AI assistant
Icelandair Group — M&A Activity 2026
Apr 1, 2026
2197_rns_2026-04-01_4cca9888-95b5-467e-84de-c9281150cb2c.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Icelandair undirritar viljayfirlýsingu um kaup á 49% hlut í Fly Play Europe á Möltu
Icelandair undirritar viljayfirlýsingu um kaup á 49% hlut í Fly Play Europe á Möltu
Icelandair hefur undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða.
Með kaupum á hlut í félaginu skapast aukin tækifæri fyrir leiguflug, meðal annars vegna víðtækari loftferða- og tvísköttunarsamninga sem maltneska félagið hefur aðgang að. Jafnframt skapast tækifæri til aðgreiningar á flugflota félagsins þar sem flugvélar sem eru hugsaðar til lengri tíma í farþegaleiðakerfi Icelandair væru reknar á Íslandi, en aðrar vélar á Möltu. Með slíkri aðgreiningu verður rekstur Icelandair einfaldari og skilvirkari.
Viljayfirlýsingin er grundvöllur frekari viðræðna. Möguleg viðskipti, komi til þeirra, yrðu háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlegri samningsgerð, samkomulagi veðtryggðra kröfuhafa þrotabús Fly Play hf. við skiptastjóra þrotabúsins og viðeigandi samþykktum, þar á meðal frá stjórnvöldum eftir því sem við á.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Flestöll flugfélög á okkar mörkuðum, sérstaklega í Evrópu, reka fleiri en eitt flugrekstrarleyfi sem gefur þeim aukinn sveigjanleika í sínum rekstri. Nái viðskiptin fram að ganga myndi það á sama hátt auka sveigjanleika og samkeppnishæfni Icelandair. Að hafa aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu auk hins íslenska getur opnað ný og spennandi viðskiptatækifæri og á sama tíma stuðlað að einföldun á starfsemi okkar hér á Íslandi, sem skapar talsverð hagræðingartækifæri.“
Nánari upplýsingar
Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: [email protected]
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: [email protected]