AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2016
Jan 6, 2017
2197_rns_2017-01-06_6512a7e1-619b-4c73-a8d5-52eadfc5d72d.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Flutningatölur desember 2016
Flutningatölur desember 2016
Í desember flutti Icelandair 220 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir
19% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 24% og
sætanýting var 77,2% samanborið við 79,2% í desember 2015. Farþegar Flugfélags
Íslands voru tæplega 21 þúsund í desember og fjölgaði um 17% á milli ára. Á
árinu 2016 hófst flug til Aberdeen, sem flogið er á Bombardier Q400 vélum
Flugfélags Íslands. Til þessa hefur það flug verið meðtalið í flutningatölum
Icelandair, en frá og með desember er það fært yfir til Flugfélagsins Íslands
og jafnframt hafa tölur ársins í heild verið uppfærðar til samræmis. Í desember
jókst framboð Flugfélags Íslands um 59% og skýrist það að langmestu leyti af
Aberdeenfluginu. Seldir blokktímar í leiguflugi stóðu í stað á milli ára.
Fraktflutningar drógust saman um 3% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á
hótelum félagsins var 67,9% samanborið við 60,7% í desember í fyrra.
Flutningatölur fyrir árið 2016 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt
fleiri farþega en á árinu 2016. Þeir voru alls tæplega 3,7 milljónir og
fjölgaði um 20% frá fyrra ári. Sætanýting nam 82,2% og lækkaði um 1
prósentustig frá árinu 2015 sem var metár. Heildarfjöldi farþega Flugfélags
Íslands var 323 þúsund og jókst um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í
leiguflugi jukust um 1% og flutt frakt um 5%. Herbergjanýting á hótelum
félagsins á árinu 2016 var 81,5% og hefur aldrei verið hærri.
ICELANDAIR DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi 219.937 185.216 19% 3.674.461 3.074.175 20%
farþega
Sætanýting 77,2% 79,2% -2,0 %-stig 82,2% 83,2% -1,0 %-stig
Framboðnir 861,2 697,0 24% 13.653,3 11.083,3 23%
sætiskm.
(ASK'000.000
)
FLUGFÉLAG DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
ÍSLANDS
Fjöldi 20.603 17.672 17% 322.740 296.176 9%
farþega
Sætanýting 58,8% 70,5% -11,6 %-stig 69,3% 74,4% -5,1 %-stig
Framboðnir 12,4 7,8 59% 179,6 145,0 24%
sætiskm.
(ASK'000.000
)
LEIGUFLUG DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Flugvélanýtin 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 100,0% 100,0% 0,0 %-stig
g
Seldir 1.865 1.864 0% 23.523 23.263 1%
blokktímar
FRAKTFLUTNING DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
AR
Seldir 8.387 8.637 -3% 105.379 100.497 5%
tonnkm.
(FTK´000)
HÓTEL DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Framboðnar 27.807 24.335 14% 352.214 325.941 8%
gistinætur
Seldar 18.886 14.779 28% 287.160 254.842 13%
gistinætur
Herbergjanýti 67,9% 60,7% 7,2 %-stig 81,5% 78,2% 3,3 %-stig
ng
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010
Viðhengi: