AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2018
Feb 7, 2019
2197_rns_2019-02-07_a72b110c-84b5-4aab-85c3-088b97709c50.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- februar 2019 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
ERFITT REKSTRARÁR AD BAKI
- Heildartekjur námu 1.511 milljónum USD og jukust um 7% á árinu 2018.
- EBITDA ársins var 76,5 milljónir USD samanborið við 170,1 milljón USD árið 2017.
- Tap ársins eftir skatta var 55,6 milljónir USD samanborið við hagnað að fjárhæð 37,5 milljónir USD árið 2017.
- EBITDA á fjórða ársfjörðungi var neikvæð um 35,0 milljónir USD og lækkar á milli ára.
- Lág meðalfargjöld, hækkun oliuverðs og kolefnisheimilda og mun verri afkoma innanlandsflugs skýra lækkun EBITDA milli ára á fjórða ársfjörðungi.
- Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 32%.
- Handbært fé nam 299,5 milljónum USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. 2018 | 4. ársfj. 2017 | Breyt. | % Breyt. | 12 mán. 2018 | 12 mán. 2017 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningur | ||||||||
| Heildartekjur | 298.800 | 291.580 | 7.220 | 2% | 1.510.518 | 1.417.987 | 92.531 | 7% |
| EBITDAR | -24.150 | -5.381 | -18.769 | - | 126.893 | 207.765 | -80.872 | - |
| EBITDA | -34.996 | -16.426 | -18.570 | - | 76.479 | 170.076 | -93.597 | -55% |
| EBIT | -69.252 | -45.829 | -23.423 | 51% | -56.968 | 49.645 | -106.613 | - |
| EBT | -69.724 | -47.666 | -22.058 | 46% | -67.810 | 48.642 | -116.452 | - |
| Tap / hagnaður tímabilsins | -57.343 | -39.673 | -17.670 | 45% | -55.570 | 37.538 | -93.108 | - |
| Efnahagsreikningur | ||||||||
| Heildareignir | - | - | - | - | 1.460.228 | 1.423.842 | 36.386 | 3% |
| Eigið fé | - | - | - | - | 467.485 | 596.545 | -129.060 | -22% |
| Vaxtaberandi skuldir | - | - | - | - | 415.801 | 289.541 | 126.260 | 44% |
| Handbært fé og markaðsverðbréf | - | - | - | - | 299.460 | 225.278 | 74.182 | 33% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | - | - | - | - | 116.341 | 64.263 | 52.078 | - |
| Sjóðstrey mi | ||||||||
| Fjárfestingahreyfingar | 136.627 | -48.186 | 184.813 | - | -129.933 | -228.419 | 98.486 | -43% |
| Fjármögnunarhreyfingar | 3.146 | -151 | 3.297 | - | 149.336 | 14.554 | 134.782 | - |
| Handbært fé í lok tímabils | 299.460 | 221.191 | 78.269 | 35% | 299.460 | 221.191 | 78.269 | 35% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Afkoma USD cent á hlut | - | - | - | - | -1,16 | 0,75 | -1,91 | - |
| Innra virði hlutafjár | - | - | - | - | 11,97 | 15,09 | -3,12 | -21% |
| Eiginfjárhlutfall | - | - | - | - | 32% | 42% | -9,88 | -24% |
| Veltufjárhlutfall | - | - | - | - | 0,71 | 0,99 | -0,3 ppt | -28% |
| Fjárfestingar, þúsundir USD | 42.576 | 41.503 | 1.073 | 3% | 331.429 | 166.131 | 165.298 | 99% |
| Flutningatekjur % af heildartekjum | 73,3% | 70,9% | 2,4 ppt | - | 72,4% | 74,1% | -1,7 ppt | - |
| EBITDAR hlutfall | -8,1% | -1,8% | -6,2 ppt | - | 8,4% | 14,7% | -6,3 ppt | - |
| EBITDA hlutfall | -11,7% | -5,6% | -6,1 ppt | - | 5,1% | 12,0% | -6,9 ppt | - |
| Hlutabréf íslenskar krónur | ||||||||
| Hæsta verð á tímabili | 12,25 | 16,90 | -4,65 | -28% | 16,55 | 23,53 | -6,98 | -30% |
| Lægsta verð á tímabili | 6,53 | 14,12 | -7,59 | -54% | 6,53 | 13,13 | -6,60 | -50% |
| Lokaverð tímabils | - | - | - | - | 9,58 | 14,71 | -5,13 | -35% |
| Markaðsvirði í lok tímabils (milljónir) | - | - | - | - | 47.900 | 73.550 | -25.650 | -35% |
- febrúar 2019 | Uppgjörstilkynning frá Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
BOGI NILS BOGASON FORSTJÓRI
„Árið 2018 var erfitt rekstrarár. Rekstarniðurstaðan var mun lakari en lagt var upp með í byrjun árs og endurspeglar harða samkeppni í millilandaflugi, lág og oft ósjálfbær fargjöld og mikla hækkun eldsneytisverðs. Jafnframt höfðu breytingar á sölu- og markaðsstarfsemi félagsins, sem og ójafnvægi í leiðarkerfi neikvæð áhrif á afkomuna, eins og áður hefur verið kynnt.
Markmið okkar er skýrt; að bæta arðsemi og rekstur félagsins til framtíðar. Nú þegar hafa verið gerðar breytingar á skipulagi félagsins sem endurspegla áherslur á kjarnastarfsemina, flugrekstur. Unnið er að fjölmörgum aðgerðum bæði á tekju- og kostnaðarhlið sem eiga að skila sér í bættum rekstri strax á árinu 2019. Þar má meðal annars nefna breytingu á framboði sem stuðlar að betra jafnvægi milli Evrópu og N-Ameríku í leiðarkerfi félagsins sem auðveldar stýringu þess og hámörkun tekna. Þá höfum við lagt aukna áherslu á hliðartekjur sem þegar hefur skilað árangri, sölu- og markaðsstarf félagsins verið eft, auk þess sem innleiðing á nýju tekjustýringakerfi er á lokametrunum. Í vor, til viðbótar við núverandi tengibanka, hefst flug í nýjum tengibanka sem mun bæta nýtingu flota og flugáhafna, auka framboð og tekjur félagsins. Þar að auki er unnið að endurskoðun innanlandsflugs félagsins.
Ljóst er að áfram ríkir óvissa í rekstrarumhverfi félagsins auk þess sem breytingar eru að eiga sér stað í samkeppnissumhverfinu. Það býr hins vegar mikill kraftur og þekking í félaginu og starfsfólki okkar. Fjárhagstaðan er sterk og ég er sannfærður um að við séum vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir og grípa þau tækifæri sem framundan eru.“
- februar 2019 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
A
FLUTNINGATÓLUR
- Metfjöldi farpega hjá Icelandair árið 2018: 4,1 milljón og aukning um 2% frá fyrra ári.
- Sætanýting í millilandaflugi var 81,0% samanborið við 82,7% árið 2017.
- Seldir blokktímar jukust um 23% á milli ára í leiguflugsstarfsemi félagsins.
| 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | % br. | 12M '18 | 12M '17 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| ICELANDAIR | ||||||
| Farpégafjöldi ('000) | 896,3 | 805,1 | 11,3% | 4.141,5 | 4.052,9 | 2,2% |
| Sætanýting (%) | 80,2 | 79,7 | 0,5 %-stig | 81,0 | 82,7 | -1,7 %-stig |
| Framboðnir sætiskilómetrar ('000.000) | 3.573,9 | 3.137,8 | 14% | 16.239,7 | 15.245,2 | 7% |
| Seldir sætiskilómetrar ('000.000) | 2.862,4 | 2.497,0 | 15% | 13.154,1 | 12.606,6 | 4% |
| Meðal fluglengd í km | 3.235,0 | 3.085,0 | 5% | 3.208,0 | 3.073,0 | 4% |
| AIR ICELAND CONNECT | ||||||
| Farpégafjöldi ('000) | 69,6 | 80,4 | -13% | 319,2 | 349,3 | -9% |
| Sætanýting (%) | 65,2 | 60,3 | 4,9 %-stig | 65,4 | 65,9 | -0,4 %-stig |
| Framboðnir sætiskilómetrar ('000.000) | 33,1 | 49,2 | -33% | 180,8 | 214,6 | -16% |
| Seldir sætiskilómetrar ('000.000) | ||||||
| LEIGUFLUG | ||||||
| Flotanýting (%) | 89,2 | 100,0 | -10,8 %-stig | 91,9 | 98,1 | -6,2 %-stig |
| Seldir blokktímar | 7.659 | 7.557 | 1% | 33.670 | 27.460 | 23% |
| FRAKTFLUTNINGAR | ||||||
| Seldir tonn kilómetrar ('000) | 33.312 | 30.897 | 8% | 125.758 | 117.055 | 7% |
| HÓTEL | ||||||
| Framboðnar gistinætur | 99.274 | 82.463 | 20% | 407.994 | 371.289 | 10% |
| Seldar gistinætur | 75.702 | 63.228 | 20% | 326.686 | 301.302 | 8% |
| Herbergjanýting (%) | 76,3 | 76,7 | -0,4 %-stig | 80,1 | 81,2 | -1,1 %-stig |
Markaðurinn yfir N-Atlantshafið var stærsti markaður félagsins með 51% af heildarfarpegafjölda árið 2018. Farppegum fjölgaði mest á heimamarkaðinum frá Íslandi.
| Farpegar eftir mörkuðum '000 | 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | % hlutd. '18 | 12M '18 | 12M '17 | % hlutd. '18 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Til | 321,9 | 288,3 | 36% | 1.487,6 | 1.462,6 | 36% |
| Frá | 117,7 | 132,3 | 13% | 543,8 | 470,4 | 13% |
| Um | 456,7 | 384,5 | 51% | 2.110,1 | 2.119,8 | 51% |
| Samtals Icelandair | 896,3 | 805,1 | 100% | 4.141,5 | 4.052,9 | 100% |
- februar 2019 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
PRÓUN GJALDMIDLA
Uppgjørsmynt Icelandair Group er USD. Tekjur á fjorða ársfjorðungi 2018 eru 2% hærri en á sama tíma árið 2017. Á föstu gengi hækka tekjurnar um 6% milli ára.
| Mynt | Meðalgengi
4. ársfj. '18 | Br.frá 4.
ársfj. '17 | Lokagengi
31.12 '18 | Br. frá
31.12 '17 |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| ISK | 0.008 | -13% | 0.009 | -11% |
| EUR | 1.141 | -3% | 1.145 | -5% |
| GBP | 1.286 | -3% | 1.275 | -6% |
| CAD | 0.757 | -4% | 0.734 | -8% |
| DKK | 0.153 | -3% | 0.153 | -5% |
| NOK | 0.118 | -3% | 0.115 | -6% |
| SEK | 0.111 | -8% | 0.112 | -8% |
REKSTUR FJÓRDA ÁRSFJÓRDUNGS
| Púsundir USD | 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| EBITDAR | -24.150 | -5.381 | -18.769 | - |
| EBITDA | -34.996 | -16.426 | -18.570 | - |
| EBIT | -69.252 | -45.829 | -23.423 | 51% |
| EBT | -69.724 | -47.666 | -22.058 | 46% |
| Tap tímabilsins | -57.343 | -39.673 | -17.670 | 45% |
| EBITDAR % | -8,1% | -1,8% | -6,2 %-stig | - |
| EBITDA % | -11,7% | -5,6% | -6,1 %-stig | - |
| Púsundir USD | Alþjóðlegur flugrekstur | Eignarhlutir í flugrekstri | ||
| --- | --- | --- | --- | --- |
| 4. ársfj. 2018 | 4. ársfj. 2017 | 4. ársfj. 2018 | 4. ársfj. 2017 | |
| Tekjur | 250.183 | 257.268 | 44.046 | 45.484 |
| EBITDAR | -29.920 | -14.771 | 7.180 | 8.970 |
| EBITDA | -33.401 | -17.422 | 1.918 | 3.508 |
| EBT | -64.527 | -42.218 | -1.343 | -650 |
Alþjóðlegur flugrekstur
EBITDA var neikvæð um 33,4 milljónir USD á fjorðungnum samanborið við 17,4 milljónir USD á síðasta ári. Lág meðalfargjöld, hátt eldsneytisverð, hækkun á markaðsverði kolefnisheimilda og lakari nýting flugmanna vegna framboðssbreytinga skýra að mestu lækkun EBITDA á milli ára.
Eignarhlutir í flugrekstri
Rekstur Loftleiða Icelandic gekk mjög vel á fjorðungnum og á árinu 2018 í heild. Rekstur Air Iceland Connect var aftur á móti mjög erfíður á árinu 2018 og versnaði afkoman á milli ára. Afkoma fjorða ársfjorðungs hjá félaginu var óviðunandi og mun lakari en gert hafði verið ráð fyrir.
Eignarhlutir í ferðabjónustu
Tekjur drógust saman um 21,8% og EBITDA lækkaði um 1,0 milljón USD, var neikvæð um 3,5 milljónir USD.
- febrúar 2019 | Uppgjörstilkynning frá Icelandair Group
ICELANDAIR
GROUP
TEKJUR
- Heildartekjur jukust um 2% á milli ára á fjórða ársfjórðungi.
- Aðrar farþegatengdar tekjur jukust um 63% samanborið við síðasta ár.
| Púsundir USD | 4. ársfj. ‘18 | 4. ársfj. ‘17 | breyting | % breyting | % af tekjum |
|---|---|---|---|---|---|
| Flutningatekjur: | 218.971 | 206.599 | 12.372 | 6% | 73% |
| Farpégaflug | 183.081 | 178.778 | 4.303 | 2% | 61% |
| Hliðartekjur | 21.081 | 12.918 | 8.163 | 63% | 7% |
| Vöru- og póstflutningar | 14.809 | 14.903 | -94 | -1% | 5% |
| Flugvéla- og áhafnaleiga | 27.683 | 28.396 | -713 | -3% | 9% |
| Aðrar rekstrartekjur | 52.146 | 56.585 | -4.439 | -8% | 17% |
| Samtals | 298.800 | 291.580 | 7.220 | 2% | 100% |
Heildartekjur jukust um 2% á milli ára en tekjuaukningin á föstu gengi er 6%. Flutningatekjur jukust um um 12,4 milljónir USD nemur um 6% á milli ára. Tekjur í leiðarkerfi Icelandair jukust á öllum mörkuðum, en mest á ferðamannamarkaðinum til Íslands. Farþegatengdar hliðatekjur jukust mikið á fjórðungnum, en áhersla hefur verið sett á að auka þessar tekjur. Námu þær 21,1 milljón USD samanborið við 12,9 milljónir USD á síðasta ári. Tekjur af flugvéla- og áhafnaleigu drógust litillega saman, námu 27,7 milljónum USD en voru á sama tíma í fyrra 28,4 milljónir USD. Aðrar rekstrartekjur námu 52,1 milljónum USD og lækkuðu um 4,4 milljónir USD. Lækkunin skýrist af lægri tekjum af ferðabjónustu vegna breytinga á eftirspurn. Sjá sundurliðun annarra rekstrartekna í tóflunni hér fyrir neðan:
| Púsundir USD | 4. ársfj. ‘18 | 4. ársfj. ‘17 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| Vörusala á hótelum og flugvöllum | 22.355 | 21.478 | 877 | 4% |
| Tekjur af ferðabjónustu | 16.177 | 22.383 | -6.206 | -28% |
| Áfgreiðslu- og þjónustutekjur af flugfrakt | 5.579 | 5.892 | -313 | -5% |
| Seld viðhaldspjónusta | 1.119 | 1.026 | 93 | 9% |
| Söluhagnaður fasta fjármuna | 1.532 | 0 | 1.532 | - |
| Aðrar rekstrartekjur | 5.384 | 5.806 | -422 | -7% |
| Samtals | 52.146 | 56.585 | -4.439 | -8% |
KOSTNAÐUR
- Heildarkostnaður nam 333,8 milljónum USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. ‘18 | 4. ársfj. ‘17 | breyting | % breyting | % af kostn. |
|---|---|---|---|---|---|
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 126.945 | 114.998 | 11.947 | 10% | 38% |
| Flugtengdur kostnaður | 133.231 | 110.036 | 23.195 | 21% | 40% |
| Annar rekstarkostnaður | 73.620 | 82.972 | -9.352 | -11% | 22% |
| Samtals | 333.796 | 308.006 | 25.790 | 8% | 100% |
Laun, launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður námu 126,9 milljónum USD samanborið við 115,0 milljónir USD á fjórða fjórðungi síðasta árs. Vegna markaðsaðstæðna var framboð félagsins skorið niður um 11% á fjórðungnum frá því sem áður hafði verið gert ráð fyrir. Félagrið var því með fleiri flugmenn á launaskrá en þörf krafði og versnaði nýting flugmanna talsvert. Umframkostnaður vegna þessa nam 2,5 milljónum USD í fjórðungnum.
Flugtengdur kostnaður nam alls 133,2 milljónum USD og jókst um 23,2 milljónir USD, þar af 19,5 milljónir USD vegna hærri eldsneytiskostnaðar.
- februar 2019 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
| Púsundir USD | 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | breyting | % breyting | % af heildark. |
|---|---|---|---|---|---|
| Eldsneytiskostnaður | 74.144 | 54.653 | 19.491 | 36% | 22% |
| Flugvélaleigha | 9.179 | 5.718 | 3.461 | 61% | 3% |
| Afgreibslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld | 29.260 | 29.184 | 76 | 0% | 9% |
| Viðhaldskostnaður flugvéla | 20.648 | 20.481 | 167 | 1% | 6% |
| Samtals | 133.231 | 110.036 | 23.195 | 21% | 40% |
Eldsneytiskostnaður nam samtals 74,1 milljón USD og jókst um 36% frá sama tíma í fyrra. Markaðsverð á losunarheimildum hækkæði mikið á árinu eða úr 8,3 í 24,6 EUR á hvert kolefnistonn. Kostnaður vegna þessa á fjórða ársfjórðungi hækkæði um 2 milljónir USD á milli ára og um 7 milljónir USD á árinu í heild. Uppgjörsverð félagsins á eldsneyti að teknu tilliti til varna á fjórðungnum var að meðaltali 624 USD/tonn, sem er 11% hækkun á milli ára. Yfirlit yfir stöðu eldsneytisvarna félagsins er dregið fram í kaflanum „Horfur í rekstri Icelandair Group hf. og afkomuspá“ hér á eftir.
Flugvélaleigha nam 9,2 milljónum USD og jókst um 3,5 milljónir USD í samanburði við fjórða ársfjórðung 2017 vegna fleiri og nýrri véla á leigu en í fyrra. Afgreibslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld námu 29,3 milljónum USD og stöðu í stað á milli ára. Viðhaldskostnaður nam 20,6 milljónum USD og hækkæði um 1%.
Annar rekstrarkostnaður nam 73,6 milljón USD og lækkæði um 9,4 milljónir USD á milli ára. Helstu frávik eru vegna minni aðkeyptrar þjónustu í ferðabjónustu vegna breytinga á eftirspurn. Þetta endurspeglast í lækkun tekna frá ferðabjónustu. Í töflunni hér á eftir má sjá niðurbrot á helstu liðum og þróun milli ára.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrarkostn. fasteigna og innréttinga | 8,724 | 8,031 | 693 | 9% |
| Samskiptakostnaður | 4,958 | 6,310 | -1,352 | -21% |
| Auglýsingakostnaður | 6,158 | 9,355 | -3,197 | -34% |
| Bókunargj., kreditkortabókn. og umboðslaun | 15,127 | 13,794 | 1,333 | 10% |
| Kostnaðarverð seldra vara | 5,211 | 3,882 | 1,329 | 34% |
| Þjónusta við farþega og hótelgesti | 15,542 | 16,504 | -962 | -6% |
| Aðkeypt þjónusta í ferðabjónustu | 7,120 | 14,317 | -7,197 | -50% |
| Annar rekstrarkostnaður | 10,780 | 10,779 | 1 | 0% |
| Samtals | 73,620 | 82,972 | -9,352 | -11% |
FJÁRMAGNSLIDIR
- Gengisáhrif voru jákvæð um 4,9 milljónir USD á 4. ársfjórðungi 2018.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| Fjármagnstekjur | 1.298 | 588 | 710 | 121% |
| Fjármagnsgjöld | -6.639 | -3.835 | -2.804 | 73% |
| Gengisáhrif | 4.889 | 1.240 | 3.649 | - |
| Samtals | -452 | -2.007 | 1.555 | - |
- februar 2019 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
EFNAHAGUR OG FJÁRHAGSLEG STADA
- Heildareignir námu 1,5 milljörðum USD í lok árs 2018.
- Eiginfjárhlutfall var 32%.
- Handbært fé og markaðsverðbréf námu 299,5 milljónum USD.
| Púsundir USD | 31.12.2018 | 31.12.2017 | Breyting |
|---|---|---|---|
| Heildareignir | 1.460.228 | 1.423.842 | 36.386 |
| Rekstrarfjármunir | 673.420 | 652.705 | 20.715 |
| Handbært fé og markaðsverðbréf | 299.460 | 225.278 | 74.182 |
| Eigið fé | 467.485 | 596.545 | -129.060 |
| Vaxtaberandi skuldir | 415.801 | 289.541 | 126.260 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 116.341 | 64.263 | 52.078 |
| Eiginfjárhlutfall | 32% | 42% | -10 ppt |
| Veltufjárhlutfall | 0,71 | 0,99 | -28% |
Varanlegir rekstrarfjármunir námu 673,4 milljónum USD og jukust um 20,7 milljónir USD frá ársbyrjun. Eignir tengdar hótelrekstri eru í söluferli og því skilgreindar sem eignir til sölu í efnahagsreikningnum. Frekari upplýsingar um áhrif breytingarinnar má sjá í skýringu 7 í árshlutauppgjörinu.
Umfjöllun um fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum er að finna í kaflanum um sjóðsstreymi og fjárfestingar hér á eftir. Í lok ársins voru 51 flugvél í flugflotanum, þar af voru 42 í eigu félagsins. Tvær af B757-200 vélum Icelandair eru leigðar til Loftleiða Icelandic í lok árs.
| Flugvélagerð | Icelandair | Cargo | Loftleiðir | Air Iceland Connect | Flugfloti 31.12.18 | Flugfloti 31.12.17 | Eigin vélar | Leigu vélar | Breyt. frá 31.12.17 |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| B757-200 | 24 | 2 | 5 | 31 | 29 | 27 | 4 | 2 | |
| B757-300 | 2 | 2 | 1 | 2 | 1 | ||||
| B737 MAX 8 | 3 | 3 | 0 | 2 | 1 | 3 | |||
| B767-300 | 4 | 2 | 6 | 6 | 5 | 1 | 0 | ||
| B737-700 | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 | ||||
| B737-800 | 2 | 2 | 3 | 2 | -1 | ||||
| Bombardier Q200 | 3 | 3 | 3 | 3 | 0 | ||||
| Bombardier Q400 | 3 | 3 | 3 | 3 | 0 | ||||
| Total | 33 | 2 | 10 | 6 | 51 | 46 | 42 | 9 | 5 |
Eigið fé nam 467,5 milljónum USD í lok árs 2018 og eiginfjárhlutfallið var 32%. Sjá helstu breytingar á eigin fé frá ársbyrjun:
| Púsundir USD | 31.12.2018 |
|---|---|
| Eigið fé 1.1. 2018 | 591.535 |
| Áhrif vegna IFRS 15 | 5.010 |
| Kaup á eigin bréfum | -7.485 |
| Afkoma tímabilsins | -114.321 |
| Arðgreiðsla (0.15 US cent á hlut) | -7.254 |
| Eigið fé 31.12.2018 | 467.485 |
Stjórn Icelandair Group leggur til að ekki verði greiddur arður á árinu 2019.
Vaxtaberandi skuldir námu 415,8 milljón USD, samanborið við 289,5 milljónir USD í ársbyrjun. Afborganir langtímaskulda á fjörða ársfjörðungi námu 18,8 milljónum USD. Handbært fé og markaðsverðbréf námu 299,5 milljónum USD í lok ársins. Nettó vaxtaberandi skuldir Icelandair námu alls 116,3 milljónum USD í lok árs 2018:
- februar 2019 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
| Púsundir USD | 31.12.2018 | 31.12.2017 | Breyting |
|---|---|---|---|
| Vaxtaberandi langtimaskuldir | 147.513 | 280.254 | -132.741 |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 268.288 | 9.287 | 259.001 |
| Markaðsverðbréf | 0 | 4.087 | -4.087 |
| Handbært fé | 299.460 | 221.191 | 78.269 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 116.341 | 64.263 | 52.078 |
Félagið er með tvo skuldabréfaflokka á markaði: ISIN N000107769982, að fjárhæð 190 milljónir USD og ISIN IS0000025427 að fjárhæð 23,6 milljónir USD. Undir lok desember sambykktu skuldabréfaeigendur skilmálabreytingar sem gengu út á það sama hjá báðum skuldabréfaflokkunum. Tillögurnar fólu m.a. í sér að félagið muni greiða upp þriðjung skuldabréfanna og var það gert þann 15. janúar sl., samtals 73 milljónir USD með áföllnum vöxtum. Félagið hefur heimild til að greiða upp skuldabréfaflokkana til og með 30. júní og skuldabréfaeigendur hafa heimild til að krefjast endurgreiðslu á tímabilinu 15. júlí – 30. júlí. Vegna þessa eru skuldabréfin flokkuð sem skammtímafjármögnun í efnahagsreikningi. Félagið var með 300 milljónir USD í handbæru fé í árslok 2018 og allar Q400, Boeing 757 og 767 vélar félagsins voru óveðsettar í árslok. Félagið getur því mjög auðveldlega endurfjármagnað skuldabréflokkana og er það til skoðunar.
Rétt fyrir áramót gekk félagið frá samningi við BOC Aviation um fjármögnun á fyrirframgreiðslum á 11 Boeing MAX flugvélum sem afhentar verða félaginu árin 2019 (6 vélar) og 2020 (5 vélar). Samtals nemur fjármögnunin 200 milljónum USD á tímabilinu og sjóðstaða félagsins hækkaði um 160 milljónir USD í árslok 2018 vegna samningsins þar sem Icelandair Group hafði þegar innt fyrirframgreiðslurnar af hendi úr eigin sjóðum.
