AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2016
Feb 7, 2017
2197_rns_2017-02-07_0d28d073-e8b6-4202-aceb-0bbd3eec8883.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- februar 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
GOTT REKSTRARÁR AD BAKI – STERKUR EFNAHAGUR
- Hagnaður ársins eftir skatta var 89,1 milljón USD samanborið við 111,2 milljónir USD árið 2015.
- EBITDA á 4. ársfjörðungi var 2,5 milljónir USD samanborið við 22,9 milljónir USD á sama ársfjörðungi á síðasta ári.
- Lækkun meðalfargjalda og gengisþróun skýra lakari afkomu á fjórða ársfjörðungi að mestu.
- Heildartekjur jukust um 12% á 4. ársfjörðungi.
- Sterk fjárhagsstaða: 44% eiginfjárhlutfall og handbært fé og markaðsverðbréf námu 250,1 milljón USD í árslok 2016.
- Aukin óvissa í alþjóðlegum flugrekstri.
- EBITDA spá fyrir árið 2017 nemur 140-150 milljónir USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. 2016 | 4. ársfj. 2015 | Breyt. | % Breyt. | 12 mán. 2016 | 12 mán. 2015 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningar | ||||||||
| Heildartekjur | 256.472 | 229.966 | 26.506 | 12% | 1.285.574 | 1.139.699 | 145.875 | 13% |
| EBITDAR | 12.007 | 31.587 | -19.580 | -62% | 254.960 | 261.710 | -6.750 | -3% |
| EBITDA | 2.453 | 22.942 | -20.489 | -89% | 219.845 | 226.666 | -6.821 | -3% |
| EBIT | -24.367 | 1.868 | -26.235 | - | 118.437 | 142.840 | -24.403 | -17% |
| EBT | -22.194 | -150 | -22.044 | - | 120.111 | 140.223 | -20.112 | -14% |
| Tap/hagnaður tímabilisins | -22.870 | 267 | -23.137 | - | 89.068 | 111.223 | -22.155 | -20% |
| Efnahagsreikningar | ||||||||
| Heildareignir | - | - | - | - | 1.292.493 | 971.979 | 320.514 | 33% |
| Eigið fé | - | - | - | - | 568.213 | 456.531 | 111.682 | 24% |
| Vaxtaberandi skuldir | - | - | - | - | 242.382 | 65.530 | 176.852 | 270% |
| Handbært fé og markaðsverðbréf | - | - | - | - | 250.125 | 214.119 | 36.006 | 17% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | - | - | - | - | -7.743 | -148.589 | 140.846 | -95% |
| Sjóðstregmi | ||||||||
| Veltufe til/frá rekstri | -10.701 | 3.079 | -13.780 | - | 210.801 | 211.260 | -459 | -0% |
| Handbært fé til/frá rekstri | -39.471 | 36.640 | -76.111 | - | 209.024 | 245.136 | -36.112 | -15% |
| Fjárfestingahreyfingar | -69.986 | -87.507 | 17.521 | -20% | -291.759 | -219.942 | -71.817 | 33% |
| Fjármögnunarhreyfingar | 147.727 | -10.616 | 158.343 | - | 113.643 | -14.320 | 127.963 | - |
| Handbært fé í lok tímabils | 226.889 | 194.586 | 32.303 | 17% | 226.889 | 194.586 | 32.303 | 17% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Afkoma USD cent á hlut | -0,46 | 0,01 | -0,47 | - | 1,79 | 2,24 | -0,45 | -20% |
| Innra virði hlutafjár | - | - | - | - | 13,99 | 11,24 | 2,75 | 24% |
| Eiginfjárhlutfall | - | - | - | - | 44% | 47% | -3,0 %-etig | -6% |
| Veltufjárhlutfall | - | - | - | - | 0,92 | 0,80 | 0,12 | 15% |
| Fjárfestingar, þúsundir USD | 39.723 | 100.784 | -61.061 | -61% | 243.397 | 210.400 | 32.997 | 16% |
| Flutningatekjur % af heildartekjum | 72,4% | 71,0% | 1,5 %-etig | - | 73,7% | 74,5% | -0,8 %-etig | -1% |
| EBITDAR hlutfall | 4,7% | 13,7% | -9,1 %-etig | - | 19,8% | 23,0% | -3,1 %-etig | -14% |
| EBITDA hlutfall | 1,0% | 10,0% | -9,0 %-etig | - | 17,1% | 19,9% | -2,8 %-etig | -14% |
| Hlutabréf íslenskar krónur | ||||||||
| Hæsta verð á tímabili | 26,53 | 35,40 | -8,87 | -25% | 38,90 | 35,40 | 3,50 | 10% |
| Lægsta verð á tímabili | 22,95 | 30,35 | -7,40 | -24% | 22,95 | 20,95 | 2,00 | 10% |
| Lokaverð tímabils | - | - | - | - | 23,10 | 35,40 | -12,05 | -35% |
| Markaðsvirði í lok tímabils (milljónir) | - | - | - | - | 115.500 | 177.000 | -61.500 | -35% |
- febrúar 2017 | Uppgjörstilkynning frá Icelandair Group
ICELANDAIR
GROUP
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON, FORSTJÓRI
„Rekstrarniðurstaða ársins er sú næstbesta í 80 ára sögu félagsins og starfsemin gekk í heildina mjög vel á árinu, við krefjandi aðstæður. Félagið flutti alls tæplega 3,7 milljónir farþega í millilandaflugi og fjölgaði þeim um 20% frá fyrra ári eða um 600 þúsund farþega. Mikill vöxtur er í hótelstarfseminni og var herbergjanýting mjög góð eða tæp 82%. Innanlandsflugið gekk einnig vel, þar er 9% aukning í farþegafjölda milli ára og ánægjulegt að sjá að erlendir ferðamenn nýta sér innanlandsflugið í auknum mæli. Fraktstarfsemin gekk einnig vel.
