Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2017

Feb 9, 2018

2197_rns_2018-02-09_1bbc3d8e-d3b8-4378-a943-7e7e1b89e638.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Arðbær vöxtur árið 2017 í krefjandi umhverfi

Arðbær vöxtur árið 2017 í krefjandi umhverfi

  • EBITDA ársins var 170,2 milljónir USD samanborið við 219,8 milljónir USD árið 2016.
  • Hagnaður ársins eftir skatta var 37,7 milljónir USD samanborið við 89,1 milljón USD árið 2016.
  • EBITDA á 4. ársfjórðungi var neikvæð um 16,9 milljónir USD og lækkar á milli ára.
  • Heildartekjur jukust um 14% á 4. ársfjórðungi.
  • Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 42%.
  • EBITDA spá fyrir árið 2018 nemur 170-190 milljónum USD.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri

„Afkoma ársins er í takt við seinustu afkomuspá okkar. Arðbær vöxtur félagsins heldur áfram og sterk fjárhagsstaða og sveigjanleiki gera okkur kleift að bregðast við aðstæðum og grípa ný og spennandi tækifæri á markaði. Icelandair flutti rúmlega fjórar milljónir farþega í millilandaflugi á árinu og hafa þeir aldrei verið fleiri.

Í lok þessa mánaðar fáum við afhenta fyrstu Boeing 737-MAX vélina. Það eru ákveðin tímamót, upphafið að endurnýjun flugflotans, sem er stórt og spennandi verkefni. Við höfum á undanförnum mánuðum gert breytingar á vöruframboði okkar meðal annars með nýjum fargjaldaflokki,  Economy Light. Jafnframt hafa verið kynntir sjö nýir áfangastaðir í leiðarkerfinu.  Nýjungar og breytingar sem þessar endurspegla þann sveigjanleika og fjárhagslega styrk sem félagið hefur til að bregðast við á kvikum markaði.  

Mikil samkeppni er á öllum okkar mörkuðum. Bókunarstaða í millilandaflugi er góð á fyrri árshelmingi en töluverð óvissa er á síðari hluta ársins, einkum hvað varðar þróun meðalfargjalda. Afkomuspá félagsins fyrir árið 2018 endurspeglar þessa óvissu en gert er ráð fyrir að EBITDA ársins verði 170-190 milljónir USD.

Í upphafi þessa árs kynntum við nýtt skipulag félagsins. Með því næst fram skýrari áhersla á kjarnastarfsemi okkar auk þess sem það stuðlar að einföldun ferla, styttri boðleiðum og aukinni hagkvæmni í rekstri.  Þannig munum við vera betur í stakk búin til að takast á við síbreytilegt umhverfi fyrirtækja, með aukinni alþjóðavæðingu og tækniframförum.  Starfsfólk félagsins hefur að venju skilað framúrskarandi starfi og viðskiptavinir haldið tryggð við félagið – það erum við þakklát fyrir.“

Frekari upplýsingar veita

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455.

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.

Viðhengi: