Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2018

Jun 6, 2018

2197_rns_2018-06-06_21060e78-f798-472c-89f9-61a5929ab152.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Flutningatölur maí 2018

Flutningatölur maí 2018

Fjöldi farþega Icelandair í maí nam 367 þúsund og fjölgaði þeim um 10% miðað við maí á síðasta ári.  Framboð jókst um 15%. Sætanýting var 77,7% samanborið við 81,2% í maí í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru um 27 þúsund og fækkaði um 7% á milli ára. Um miðjan maí hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 62,0%. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst mikið eða um 40% á milli ára.  Skýrist það af fleiri langtímaverkefnum en á sama tíma á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 11% á milli ára.  Framboðnar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 6% á milli ára. Skýrist það að mestu leyti af opnun Reykjavík Konsúlat hótelsins í miðbæ Reykjavíkur í mars síðastliðnum. Herbergjanýting var 72,8% samanborið við 77,0% í maí 2017.

ICELANDAIR MAÍ 18 MAÍ 17 BR. (%) ÁTÞ 18 ÁTÞ 17 BR. (%)
Fjöldi farþega 367.530 333.090 10% 1.295.385 1.262.927 3%
Sætanýting 77,7% 81,2% -3,6 ppt 77,0% 79,5% -2,5 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.491,1 1.292,0 15% 5.246,5 4.863,5 8%
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) 1.158,5 1.049,7 10% 4.037,6 3.865,9 4%
Meðal flugleið (KM) 3.200 3.086 4% 3.117 3.031 3%
AIR ICELAND CONNECT MAÍ 18 MAÍ 17 BR. (%) ÁTÞ 18 ÁTÞ 17 BR. (%)
Fjöldi farþega 27.434 29.470 -7% 127.468 127.383 0%
Sætanýting 62,0% 67,9% -5,9 ppt 60,5% 64,9% -4,3 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 15,4 15,4 0% 77,1 69,4 11%
LEIGUFLUG MAÍ 18 MAÍ 17 BR. (%) ÁTÞ 18 ÁTÞ 17 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 ppt 100,0% 95,5% 4,5 ppt
Seldir blokktímar 2.863 2.046 40% 14.692 10.186 44%
FRAKTFLUTNINGAR MAÍ 18 MAÍ 17 BR. (%) ÁTÞ 18 ÁTÞ 17 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 10.663 9.632 11% 50.563 43.317 17%
HÓTEL MAÍ 18 MAÍ 17 BR. (%) ÁTÞ 18 ÁTÞ 17 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 30.149 28.567 6% 138.294 136.207 2%
Seldar gistinætur 21.954 21.994 0% 103.725 106.259 -2%
Herbergjanýting 72,8% 77,0% -4,2 ppt 75,0% 78,0% -3,0 ppt

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801

Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010