Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Interim / Quarterly Report 2017

Apr 27, 2017

2197_rns_2017-04-27_3462749b-f5de-4649-95a1-331d82e31807.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

AFKOMA Í TAKT VÍÐ VÆNTINGAR

  • Heildartekjur jukust um 5% milli ára og námu 222,4 milljónum USD.
  • EBITDA neikvæð um 16,2 milljónir USD.
  • Aframhaldaandi prýstingur á meðalfargjöld.
  • 14% fjölgun farþega í millilandaflugi og sætanýting góð. Farþegaaukning var mest á markaðnum yfir N-Atlantshafið eða 40%.
  • Tekjur af hótelgistingu nær tvöfaldast milli ára, námu 10,4 milljónum USD samanborið við 5,4 milljónir USD á fyrsta ársfjörðungi 2016.
  • Eiginfjárhlutfall var 36% í lok mars.
  • Handbært fé og skammtímaverðbréf nema 322,8 milljónum USD og eru 42,3 milljónir USD umfram vaxtaberandi skuldir.
  • EBITDA spá hækkuð í 145-155 milljónir USD.
Púsundir USD 1. ársfj. 2017 1. ársfj. 2016 Breyt. % Breyt. 12 mán. 2016
Rekstrarreikningar
Heildartekjur 222.372 211.837 10.535 5% 1.285.574
EBITDAR -7.890 10.160 -18.050 - 254.960
EBITDA -16.241 1.754 -17.995 - 219.845
EBIT -42.128 -20.014 -22.114 - 118.437
EBT -43.602 -21.284 -22.318 - 120.111
Tap tímabilsins -34.895 -16.996 -17.899 - 89.068
Efnahagsreikningar
Heildareignir 1.415.728 1.152.537 263.191 23% 1.292.493
Eigið fé 505.054 421.742 83.312 20% 568.213
Vaxtaberandi skuldir 280.531 62.928 217.603 - 242.382
Handbært fé og markaðsverðbréf 322.850 301.684 21.166 7% 250.125
Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir 42.319 238.756 -196.437 -82% 7.743
Sjóðstregmi
Veltufe til/frá rektí -15.555 3.023 -18.578 - 210.801
Handbært fé frá rektí 125.497 148.792 -23.295 -16% 209.024
Fjárfestingahreyfingar -75.782 -99.785 24.003 -24% -291.759
Fjármögnunarhreyfingar 23.520 -3.311 26.831 - 113.643
Handbært fé í lok tímabils 300.172 241.816 58.356 24% 226.889
Lykiltölur
Afkoma USD cent á hlut -0,71 -0,34 -0,37 - 1,79
Innra virði hlutafjár 12,65 10,39 2,26 22% 13,99
Eiginfjárhlutfall 36% 37% -1,3 %-stig - 44%
Veltufjárhlutfall 0,88 0,74 0,14 19% 0,92
Fjárfestingar, púsundir USD 47.280 56.718 -9.438 -17% 243.397
Flutningatekjur % af heildartekjum 67,0% 67,0% 0,1 %-stig - 73,7%
EBITDAR hlutfall -3,5% 4,8% -8,3 %-stig - 19,8%
EBITDA hlutfall -7,3% 0,8% -8,1 %-stig - 17,1%
Hlutabréf íslenskar krónur
Hæsta verð á tímabili 23,53 38,35 -14,82 -39% 38,90
Lægsta verð á tímabili 13,75 32,65 -18,90 -58% 22,95
Lokaverð tímabils 13,91 37,55 -23,64 -63% 23,10
Markaðsvirði í lok tímabils (milljónir) 69.550 187.750 -118.200 -63% 115.500

  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning frá Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON, FORSTJÓRI

Afkoma fyrsta ársfjórðungs er í samræmi við afkomuáætlun sem við kynntum í byrjun febrúar. Við höfum gripið til margvíslegra aðgerða í rekstrinum til að ná fram hagræðingu og auknum tekjum. Vinna við þær aðgerðir gengur vel og í samræmi við áætlanir okkar. Við erum þess fullviss að við munum ná því markmiði sem við kynntum; að bæta afkomu félagsins um 30 milljónir USD á ársgrundvelli, þegar aðgerðirnar verða komnar að fullu til framkvæmda í ársbyrjun 2018.

Breyting á afkomumilli ára skýrist aðallega af lægri meðalverðum í millilandaflugi. Pá hefur gengispróun verið félaginu óhagstæð. Tekjur af hótelgistingu aukast töluvert milli ára og nýtingin hefur aldrei verið betri á fyrsta ársfjórðungi þrátt fyrir framboðsaukningu.

Bókunarflæði er sterkt en vegna þrýstings á meðalfargjöld gerum við ráð fyrir krefjandi rekstrarskilyrðum í flugrekstri á árinu. Engu að síður gerum við ráð fyrir höflegum vexti; spáð er áframhaldandi fjölgun ferðamanna til Íslands, nýjum áfangastöðum hefur verið bætt við, horfur í hótelrekstri eru góðar og frakt starfsemi félagsins gengur vel. Fjárhagsstaða félagsins er mjög sterk og það er því vel í stakk búið til að takast á við sveiflur og nýta þau tækifæri sem gefast á mörkuðum. Frá síðustu afkomuspá hafa ytri aðstæður í rekstri félagsins batnað og uppfærum við því EBITDA spá okkar fyrir árið í 145-155 milljónir USD.


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

f

FLUTNINGATÕLUR

  • Farþegar Icelandair voru 658 þúsund og fjölgaði um 14%.
  • Sætanyting í millilandaflugi var 77,5% og lækkaði um 1,8% milli ára.
  • Herbergjanýting á hótelum félagsins var góð, 80,1% og jókst um 5,0 prosentustig milli ára.
1. ársfj. 2017 1. ársfj. 2016 % br.
ICELANDAIR
Farpégafjöldi ('000) 657,5 575,0 14%
Sætanyting (%) 77,5 79,4 -1,8 %-stig
Framboðnir sætiskilómetrar ('000.000) 2.566,6 2.140,2 20%
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Farpégafjöldi ('000) 71,8 67,0 7%
Sætanyting (%) 64,1 71,9 -7,8 %-stig
Framboðnir sætiskilómetrar ('000.000) 38,8 30,9 26%
LEIGUFLUG
Flotanyting (%) 96,3 97,8 -1,5 %-stig
Seldir blokktímar 6.132 6.173 -1%
FRAKTFLUTNINGAR
Seldir tonn kilómetrar ('000) 24.927 26.510 -6%
HÓTEL
Framboðnar gistinætur 80.730 71.435 13%
Seldar gistinætur 64.657 53.671 20%
Herbergjanýting (%) 80,1 75,1 5,0 %-stig

Framboð Icelandair jókst um 20% á fyrsta ársfjörðungi. Farþegar voru 658 þúsund og fjölgaði um 14% samanborið við fyrsta ársfjörðung á síðasta ári. Farþegaaukning var mest á markaðnum yfir N-Atlantshafið eða 40%. Aukningin á ferðamannamarkaðnum til Íslands nam 6% en sá markaður var einnig stærsti markaður félagsins í fjörðungnum með 45% af heildarfarþegafjölda. Fjöldi farþega á heimamarkaðnum frá Íslandi dróst saman um 12% á milli ára. Sætanyting var 77,5% og lækkaði um 1,8 prosentustig á milli ára.

Farpégar Flugfélags Íslands voru um 72 þúsund á fjörðungnum og fjölgaði um 7% miðað við síðasta ár. Framboð var 26% meira en á sama tímabili í fyrra og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í mars 2016. Sætanyting í fjörðungnum nam 64,1%. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 1% á milli ára. Flutt frakt dróst saman um 6% frá fyrra ári. Skýrist það af sjómannaverkfalli á Íslandi í upphafi ársins. Fjöldi seldra gistinátta jókst um 20% á milli ára, herbergjanýting var 80,1% og jókst um 5,0 prosentustig.

PRÓUN GJALDMIDLA

Uppgjørsmynt Icelandair Group er USD, en þar sem félagiið starfar og selur þjónustu viða um heim þá hefur þróun annarra gjaldmiðla gagnvart USD tóluverð áhrif á afkomu félagsins. Á fyrsta ársfjörðungi 2017 veiktist USD gagnvart ISK en styrktist gagnvart öðrum helstu viðskiptamyntum félagsins samanborið við fyrsta ársfjörðung 2016. Pannig er ISK á fyrsta ársfjörðungi nú 15% sterkari gagnvart USD en EUR 16% veikari. Tekjur á Q1 2017 eru 5% hærri en á sama tíma árið 2016. Á föstu gengi hækka tekjurnar um 6% milli ára.


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

| Mynt | Meðalgengi 1. ársfj. 17 | Breyting frá 1. ársfj.16 | Lokagengi 31.03 17 | Breyting frá 31.0316 |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| ISK | 0,009 | 15% | 0,009 | 9% |
| EUR | 1,065 | -16% | 1,069 | -14% |
| GBP | 1,238 | -25% | 1,252 | -20% |
| CAD | 0,756 | -10% | 0,750 | -11% |
| DKK | 0,143 | -16% | 0,144 | -14% |
| NOK | 0,119 | -11% | 0,116 | -12% |
| SEK | 0,112 | -17% | 0,112 | -17% |

REKSTUR FYRSTA ÁRSFJÓRDUNGS

| Púsundir USD | 1. ársfj. 17 | 1. ársfj.16 | breyting |
| --- | --- | --- | --- |
| EBITDAR | -7.890 | 10.160 | -18.050 |
| EBITDA | -16.241 | 1.754 | -17.995 |
| EBIT | -42.128 | -20.014 | -22.114 |
| EBT | -43.602 | -21.284 | -22.318 |
| Tap tímabilsins | -34.895 | -16.996 | -17.899 |
| EBITDAR % | -3,5% | 4,8% | -8,3 %-stig |
| EBITDA % | -7,3% | 0,8% | -8,1 %-stig |

Í byrjun febrúar 2017 sendi félagið frá sér tilkynningu þar sem fram kom að gert væri ráð fyrir lakari afkomu á árinu 2017 en á árinu 2016. Þetta endurspæglast í afkomu fyrsta ársfjórðungs, þar sem EBITDA var neikvæð um 16,2 milljónir USD. EBITDA hlutfall var neikvætt um 7,3% en var jákvætt um 0,8% á sama tímabili á síðasta ári. Versnandi afkomu má helst rekja til lækkun meðalfargjalda en á fyrsta ársfjórðungi lækka meðalfargjöld um 13% á milli ára. Lækkunin er mest á markaðnum milli N-Ameríku og Evrópu. Gengisþróun veldur jafnframt versnandi afkomu milli ára og sjómannaverkfall á Íslandi fyrstu 2 mánuði ársins hafði neikvæð áhrif á fraktstarfsemi félagsins. Útflutningur dróst saman um 18% á milli ára á tímabilinu.

Fjöldi ferðamanna til Íslands jókst mikið á milli ára eða um 54%. Það hafði góð áhrif á afkomu hótela félagsins, en fjöldi seldra gistinötta jókst um 20% frá fyrra ári og meðalverð hverrar gistinætur hækkaði samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Ferðamannastraumurinn hafði jákvæð áhrif á tekjur af annarri ferðatengdri þjónustu félagsins, en mikil styrking krónunnar vegur þar á móti þar sem kostnaðarhlutföll hækka. Önnur starfsemi samstæðunnar gekk vel á tímabilinu.

TEKJUR

  • Heildartekur voru 5% hærri en á fyrsta ársfjórðungi 2016.
  • Farpegatekjur jukust um 4% á milli ára.

| Púsundir USD | 1. ársfj. 17 | 1. ársfj.16 | Breyting | % breyting | % af tekjum |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Flutningatekjur: | 149.056 | 141.858 | 7.198 | 5% | 67% |
| Farpégaflug | 136.496 | 130.829 | 5.667 | 4% | 61% |
| Vöru- og póstflutningar | 12.560 | 11.029 | 1.531 | 14% | 6% |
| Flugvéla- og áhafnaleiga | 20.627 | 26.337 | -5.710 | -22% | 9% |
| Aðrar rekstrartekur | 52.689 | 43.642 | 9.047 | 21% | 24% |
| Samtals | 222.372 | 211.837 | 10.535 | 5% | 100% |

Heildartekur jukust um 5% á milli ára en tekjuaukningin á föstu gengi er 6%. Flutningatekjur jukust um 7,2 milljónir USD eða um 5% á milli ára. Tekjur af flugvéla- og áhafnaleigu drógust saman um 6,0 milljónir


