Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2024

Feb 6, 2026

2197_rns_2026-02-06_42205ac1-c47d-46ea-a8d2-db5f468d9ce4.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair: Mikil eftirspurn til og frá Íslandi - farþegum fjölgaði um 14% á milli ára

Icelandair: Mikil eftirspurn til og frá Íslandi - farþegum fjölgaði um 14% á milli ára

Icelandair flutti 300 þúsund farþega í janúar, 14% fleiri en í janúar í fyrra. Í mánuðinum voru 30% á leið til Íslands, 21% frá Íslandi, 42% voru tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands. Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 16% og farþegum á leið frá Íslandi fjölgaði um 27% sem er í takt við áherslur sem félagið hefur lagt á þessa markaði. Stundvísi var 82,6% og jókst hún um fimm prósentustig á milli ára. Sætanýting var 77,6% sem er met í janúar.

Seldum blokktímum í leiguflugsstarfsemi félagsins fjölgaði um 1%. Fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 3% á milli ára. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 5%, vegna hærra hlutfalls sparneytnari flugvéla í flotanum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Við sjáum áframhaldandi vöxt yfir vetrartímann og sömuleiðis á mörkuðunum til og frá Íslandi. Sala hefur farið mjög vel af stað í febrúar og slógum við sölumet á markaðnum frá Íslandi nú í upphafi mánaðar. Þetta er í takt við áherslur okkar á þá markaði sem skila mestri framlegð hverju sinni og á að minnka árstíðarsveifluna í rekstrinum. Það er mjög ánægjulegt að sjá að markaðurinn tekur vel í vöxt okkar yfir háveturinn sem sést best í því að tekjur á hvern farþegakílómetra og sætanýting eykst á milli ára og er nú sú hæsta sem við höfum séð í janúar. Að sama skapi höldum við áfram að sjá framúrskarandi stundvísi sem er að þakka sameiginlegu átaki alls starfsfólks Icelandair.“

Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: [email protected]

Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: [email protected]