Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2025

Jan 6, 2026

2197_rns_2026-01-06_5a13adb8-b808-442b-a95c-51c03cd31af1.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair: Metfjöldi farþega árið 2025

Icelandair: Metfjöldi farþega árið 2025

Icelandair flutti 344 þúsund farþega í desember 2025, 10% fleiri en í desember 2024. Þar af voru 27% á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 48% ferðuðust um Íslands og 6% innan Íslands. Farþegar yfir árið í heild voru 5.1 milljón, 8% fleiri en árið 2024 og sló félagið þar með nýtt farþegamet.

Stundvísi var 80,1% sem er framúrskarandi niðurstaða fyrir desember en í sama mánuði árið 2024 var hún 59,7%.  Stundvísi jókst einnig fyrir árið í heild en hún var 83,9% samanborið við 82,7% árið 2024. Metsætanýting náðist í desember eða 84,1%. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 6%, vegna hærra hlutfalls eyðslugrennri flugvéla í flotanum og góðrar sætanýtingar.

Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 11% samanborið við desember á síðasta ári og fraktflutningar jukust um 3% á sama tíma.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Desember var sá stærsti í sögu okkar og einnig árið í heild en farþegafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir fimm milljónir. Við lögðum áherslu á að auka framboð utan háannatíma  til að hámarka nýtingu innviða og draga úr árstíðarsveiflu. Framúrskarandi stundvísi á árinu, 83,9%, setur okkur í hóp fremstu flugfélaga Evrópu. Þessi niðurstaða er árangur sameiginlegs átaks alls starfsfólks Icelandair.“

Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: [email protected]

Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: [email protected]