Félagið hefur samið um sölu og endurleigu á sjö Boeing 737 MAX vélum sem afhentar verða 2019-2020. Þar af sex vélum sem afhentar verða árið 2019 og einni sem afhent verður árið 2020. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir stöðu fjármögnunar á þeim 13 Boeing MAX flugvélum sem félagið er með í þöntun:
| Afhending | Fjármögnun | Tegund fjármögnunar | Leigusali | Fjöldi véla |
|---|---|---|---|---|
| 2019 | Lokið | Sala og endurleiga | BOC Aviation | 1 |
| 2019 | Lokið | Sala og endurleiga | SMBC Aviation Capital | 2 |
| 2019 | Lokið | Sala og endurleiga | BOCCOM Leasing Aviation | 3 |
| 2020 | Lokið | Sala og endurleiga | BOC Aviation | 1 |
| 2020 | Ólokið | - | - | 4 |
| 2021 | Ólokið | - | - | 2 |
Icelandair Group gerir ráð fyrir því að boðið verði út hlutafé fyrir allt að 625 milljónir króna að nafnverði á fyrri hluta ársins 2019 eins og tilkynnt var um til Kaughallar þann 30. nóvember og 10. desember sl.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé til rekstrar nam 15,0 milljónum USD.
- Handbært fé í lok desember var 299,5 milljón USD.
- Fjárfestingar námu alls 35,4 milljónum USD.
- februar 2019 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
| Púsundir USD | 4. ársfj. '18 | 4. ársfj. '17 | Breyting |
|---|---|---|---|
| Handbært fé til rekstrar | -14.989 | 9.054 | -24.043 |
| Fjárfestingahreyfingar | 136.627 | -48.186 | 184.813 |
| Fjármögnunarhreyfingar | 3.146 | -151 | 3.297 |
| Handbært fé, breyting | 124.784 | -39.283 | 164.067 |
| Handbært fé i lok timabils | 299.460 | 221.191 | 78.269 |
Handbært fé til rekstrar á fjórða ársfjórðungi nam -15,0 milljónum USD og var 24,0 milljónum USD lægra en á fjórða ársfjórðungi 2018. Fjárfestingar á fjórðungnum námu alls 42,6 milljónum USD, þar af var fjárfesting í hreyflayfirhölum 27,3 milljónir USD. Aðrar fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum, aðallega fjárfestingar í hótelrekstri á Mývatni og byggingum á Keflavíkurflugvelli, námu 11,2 milljónum USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '18 | 12M 2018 |
|---|---|---|
| Varanlegir rekstrarfjármunir | ||
| Flugvélar og fylgihlutir | 242 | 190.030 |
| Hreyflayfirhöl eigin vélar | 27.276 | 82.189 |
| Aðrar fjárfestingar | 11.182 | 51.859 |
| Varanlegir rekstrarfjármunir alls | 38.700 | 324.078 |
| Langtímakostnaður | ||
| Hreyflayfirhöl á leiguvélum | 3.205 | 4.602 |
| Óefnislegar eignir | 671 | 2.749 |
| Fjárfestingar samtals | 42.576 | 331.429 |
HORFUR Í REKSTRI
- Aukin arðsemi er meginverkefni ársins.
- Ráðist hefur verið í margháttaðar aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni félagsins
- Flugáætlun Icelandair 10% umfangsmeiri en árið 2018.
Árið 2018 var erfitt rekstrarár og félagið gerir ráð fyrir að skila mun betri afkomu til lengri tíma litið. Allir kostnaðarliðir eru til endurskoðunar hjá félaginu og mörg hagræðingarverkefni eru í gangi, sem eiga að skila sér í bættum rekstri árið 2019 og til framtíðar. Þar má nefna sjálfvirknivæðingu, samþættingu, útvistun og þróun leiðarkerfis til að bæta nýtingu starfsfólks, flugflota og annarra rekstrarfjármuna. Gerðar hafa verið áherslubreytingar á skipulagi félagsins í þeim tilgangi að einfalda og straumlínulaga starfsemina. Stjórnun upplýsingatæknimála og stafræn þróun hefur verið tekin saman á eitt svið. Skipulag fjármálasviðs verður jafnframt einfaldað. Breytingin felur í sér fækkun stjórnenda í kjarnastarfsemi félagsins og hefur framkvæmdastjórum fækkað um fjóra frá því á þriðja ársfjórðungi 2018.
Albjóðaflugrekstur
Samkeppnisumhverfi Icelandair mun áfram verða krefjandi. Sumarið 2019 er ráðgert að 28 flugfélög muni fljúga til og frá Íslandi til yfir 90 áfangastaða í Evrópu og N-Ameríku. Einnig er gert ráð fyrir áframhaldandi samkeppni á N-Atlantshafi. Flugáætlun Icelandair árið 2019, mæld í sætiskilómetrum, verður 10% umfangsmeiri en á síðasta ári. Heildarframboð mælt í sætum vex um 13% á árinu, og skýrist munurinn á því að framboðsaukningin er meiri til og frá Evrópu en Norður Ameríku til þess að leiðréttá misvægi sem var í framboði sumarið 2018. Aukningin í sætaframboði til Evrópu nemur 18% en 3% til N-Ameríku. Hætt verður flugi til Dallas og Baltimore. Heildarfjöldi farþega er áætlaður 4,7 milljónir og eykst um 0,6 milljónir á milli ára. Frá og með maí og fram í september verður flug í nýjum tengibanka á Íslandi meðfram núverandi tengibanka leiðakerfisins. Flogið verður til Evrópu um kl. 11:00 að morgni og til Norður-Ameríku um kl. 20:00 að kvöldi. Þetta mun leiða til betri dreifingar í komum og brottfórum farþega á Keflavíkurflugveli sem dregur úr álagi og bætir nýtingu þeirra innviða sem félagið hefur byggt upp þar.
