Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2019

Apr 8, 2019

2197_rns_2019-04-08_c1bac337-34c4-42a1-9c06-71e22dad5e94.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Flutningatölur mars 2019

Flutningatölur mars 2019

Í mars var farþegafjöldi Icelandair 268 þúsund og jókst um 3% miðað við mars á síðasta ári.  Framboð var aukið um 6%. Sætanýting var 81,2% samanborið við 81,9% í mars í fyrra. Ferðamannamarkaðurinn til Íslands var stærsti markaður félagsins í mars með 45% af heildarfarþegafjölda.  Farþegum fjölgaði einnig mest á þessum markaði eða um 13% á milli ára. Komustundvísi í leiðakerfi félagsins í mars nam 77,3% og batnaði mikið eða um 4,7 prósentustig frá síðasta ári.

Farþegar Air Iceland Connect voru 23 þúsund og fækkaði um 19% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári.  Sætanýting nam 68,0% og jókst um 8,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 13% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári. Fraktflutningar jukust um 14%. Seldar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 14%. Herbergjanýting var 77,8% samanborið við 78,0% í mars 2018.

ICELANDAIR MAR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Farþegar til Íslands 120.911 13% 311.246 13%
Farþegar frá Íslandi 42.282 4% 114.715 10%
Farþegar um Ísland 104.547 -7% 276.768 -2%
Heildarfjöldi farþega 267.740 3% 702.729 6%
Sætanýting 81,2% -0,7 %-stig 76,4% -0,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.060,5 6% 2.887,8 8%
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) 861,1 5% 2.206,0 8%
Meðal flugleið (KM) 3.172 2% 3.114 1%
Stundvísi (komur) 77,3% 4,7 %-stig 78,9% 14,4 %-stig
AIR ICELAND CONNECT MAR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Fjöldi farþega 23.000 -19% 62.129 -14%
Sætanýting 68,0% 8,1 %-stig 63,7% 3,7 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 11,2 -36% 30,8 -30%
LEIGUFLUG MAR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Flugvélanýting 90,9% -9,1 %-stig 91,2% -8,8 %-stig
Seldir blokktímar 2.553 -13% 7.478 -14%
FRAKTFLUTNINGAR MAR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 12.000 14% 32.344 6%
HÓTEL MAR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 32.925 14% 95.242 19%
Seldar gistinætur 25.612 14% 70.121 14%
Herbergjanýting 77,8% -0,2 %-stig 73,6% -3,8 %-stig

Nánari upplýsingar veitir: Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group netfang: [email protected]