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

USD eða 22%. Aðrar rekstrartekjur námu 52,7 milljónum USD og jukust um 9,0 milljónir USD eða um 21% miðað við fyrsta ársfjörðung 2016. Skýrist það að mestu leyti af auknum tekjum af ferðabjónustu og hótelgistingu. Tekjur af hótelgistingu nær tvöfõlduðust á milli ára, voru 5,4 milljónir USD á fyrsta ársfjörðungi síðasta árs samanborið við 10,4 milljónir USD í ár. Bæði hefur herbergjanýting aukist tõluvert á milli ára og eins hefur náðst góður árangur í að hækka meðalverð seldra gistinótta. Afgreiðslu- og þjónustutekjur af flugfrakt lækkuðu á milli ára um 3,3 milljónir USD eða 45%. Frá og með 1. júní 2016 var hluti af afgreiðslu- og þjónustutekjum af flugfrakt skilgreint sem frakttekjur og skýrir það lækkunina.

Púsundir USD 1. ársfj. ‘17 1. ársfj. ‘16 breyting % breyting
Vörusala á hótelum, flugvöllum og flugvélum 21.570 14.767 6.803 46%
Tekjur af ferðabjónustu 19.803 16.303 3.500 21%
Afgreiðslu- og þjónustutekjur af flugfrakt 3.998 7.280 -3.282 -45%
Seld viðhaldsbjónusta 652 371 281 76%
Aðrar rekstrartekjur 6.666 4.921 1.745 35%
Samtals 52.689 43.642 9.047 21%

KOSTNAÐUR

  • Heildarkostnaður nam 238,6 milljónum USD.
  • Helstu skýringar á auknum kostnaði er aukið umfang og styrking íslensku krónunnar.
Púsundir USD 1. ársfj. ‘17 1. ársfj. ‘16 breyting % breyting % af kostn.
Laun og annar starfsmannakostnaður 86.261 70.832 15.429 22% 36%
Flugtengdur kostnaður 81.546 80.136 1.410 2% 34%
Annar rekstrarkostnaður 70.806 59.115 11.691 20% 30%
Samtals 238.613 210.083 28.530 14% 100%

Laun, launatengd gjöld og starfsmannakostnaður námu 86,3 milljónum USD samanborið við 70,8 milljónir USD á fyrsta fjörðungi síðasta árs. Skýrist hækkunin af auknu umfangi og styrkingu krónunnar á móti USD á samanburðartímabilinu, en stærstur hluti launakostnaðar félagsins er í ISK. Jákvæðar gengisvarnir sem koma til lækkunar á launakostnaði fjörðungsins nema USD 4,1 milljón USD.

Púsundir USD 1. ársfj. ‘17 1. ársfj. ‘16 breyting % breyting % af kostn.
Eldsneytiskostnaður 37.857 34.124 3.733 11% 46%
Flugvélaleiga 5.575 5.418 157 3% 7%
Afgreiðslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld 20.286 19.643 643 3% 25%
Viðhaldskostnaður flugvéla 17.828 20.951 -3.123 -15% 22%
Samtals 81.546 80.136 1.410 2% 100%

Eldsneytiskostnaður nam samtals 37,9 milljónum USD og jókst um 3,7 milljónir USD eða 11% frá sama tíma í fyrra. Uppgjörsverð félagsins að teknu tilliti til varna á fjörðungnum var að meðaltali 443 USD/tonn, sem er 9% lækkun á milli ára. Yfirlit yfir stöðu eldsneytisvarna félagsins í lok mars er dregið fram í kaflanum „Horfur í rekstri Icelandair Group hf. og afkomuspá“ hér á eftir. Flugvélaleiga nam 5,6 milljónum USD og hækkaði lítillega í samanburði við fyrsta ársfjörðung 2016. Afgreiðslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld jukust lítillega eða um 3% þrátt fyrir að framleiðslan hafi aukist umfang það. Skýrist það að mestu af styrkingu USD gagnvart Evrópumyntum. Viðhaldskostnaður nam 17,8 milljónum USD og lækkaði um 3,1 milljón USD.

Annar rekstrarkostnaður nam 70,8 milljónum USD og jókst um 11,7 milljónir USD á milli ára. Bókunargjöld, kreditkortapóknun og umboðslaun aukast ekki í samræmi við aukið umfang á háðinn, skýring þess er að bókanir berast nú seinna og nær brottfôr en áður. Aðkeypt þjónusta í ferðabjónustu


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

eykst mikið vegna aukins umfangs, en einnig hefur styrking krónunnar áhrif til hækkunar. Í tóflunni hér á eftir má sjá niðurbrot á helstu liðum og þróun milli ára.

Púsundir USD 1. ársfj. '17 1. ársfj. '16 breyting % breyting
Rekstrarkostn. fasteigna og innréttinga 6,509 5,685 824 14%
Samskiptakostnaður 5,979 4,889 1,090 22%
Auglýsingakostnaður 8,490 7,520 970 13%
Bókunargj., kreditkortapókn. og umboðslaun 16,098 15,364 734 5%
Kostnaðarverð seldra vara 5,871 4,848 1,023 21%
Þjónusta við farþega og hótelgesti 6,186 5,340 846 16%
Aðkeypt þjónusta í ferðabjónustu 12,717 8,312 4,405 53%
Annar rekstrarkostnaður 8,956 7,157 1,799 25%
Samtals 70,806 59,115 11,691 20%

FJÁRMAGNSLIDIR

  • Gengisáhrif voru jákvæð á tímabilinu.
Púsundir USD 1. ársfj. '17 1. ársfj. '16 breyting % breyting
Fjármagnstekjur 612 720 -108 -15%
Fjármagnsgjöld -3.410 -1.128 -2.282 -
Gengisáhrif 854 -917 1.771 -
Samtals -1.944 -1.325 -619 -

Fjármagnsgjöld á fyrsta ársfjörðungi námu 3,4 milljónum USD samanborið við 1,1 milljón USD á fyrsta fjörðungi síðasta árs. Aukin fjármagnsgjöld skýrast af hækkun vaxtaberandi skulda. Gengisáhrif á fjörðungnum voru jákvæð að fjárhæð 0,9 milljónir USD, en voru neikvæð að fjárhæð 0,9 milljónum USD á sama tímabili árið 2016.

EFNAHAGUR OG FJÁRHAGSLEG STADA

  • Heildareignir námu 1,4 milljörðum USD í lok fyrsta ársfjörðungs.
  • Eiginfjárhlutfall var 36%.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 280,5 milljónum USD.
Púsundir USD 31.03.2017 31.12.2016 Breyting
Heildareignir 1.415.728 1.292.493 123.235
Rekstrarfjármunir 620.707 602.615 18.092
Handbært fé og markaðsverðbréf 322.850 250.125 72.725
Eigið fé 505.054 568.213 -63.159
Vaxtaberandi skuldir 280.531 242.382 38.149
Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir 42.319 7.743 -34.576
Eiginfjárhlutfall 36% 44% -8 ppt
Veltufjárhlutfall 0,88 0,92 -4%

Varanlegir rekstrarfjármunir námu 620,7 milljónum USD og jukust um 18,1 milljón USD frá ársbyrjun. Sjá nánari umfjöllun um fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum undir kaflanum um fjárfestingar hér á eftir. Í lok fjörðungsins voru 48 flugvélar í flugflotanum, þar af voru 40 í eigu félagsins. Fokker F-50 vélar félagsins voru seldar 21. apríl 2017. Í tóflunni hér á eftir er yfirlit yfir flota félagsins í lok fyrsta ársfjörðungs.


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

Flugvélagerð Icelandair Cargo Loftleiðir Flugfél. Íslands Flugfloti 31.03.17 Flugfloti 31.12.16 Eigin vélar Leigu-vélar Breyt. frá 31.12.16
Boeing 757 200 23 2 4 29 29 26 3 0
Boeing 757 300 1 1 1 1 0
Boeing 767 300 4 2 6 6 4 2 0
Boeing 737 700 1 1 1 1 0
Boeing 737 800 2 2 2 2 0
Bombardier Q200 2 2 2 2 0
Bombardier Q400 3 3 3 3 0
Fokker F-50 4 4 4 4 0
Total 28 2 9 9 48 48 40 8 0

Eigið fé nam 505,1 milljón USD í lok fyrsta ársfjörðungs og eiginfjárhlutfallið var 36%. Kaup á eigin bréfum komu til lækkunar á eigin fé að fjárhæð 10,0 milljónum USD ásamt arðgreiðslu sem sampykkt var á aðalfundi í mars. Arðurinn nam 0,10 US cent á hvern hlut og var samtals 5,0 milljónir USD. Í árslok 2016 var eiginfjárhlutfallið 44%.

Púsundir USD 31.03.2017
Eigið fé 1.1. 2017 568.213
Kaup á eigin bréfum -10.019
Afkoma tímabilsins -48.096
Arðgreiðsla (0.10 US cent á hlut) -5.044
Eigið fé 31.03. 2017 505.054

Vaxtaberandi skuldir námu 280,5 milljónum USD, samanborið við 242,4 milljónir USD í ársbyrjun. Í október 2016 gaf Icelandair Group út óveðtryggð skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir USD. Skuldabréfin eru til fimm ára og bera 3,5% vexti, ofan á priggja mánaða LIBOR-vexti, án vaxtagólfs. Í febrúar 2017 lauk félagið við framhaldsútgáfu skuldabréfanna að fjárhæð 40,0 milljónir USD með sömu skilmálum. Afborganir langtímaskulda á fyrsta ársfjörðungi námu 3,7 milljónum USD. Handbært fé og markaðsverðbréf námu samtals 322,9 milljónum USD í lok fyrsta ársfjörðungs 2017 samanborið við 250,1 milljón USD í byrjun árs. Handbært fé og markaðsverðbréf fé umfram vaxtaberandi skuldir voru því 42,3 milljónir USD í lok fjörðungsins.

Púsundir USD 31.03.2017 31.12.2016 breyting
Vaxtaberandi langtímaskuldir 233.744 196.722 37.022
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 46.787 45.660 1.127
Markaðsverðbréf 22.678 23.236 -558
Handbært fé 300.172 226.889 73.283
Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir 42.319 7.743 34.576

  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

SJÓÐSTREYMI

  • Handbært fé frá rekstri nam 125,5 milljónum USD.
  • Handbært fé í lok mars var 300,2 milljónir USD.
Púsundir USD 1. ársfj. ´17 1. ársfj. ´16 breyting
Veltufé til/frá rekstri -15.555 3.023 -18.578
Handbært fé frá rekstri 125.497 148.792 -23.295
Fjárfestingahreyfingar -75.782 -99.785 24.003
Fjármögnunarhreyfingar 23.520 -3.311 26.831
Handbært fé, breyting 73.235 45.696 27.539
Handbært fé í lok tímabils 300.172 241.816 58.356

Handbært fé frá rekstri á fyrsta ársfjórðungi nam 125,5 milljónum USD og var 23,3 milljónum USD lægra en á fyrsta ársfjórðungi 2016. Fjármögnunarhreyfingar námu alls 23,5 milljónum USD og má sjá yfirlit yfir þær hér að neðan:

Púsundir USD 1. ársfj. ´17 1. ársfj. ´16 breyting
Kaup á eigin bréfum -10.019 0 -10.019
Arðgreiðsla -5.044 0 -5.044
Ný langtímalán 40.000 0 40.000
Afborganir langtímalána -3.695 -3.311 -384
Ný skammtímalán 2.278 0 2.278
Fjármögnunarhreyfingar alls 23.520 -3.311 26.831

Handbært fé á fjórðungnum jókst um 73,2 milljónir USD og nam í lok mars 300,2 milljónum USD. Áhrif gengis á peningalegar eignir voru óveruleg.

FJÁRFESTINGAR

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 47,3 milljónum USD, þar af var stærsti hlutinn vegna fjárfestinga í flugvélabúnaði, m.a. nýjum sætum og innréttingum. Á tímabilinu fjárfesti félagið jafnframt í stækkun flugskýlis á Keflavíkurflugvelli, í hóteli á Mývatni ásamt því að framkvæmdir hófust við nýjan flughermi. Fjárfestingar í langtímakostnaði og óefnislegum eignum námu alls 2,5 milljónum USD.

