í € ´000
1F 2008 2007 2006 2005 2004
Vörusala 321.082 1.384.374 1.471.316 1.200.257 802.624
Kostnaðarverð seldra vara (287.009) (1.248.547) (1.316.606) (1.084.702) (719.586)
Framlegð 34.073 135.827 154.710 115.555 83.038
Aðrar rekstrartekjur 1.417 9.138 10.587 4.761 5.811
Annar rekstrarkostnaður (28.060) (146.621) (160.533) (118.057) (66.156)
Áhrif hlutdeildarfélaga (105) (398) 700 154 (702)
(Rekstrartap) - hagnaður 7.325 (2.054) 5.464 2.413 21.991
Hrein fjármagnsgjöld (15.161) (28.487) (24.005) (21.740) (10.449)
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt (7.836) (30.541) (18.541) (19.327) 11.542
Tekjuskattur 583 1.204 7.118 4.235 (4.672)
(Tap) hagnaður (7.253) (29.337) (11.423) (15.092) 6.870
EBITDA 11.883 28.338 36.946 16.222 28.941
EBITDA hlutfall 3,7% 2,0% 2,5% 1,4% 3,6%

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.