Við upphaf árs er hins vegar ljóst að aðstæður í rekstrinum eru mjög krefjandi. Eins og við greindum frá í seinustu viku hefur að undanförnu orðið breyting í bókunarflæði Icelandair til hins verra. Bókanir eru hægari en gert var ráð fyrir og meðalfargjöld á mörkuðum hafa lækkað umfram spár. Á síðustu dögum hafa komið fram upplýsingar um að þetta sé þróun sem almennt á sér stað á alþjóða flugmarkaði. Þróunina má einkum rekja til aukinnar samkeppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breytinga í alþjóða stjórnmálum hafi áhrif á eftirspurn. Verkfall sjómanna á Íslandi hefur neikvæð áhrif á fraktstarfsemi félagsins. Gjaldmiðlar hafa þróast á óhagstæðan hátt miðað við fyrra ár og olíuverð hefur jafnframt hækkað. Horfur í hótelstarfsemi okkar eru góðar.
Við horfum til framtíðar og tökumst á við þessar breyttu aðstæður með langtímahagsmuni félagsins í huga. Þegar hefur verið gripið til aðgerða í rekstri samstæðunnar sem gert er ráð fyrir að skili hagræðingu og auknum tekjum. Meðal aðgerða eru breytingar á uppbyggingu á fargjöldum og vöruframboði Icelandair. Þessar breytingar, sem unnið hefur verið að frá því í haust, eru til að mæta aukinni samkeppni, breyttum aðstæðum á mörkuðum fyrirtækisins og breytingum á neysluvenjum flugfarþega. Markmið breytinganna er að ná til nýrra viðskiptavina auka sýnileika félagsins í leitarvélum gagnvart tilteknum markhópum og breikka tekjugrunn félagsins. Frá síðastliðnu hausti hefur enn fremur verið hert verulega á kostnaðaraðhaldi innan félagsins.
Markmið félagsins er að aðgerðir á tekju- og gjaldahlið muni skila bættri afkomu að fjárhæð 30 milljónir USD á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda í byrjun árs 2018.
Efnahagsreikningur félagsins er sem fyrr sterkur, eiginfjárhlutfall er 44% og handbært fé og markaðsverðbréf ríflega 250 milljónir USD. Stefna félagsins varðandi fjárhagslegan styrkleika hefur alltaf verið rökstudð með því að rekstrarumhverfi flugfélaga er sveiflukennt. Félagið er því vel í stakk búið að takast á við þær sveiflur sem um þessar mundir eiga sér stað í rekstrarumhverfi þess. Við gerum áfram ráð fyrir hóflegum innri vexti á árinu og langtímahorfur fyrirtækisins eru góðar.“
- februar 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
3
FLUTNINGATÕLUR
- Metfjöldi farpega í millilandaflugi árið 2016: 3,7 milljónir og fjölgun um 20%.
- Farpegafjöldi í millilandaflugi á 4. ársfjórðungi 769,5 púsund og sætanýting 79,8%.
- Met herbergjanýting á hótelum félagsins árið 2016 81,5%.