Púsundir USD 1. ársfj. ´17
Varanlegir rekstrarfjármunir
Flugvélar og fylgihlutir 14.271
Hreyflayfirhöl eigin vélar 10.494
Aðrar fjárfestingar 19.994
Varanlegir rekstrarfjármunir alls 44.760
Langtímakostnaður
Hreyflayfirhöl á leiguvélum 840
Óefnislegar eignir 1.680
Fjárfestingar samtals 47.280

  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning frå Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

HORFUR Í REKSTRI OG AFKOMUSPÁ 2017

  • Innleiðing aðgerða sem skila eiga hagræðingu og auknum tekjum gengur vel.
  • Útlit í hótelrekstri félagsins gott.
  • Sterkt sjóðstreymi og mjög góð fjárhagsstaða
  • Öbreytt rekstrarskilyrði í flugrekstri

Mikil samkeppni og aukið framboð á Norður-Atlantshafinu hefur haft í för með sér töluverða lækkun meðalfargjalda. Þegar hefur verið gripið til aðgerða í rekstri samstæðunnar sem gert er ráð fyrir að skili hagræðingu og auknum tekjum. Markmið félagsins er að aðgerðir á tekju- og gjaldahlið muni skila bættri afkomu að fjárhæð 30 milljónir USD á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda í byrjun árs 2018. Innleiðing þessara aðgerða gengur samkvæmt áætlun. Meðal aðgerða sem gripið hefur verið til eru breytingar á uppbyggingu á fargjöldum og vöruframboði Icelandair. Sölukerfi félagsins í Evrópu hefur verið endurskipulagt með lokum á nokkrum skrifstofum í Mið-Evrópu og Skandinavi. Þá hefur verið tekin ákvörðun um að fjölga um eina sætaröð um borð í B757-200 vélum, sem mun lækka einingakostnað félagsins um 2-3%. Endursköðun ferla við flug- og farþegaafgreiðslu í Keflavík gengur vel en ráðgjafar á vegum IATA hafa aðstoðað við þá vinnu. Auk þessara aðgerða þá eru ýmis önnur hagræðingarverkefni í vinnslu í rekstrarfélögum samstæðunnar sem öll miða að því að gera félagið betur í stakk búið til að takast á við þær áskoranir og grípa þau tækifæri sem eru framundan.

Prátt fyrir neikvæð áhrif sjómannaverkfalls í byrjun árs er útlit fyrir árið 2017 gott í fraktstarfsemi félagsins og er gert ráð fyrir aukinni eftirspurn bæði í út- og innflutningi. Áfram verður megináherslan á flutninga í lestarrými farpegavéla. Á þessu ári munu tvær Boeing 767-300 breiðpotur bætast við þær tvær sem fyrir voru í leiðakerfinu og auka framboðið í lestum enn frekar. Leiguflugsstarfsemi félagsins gengur vel og er félagið með 8-9 vélar í langtímaverkefnum, mismunandi eftir árstíma.

Aukinn ferðamannastraumur til Íslands hefur skilað sér í auknum fjölda erlendra ferðamanna í innanlandsflugi og er áætlað að sú þróun muni halda áfram. Árið 2016 voru erlendir ferðamenn 18% af heildarfarþegafjölda í innanlandsflugi félagsins. Flugfélag Íslands mun á árinu fljúga til tveggja áfangastaða, Aberdeen í Skotlandi og Belfast á Norður-Írlandi í samstarfi við Icelandair. Í febrúar 2017 hóf félagið flug milli Keflavíkur og Akureyrar sem tengir við millilandaflug í Keflavík.

Mikil uppbygging hefur verið í hótelstarfsemi Icelandair Group undanfarin ár. Rekstrarútlit fyrir árið 2017 er gott og er gert ráð fyrir áframhaldandi góðri herbergjanýtingu.

Gert er ráð fyrir metfjölda ferðamanna til Íslands á árinu. Mikil eftirspurn er eftir ferðatengdri þjónustu félagsins á Íslandi, en töluverð styrking ISK á milli ára hefur þau áhrif að framlegð af þessari starfsemi verður ekki jafngóð og á síðasta ári.

Verð á þotueldsneyti (án tillits til varna) er áætlað 500 USD/tonn að meðaltali fyrir tímabilið á árinu 2017. Að teknu tilliti til varna má gera ráð fyrir að 10% hækkun á eldsneytisverði hafi neikvæð áhrif á EBITDA að fjárhæð USD 6,6 milljónir. Staða eldsneytisvarna í lok mars er dregin fram í tóflunni hér á eftir.


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

Timabil Áætluð notkun (tonn) Skiptasamningar Hlutfall varið Meðalverð skiptasamn. USD
Apr 17 26.412 19.550 74% 489
Mai 17 33.069 24.550 74% 493
Jún 17 46.659 26.550 57% 484
Júl 17 49.333 26.750 54% 500
Ágú 17 49.059 26.750 55% 502
Sep 17 42.618 23.550 55% 538
Okt 17 31.076 17.550 56% 516
Nóv 17 25.339 14.550 57% 547
Des 17 24.123 15.550 64% 552
Jan 18 23.582 14.000 59% 549
Feb 18 21.358 12.000 56% 556
Mar 18 25.396 15.000 59% 544
12 mánuðir 398.024 236.350 59% 517*
Apr 18 24.820 6.000 24% 546
Mai 18 32.428 3.000 9% 578
Jún 18 45.612 8.000 18% 548
Júl 18 47.934 4.000 8% 551
Ágú 18 47.607 4.000 8% 565
Sep 18 41.518 0 0% -
13-18 mánuðir 239.919 25.000 10% 554*
  • Vegið meðalverð

Uppfærðar forsendur gera ráð fyrir að gengisvísitala ISK sé að meðaltali 156 það sem eftir lifir árs samanborið við 164 í síðustu spá og gengi EUR gagnvart USD er spáð að meðaltali 1,08 á tímabilinu apríl – desember samanborið við 1,07 í febrúarspánni.

Í heild hafa afkomuhorfur ársins batnað lítillega frá því að síðasta afkomuspá var birt og uppfærum við því EBITDA spá okkar fyrir árið í 145-155 milljónir USD.

HLUTHAFAR

  • Hlutabréfaverð Icelandair Group nam 13,91 krónum í lok fyrsta ársfjörðungs.
  • Markaðsvirði í lok mars var 69,6 milljarðar króna.

Hæsta dagslokaverð á hvern hlut á fyrsta ársfjörðungi var 23,53 krónur, lægsta dagslokaverð á hvern hlut var 13,75 krónur og meðaltals dagslokaverð á tímabilinu var 17,56 krónur á hvern hlut. Viðskipti með hlutabréf Icelandair Group námu alls 2.222 á fjörðungnum og heildarvelta nam 28,1 milljarði króna. Meðalupphæð hverra viðskipta var 12,6 milljónir króna. Hlutabréfaverð félagsins lækkaði um 39,8% á fjörðungnum og fjöldi hluthafa var 2.737 í lok hans og fjölgaði um 177 frá upphafi árs. Fjöldi útgefinna hlutabréfa þann 31. mars 2017 var 5.000.000.000 og fjöldi útistandandi bréfa á sama tíma var 4.900.678.656. Á fyrsta ársfjörðungi 2017 keypti félagið 74.321.344 eigin hluti. Heildarfjárhæð kaupanna nam 1.094.443.522 ISK. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Icelandair Group hf. sem aðalfundur félagsins heimilaði þann 10. mars 2016 og var hrint í framkvæmd þann 20. febrúar 2017. Icelandair Group átti 25.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin. Í grafínu hér á eftir má sjá þróun hlutabréfaverðsins á árinu 2017 í ISK:


  1. april 2017 | Uppgjörstilkynning frå Icelandair Group

ICELANDAIR GROUP

img-0.jpeg

KYNNINGARFUNDUR 28. APRIL 2017

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2017, fimmtudaginn 27. apríl 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 28. apríl 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 í sal 2. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/

SAMÞYKKT ÁRSHLUTAREIKNINGS

Samstæðureikningur Icelandair Group vegna uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2017 var samþykktur á stjórnarfundi þann 27. apríl 2017.

FJÁRHAGSDAGATAL

  • Uppgjör 2. ársfjórðungs – 27. júlí, 2017
  • Uppgjör 3. ársfjórðungs – 26. október, 2017
  • Uppgjör 4. ársfjórðungs – víka 06, 2018
  • Aðalfundur – víka 11, 2018

FREKARI UPPLÝSINGAR VEITA

  • Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
  • Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801