- februar 2019 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
Petta gerir félaginu einnig kleift að vaxa sjálfbært næstu ár á Keflavíkurflugvelli. Auk þess sem tíðni verður aukin til lykiláfangastaða þá bætist Düsseldorf í Þýskalandi við sem nýr áfangastaður.
Á árinu 2019 verða 36 flugvélar í rekstri hjá Icelandair, þremur fleiri en í fyrra. Sex nýjar Boeing 737 MAX vélar bætast í flotann á árinu en á móti verður B757-200 vélum fækkað um þrjár. Nýi tengibankinn mun stuðla að betri nýtingu flugflotans þar sem þær flugvélar sem fljúga til vesturstrandar Bandaríkjanna munu snúa til baka 18-20 klukkustundum fyrr en áður. Það gerir félaginu kleift að auka sætaframboð meira en sem nemur fjölgun flugvéla í flotanum. Þessu til viðbótar gerir þessi breyting félaginu kleift að vinna fleiri viðhaldsverkefni í Keflavík og nýta betur þá starfskrafta sem eru til staðar. Auk þess verður meira svigrúm til að bregðast við seinkunum í flugi og bæta stundvísi.
Á árinu 2019 verða Boeing 737 MAX vélar í flugflota félagsins orðnar níu sem mun hafa jákvæð áhrif á eldsneytiskostnað félagsins. Eldsneytiseyðsla þessara véla er 27% lægri á hvert sæti en í Boeing 757 vélunum ásamt því að kolefnisspor þeirra er minna.
Félagið gerir ráð fyrir að rekstur fyrsta ársfjörðungs verði erfíður og að afkoman verði nokkuð verri en á á fyrsta ársfjörðungi 2018. Meðalfargjöld hafa ekki hækkað á milli ára og tímasetning påska hefur áhrif á eftirspurn ásamt því að þjálfunarkostnaður og annar innleiðingarkostnaður vegna nýrra flugvéla hefur neikvæð áhrif. Vegna framboðsbreytinga verður flugmannanýting félagsins áfram slök í fjörðungnum. Félagið mun grípa til aðgerða til að bæta nýtingu flugmanna veturinn 2019-2020.
Varðandi háðnn í þriðja ársfjörðungi þá er þróunin sú að farþegar bóka flug nær brottfôr en áður, sem veldur því að óvissa í tekjuspá er meiri en áður. Markmið félagsins er að bæta afkomuna verulega og hefur verið gripið til margháttaðra aðgerða til þess að ná því markmiði bæði á tekju- og kostnaðarhlið. Nýtt tekjustýringakerfi verður gangsett í lok mars. Kerfið er mun þróaðra en það sem nú er í notkun og gjörbreytir möguleikum á bestun fargjaldatekna að teknu tilliti til forsendna á hverjum tíma. Félagið hefur jafnframt sett sér markmið um að auka hliðartekjur talsvert þannig að sú þróun milli ára sem var á fjörða ársfjörðungi 2018 muni halda áfram á árinu 2019. Fjárfest hefur verið í þjálfun starfsfólks og því fjölgað til að fylgja þessu eftir. Kostnaður félagsins vegna óstundvísi og rekstrartruflana á flugáætlun nam um 45 milljónum USD 2018. Markmið félagsins er að lækka þennan kostnað um að minnsta kosti 40% á árinu 2019 með bættri stundvísi, breytingum á leiðarkerfi og styrkingu á innviðum. Þróun á stundvísi síðustu mánaða sýnir að félagið er á réttri leið í átt að markmiðinu.
Eignarhlutir í flugtengdri starfsemi
Leiguflugstarfsemi Loftleiða Icelandic gengur vel. Samið hefur verið um framlengingu á tveimur vélum sem skila átti árið 2018 ásamt því að útlit fyrir ný verkefni er gott. Áfram er gert ráð fyrir að rekstur ferðaskrifstofunnar VITA gangi vel. Afkoma Air Iceland Connect var óásættanleg á árinu 2018 og er rekstur þess félags í gagngerri endurskoðun.
Eignarhlutir í ferðabjónustu
Með skýrari áherslu á flugrekstur hefur félagið ákveðið að selja eignarhluti sína í ferðabjónustu. Söluferli á Icelandair Hotels sem hófst formlega í byrjun nóvember 2018 stendur enn yfir. Á annan tug tilboða bárust í kjölfar fyrri tilboðsfrests sem var skömmu fyrir jól. Áframhaldandi vinna við fyrirhugaða sölu stendur nú yfir og er stefnt að því að niðurstaða muni liggja fyrir undir lok fyrsta ársfjörðungs. Stjórn Icelandair Group hefur jafnframt ákveðið að hefja söluferli á Iceland Travel og einbeita sér að flugrekstri og tengdri starfsemi.
