Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2017

Feb 6, 2017

2197_rns_2017-02-06_fe6e1e04-3de6-4a70-9f99-a6bbad477a36.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Flutningatölur janúar 2017

Flutningatölur janúar 2017

Í janúar var farþegafjöldi Icelandair tæplega 206 þúsund og jókst um 18% miðað
við janúar á síðasta ári. Framboð var aukið um 22%. Sætanýting var 73,6%
samanborið við 74,3% í janúar í fyrra. Farþegar Flugfélags Íslands voru um 20
þúsund og fækkaði um 1% milli ára. Framboð í janúar var 24% meira en í janúar
á síðasta ári og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi
við Icelandair og hófst í mars 2016. Sætanýting nam 62,5%. Seldir blokktímar í
leiguflugi voru 14% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar drógust
saman um 14% á milli ára. Skýrist það af verkfalli sjómanna á Íslandi sem
hefur haft í för með sér samdrátt í útflutningi á fiski. Framboðnum gistinóttum
hjá hótelum félagsins fjölgaði um 14% á milli ára. Herbergjanýting var 69,2% og
8,4 prósentustigum hærri en í janúar 2016.

MILLILANDAFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%)

Fjöldi farþega 205.734 173.825 18%
Sætanýting 73,6% 74,3% -0,7 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 855,2 701,0 22%

INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%)

Fjöldi farþega 20.276 20.399 -1%
Sætanýting 62,5% 70,0% -7,5%-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 11,1 9,0 24%

LEIGUFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%)

Flugvélanýting 88,9% 100,0% -11,1 %-stig
Seldir blokktímar 1.848 2.148 -14%

FRAKTFLUTNINGAR JAN 16 JAN 15 BR. (%)

Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.398 8.630 -14%

HÓTEL JAN 16 JAN 15 BR. (%)

Framboðnar gistinætur 27.807 24.335 14%
Seldar gistinætur 19.234 14.782 30%
Herbergjanýting 69,2% 60,7% 8,4 %-stig

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010

Viðhengi: