Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2026

Mar 6, 2026

2197_rns_2026-03-06_5e782ed2-66cd-4d8f-bbe2-bf7e3471a50c.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair: Met í fjölda farþega, sætanýtingu og stundvísi í febrúar

Icelandair: Met í fjölda farþega, sætanýtingu og stundvísi í febrúar

Icelandair flutti 289 þúsund farþega í febrúar 2026, 15% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Í mánuðinum voru 42% á leið til Íslands, 21% frá Íslandi, 30% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust innanlands. Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 20% og farþegum frá Íslandi um 19%, í takt við áherslur sem félagið hefur lagt á þessa markaði. Sætanýting var 79,9% og stundvísi var 88,9%, 8,4 prósentustigum hærri en í sama mánuði á síðasta ári.

Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 26% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum jukust um 2% á milli ára. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4% meðal annars vegna áframhaldandi endurnýjunar flugflota og áherslu á rekstrarumbætur sem miða að bættri eldsneytisnýtingu.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Það er mjög ánægjulegt að sjá áframhaldandi árangur af áherslum okkar á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi. Þetta styður vel við markmið okkar um að draga úr árstíðarsveiflu í rekstrinum og nýta sveigjanleika leiðakerfisins til þess að auka framboð á þeim mörkuðum sem skila mestri framlegð hverju sinni.

Viðskiptavinir hafa tekið vel í vöxt okkar yfir vetrartímann sem endurspeglast í aukinni sætanýtingu þrátt fyrir 15% aukningu framboðs á milli ára. Breytt samsetning farþega milli markaða átti stærstan þátt í 10% hækkun í tekjum á farþegakílómetra á milli ára. Við höfum aldrei flutt jafn marga farþega í febrúar en náðum jafnframt metárangri í sætanýtingu og stundvísi, þrátt fyrir óvænta röskun á flugi vegna veðurs undir lok mánaðar. Þennan árangur má meðal annars sjá í mikilli ánægju viðskiptavina og er hann skýr vitnisburður um seiglu, fagmennsku og eljusemi starfsfólks Icelandair.“

Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: [email protected]

Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: [email protected]