Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2024

Sep 8, 2025

2197_rns_2025-09-08_a744e049-ab9a-4d72-b877-41e4a5536db4.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair: Farþegum til Íslands fjölgaði um 21% í ágúst

Icelandair: Farþegum til Íslands fjölgaði um 21% í ágúst

Icelandair flutti alls 608 þúsund farþega í ágústmánuði sem er 1% aukning miðað við ágúst 2024. Farþegum til Íslands fjölgaði um 21% á milli ára og um 5% á markaðinum frá Íslandi, sem endurspeglar áherslu félagsins á þá markaði. Í mánuðinum voru 40% farþega á leið til Íslands, 14% frá Íslandi, 42% voru tengifarþegar og 4% ferðuðust innanlands. Sætanýting nam 87.1%. Það sem af er ári hafa 3,4 milljónir farþega flogið með Icelandair, sem eru 8% fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Flugreksturinn gekk vel og var stundvísi 80,9%. Umtalsverður vöxtur var í leiguflugstarfsemi, þar sem seldir blokktímar jukust um 30% en fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 4%. Kolefnislosun dróst saman um 4%.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Við erum sérstaklega ánægð með talsverða fjölgun farþega til Íslands í takt við aukna áherslu okkar á markaðina til og frá Íslandi. Haustið fer vel af stað hjá okkur með fimm nýjum og spennandi áfangastöðum og þar með enn fjölbreyttari ferðamöguleikum fyrir viðskiptavini okkar, bæði í leiðakerfinu okkar og í gegnum samstarfsflugfélög okkar.“

Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: [email protected]

Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: [email protected]