Breyting á reikningsskilastöðlum
Icelandair Group innleiðir nýjan reikningsskilastaðal, IFRS 16 frá ársbyrjun 2019. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skýringu 44 í ársreikningnum. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir áætluð áhrif
- februar 2019 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
staðalsins á samstæðureikning félagsins árið 2019 að öðru óbreyttu og á efnahagsreikning 1. janúar 2019. Þar sem hótelrekstur félagsins er í sölumeðferð, eru áhrifin sýnd hér með og án hans.
| USD þúsundir | IFRS 16 án hótela | IFRS 16 með hótelum |
|---|---|---|
| EBITDA | 66.723 | 81.427 |
| Afskriftir | -61.720 | -72.303 |
| Fjármagnskostnaður | -10.679 | -18.014 |
| Nettó afkoma | -5,676 | -8,890 |
| Heildareignir 1. janúar 2019 | 1.432.863 | 1.746.786 |
| Eiginfjárhutfall 1. janúar 2019 | 33% | 27% |
AFKOMUSPÁ 2019
Afkoma Icelandair var óásættanleg á árinu 2018. Gripið hefur verið til margháttaðra aðgerða til þess að bæta rekstur þess á árinu 2019.
- Breyting á framboði til þess að ná betra jafnvægi í leiðarkerfinu milli Evrópu- og N-Amerikuflugs sem auðveldar stýringu þess og hámörkun tekna.
- Innleiðing nýs tekjustýringarkerfis.
- Styrking sölu- og markaðsstarfs.
- Aukin áhersla á hliðartekjur.
- Nýr tengibanki sem eykur nýtingu rekstraraðfanga.
- Styrking ferla til að minnka rekstrartruflanir í leiðarkerfinu.
- Einföldun stjórnskipulags.
- Bætt nýting starfsfólks.
- Útvistun verkefna.
- Endurskoðun innanlandsflugs.
Allir þessir þættir og fleiri munu skila rekstrarbata á árinu 2019 og því er gert ráð fyrir verulegum afkomubata af leiðarkerfinu og þar með rekstri Icelandair á milli ára.
Gert ráð fyrir lítilsháttar afkomubata af annarri kjarnastarfsemi, sem skilaði 33 milljónum USD í EBITDA, á árinu 2018. Jafnframt er gert ráð fyrir að lokið verði við sölu á Icelandair Hotels auk þess sem tilkynnt hefur verið um fyrirhugað söluferli á Iceland Travel en EBITDA af framangreindum eignum í söluferli nam 16 milljónum USD á árinu 2018.
Vegna meiri óvissu í tekjuspám farpegatekna en áður og vegna óvissu á vinnumarkaði á Íslandi gefur félagið ekki út afkomuspá fyrir samstæðuna í heild á þessu stigi. Langtímarekstrarmarkmið félagsins er óbreytt, 7% EBIT hlutfall að meðaltali. Áfram verða sveiflur í rekstri milli ára, sum ár verða hærri og önnur lægri. Á árinu 2019 er gert ráð fyrir að EBIT hlutfall verði nokkuð lægra en 7%.
Forsendur félagsins gera ráð fyrir að gengisvísitala ISK sé að meðaltali 166 á árinu 2019 og gengi EUR gagnvart USD er spáð að meðaltali 1,14. Verð á þotueldsneyti (án tillits til varna) er áætlað 615 USD/tonn að meðaltali árið 2019. Staða eldsneytisvarna í byrjun árs 2019:
- februar 2019 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
| Timabil | Áætluð notkun (tonn) | Skiptasamningar | Hlutfall varið | Meðalverð skiptasamn. USD |
|---|---|---|---|---|
| Jan 19 | 25.277 | 15.450 | 61% | 621 |
| Feb 19 | 21.102 | 14.450 | 68% | 644 |
| Mar 19 | 26.666 | 15.500 | 58% | 622 |
| Apr 19 | 29.750 | 15.450 | 52% | 631 |
| Mai 19 | 40.885 | 21.500 | 53% | 635 |
| Jún 19 | 49.696 | 24.500 | 49% | 683 |
| Júl 19 | 52.286 | 26.250 | 50% | 692 |
| Ágú 19 | 52.505 | 28.250 | 54% | 722 |
| Sep 19 | 45.855 | 27.250 | 59% | 752 |
| Okt 19 | 33.902 | 16.000 | 12% | 753 |
| Nóv 19 | 30.530 | 11.000 | 13% | 699 |
| Des 19 | 29.028 | 4.000 | 14% | 722 |
| 12 mánuðir | 437.482 | 219.600 | 50% | 685 * |
| Jan 20 | 25.759 | 4.000 | 16% | 713 |
| Feb 20 | 21.502 | 4.000 | 19% | 789 |
| Mar 20 | 27.171 | 4.000 | 15% | 764 |
| Apr 20 | 30.321 | 0 | 0% | 0 |
| May 20 | 41.677 | 0 | 0% | 0 |
| Jun 20 | 50.663 | 0 | 0% | 0 |
| 13-18 mánuðir | 197.094 | 12.000 | 6% | 755 * |
- Vegið meðalverð
KYNNINGARFUNDUR 8. FEBRÚAR 2019
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 8. febrúar 2019 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, mun kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/
SAMÞYKKT ÁRSHLUTAREIKNINGS
Samstæðureikningur Icelandair Group vegna ársins 2018 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. febrúar 2019.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Uppgjör 1. ársfjörðungs – vika 18, 2019
- Uppgjör 2. ársfjörðungs – vika 31, 2019
- Uppgjör 3. ársfjörðungs – vika 44, 2019
- Uppgjör 4. ársfjörðungs – vika 06, 2020
FREKARI UPPLÝSINGAR VEITIR
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, sími: 5050-100