AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2019
Feb 6, 2019
2197_rns_2019-02-06_e129ed95-2720-4b19-9b0b-6b43f2e189bc.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Flutningatölur janúar 2019
Flutningatölur janúar 2019
Í janúar var farþegafjöldi Icelandair 227 þúsund og jókst um 8% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð var aukið um 10%. Sætanýting var 71,9% samanborið við 72,3% í janúar í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru um 20 þúsund og fækkaði um 12% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 57,1%. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 12% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári. Fraktflutningar voru óbreyttir á milli ára. Seldar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 16%. Herbergjanýting var 64,9% samanborið við 69,9% í janúar 2018. Skýrist það aðallega af lakari herbergjanýtingu á landsbyggðinni.
| ICELANDAIR | JAN 19 | JAN 18 | BR. (%) |
| Fjöldi farþega | 226.737 | 209.398 | 8% |
| Sætanýting | 71,9% | 72,3% | -0,4 %-stig |
| Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 994,9 | 907,0 | 10% |
| Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 715,6 | 656,0 | 9% |
| Meðal flugleið (KM) | 3.109 | 3.077 | 1% |
| AIR ICELAND CONNECT | JAN 19 | JAN 18 | BR. (%) |
| Fjöldi farþega | 19.569 | 22.299 | -12% |
| Sætanýting | 57,1% | 57,8% | -0,7 %-stig |
| Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 10,5 | 14,0 | -25% |
| LEIGUFLUG | JAN 19 | JAN 18 | BR. (%) |
| Flugvélanýting | 91,7% | 100,0% | -8,3 %-stig |
| Seldir blokktímar | 2.652 | 3.015 | -12% |
| FRAKTFLUTNINGAR | JAN 19 | JAN 18 | BR. (%) |
| Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.464 | 10.498 | 0% |
| HÓTEL | JAN 19 | JAN 18 | BR. (%) |
| Framboðnar gistinætur | 33.418 | 26.757 | 25% |
| Seldar gistinætur | 21.673 | 18.708 | 16% |
| Herbergjanýting | 64,9% | 69,9% | -5,1 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group s: 5050-100
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 5050-100