| 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | % br. | 12 mán. '16 | 12 mán. '15 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| ICELANDAIR | ||||||
| Farpégafjöldi ('000) | 769,5 | 631,4 | 22% | 3.674,5 | 3.074,2 | 20% |
| Sætanýting (%) | 79,8 | 80,7 | -0,9 %-stig | 82,2 | 83,2 | -1,0 %-stig |
| Framboðnir sætiskilómetrar ('000.000) | 2.952,7 | 2.339,6 | 26% | 13.653,3 | 11.083,3 | 23% |
| FLUGFÉLAG ÍSLANDS | ||||||
| Farpégafjöldi ('000) | 72,5 | 64,8 | 12% | 322,7 | 296,2 | 9% |
| Sætanýting (%) | 63,7 | 73,7 | -10,0 %-stig | 69,3 | 74,4 | -5,1 %-stig |
| Framboðnir sætiskilómetrar ('000.000) | 40,8 | 27,6 | 48% | 179,6 | 145,0 | 24% |
| LEIGUFLUG | ||||||
| Flotanýting (%) | 100,0 | 100,0 | 0,0 %-stig | 100,0 | 100,0 | 0,0 %-stig |
| Seldir blokktímar | 5.488 | 5.829 | -6% | 23.523 | 23.263 | 1% |
| FRAKTFLUTNINGAR | ||||||
| Seldir tonn kilómetrar ('000) | 26.907 | 26.520 | 1% | 105.379 | 100.497 | 5% |
| HÓTEL | ||||||
| Framboðnar gistinætur | 82.493 | 71.926 | 15% | 352.214 | 325.941 | 8% |
| Seldar gistinætur | 62.871 | 48.804 | 29% | 287.160 | 254.842 | 13% |
| Herbergjanýting (%) | 76,2 | 67,9 | 8,4 %-stig | 81,5 | 78,2 | 3,3 %-stig |
Icelandair flutti 770 púsund farpega í millilandaflugi á fjórða ársfjórðungi og voru þeir 22% fleiri samanborið við fjórða ársfjórðung 2015. Framboð jókst á sama tímabili um 26% og sætanýting nam 79,8% samanborið við 80,7% á árinu á undan. Farpegar Flugfélags Íslands voru tæplega 73 púsund í fjórðungnum og fjölgaði um 12% á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 6% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 1% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 76,2% samanborið við 67,9% á fjórða ársfjórðungi í fyrra.
Heildarfarpegafjöldi Icelandair árið 2016 var 3,7 milljónir og hefur Icelandair aldrei áður flutt fleiri farpega. Aukning farpega milli ára var hlutfallslega mest á ferðamanamarkaðinum til Íslands eða sem nam 23%. Sá markaður er með 38% af heildarfarpegafjölda ársins. Farpegar á markaðinum um Ísland jukust einnig mikið eða um 22% og er sá markaður jafnframt stærsti markaður félagsins með 50% af heildarfarpegafjölda árið 2016. Farpégaaukning á heimamarkaðinum frá Íslandi var 3% á milli ára.
Farpégar Flugfélags Íslands voru 323 púsund á árinu og fjölgaði um 9% miðað við 2015. Framboð jókst um 24% á milli ára og skýrist um helmingur aukningarinnar af flugi til Aberdeen í Skotlandi. Sætanýting nam 69,3% samanborið við 74,4% árið áður. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 1% á milli ára og flutt frakt um 5% frá fyrra ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2016 var 81,5% og hefur aldrei verið hærri.
- februar 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
REKSTUR FJÓRDA ÁRSFJÓRDUNGS
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| EBITDAR | 12.007 | 31.587 | -19.580 | -62% |
| EBITDA | 2.453 | 22.942 | -20.489 | -89% |
| EBIT | -24.367 | 1.868 | -26.235 | - |
| EBT | -22.194 | -150 | -22.044 | - |
| Tap/hagnaður tímabilsins | -22.870 | 267 | -23.137 | - |
| EBITDAR % | 4,7% | 13,7% | -9,1 %-stig | - |
| EBITDA % | 1,0% | 10,0% | -9,0 %-stig | - |
EBITDA nam 2,5 milljónum USD á fjórða ársfjórðungi samanborið við 22,9 milljónir USD á sama tímabili á síðasta ári. Tap tímabilsins var 22,9 milljónir USD samanborið við hagnað að fjárhæð 0,3 milljónir USD á síðasta ári. Helstu skýringar á versnun afkomu eru lækkun meðalfargjalda í millilandaflugstarfsemi félagsins ásamt óhagstæðri gengisþróun.
TEKJUR
- Heildartekjur voru 12% hærri en á fjórða ársfjórðungi 2015.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting | % af tekjum |
|---|---|---|---|---|---|
| Flutningatekjur: | 185.786 | 163.182 | 22.604 | 14% | 72% |
| Farpøgaflug | 171.845 | 152.313 | 19.532 | 13% | 67% |
| Vöru- og póstflutningar | 13.941 | 10.869 | 3.072 | 28% | 5% |
| Flugvéla- og áhafnaleiga | 18.375 | 25.113 | -6.738 | -27% | 7% |
| Aðrar rekstrartekjur | 52.311 | 41.671 | 10.640 | 26% | 20% |
| Samtals | 256.472 | 229.966 | 26.506 | 12% | 100% |
Heildartekjur jukust um 12%. Flutningatekjur jukust um 22,6 milljónir USD eða um 14% á milli ára. Farpøgatekjur jukust um 13% og var aukningin mest á ferðamannamarkaðnum til Íslands og á N-Atlantshafsmarkaðnum. Tekjur af vöru- og póstflutningum jukust um 3,0 milljónir USD. Frá 1. júní 2016 er hluti af afgreiðslu- og þjónustutekjum af flugfrakt skilgreint sem frakttekjur og skýrir það hækkunina að mestu. Á móti lækka afgreiðslu- og þjónustutekjur af flugfrakt undir öðrum rekstrartekjum eins og sést í yfirlitinu hér að neðan. Tekjur af flugvéla- og áhafnaleigu námu 18,4 milljónum USD og lækkuðu um 6,7 milljónir USD. Aðrar rekstrartekjur námu 52,3 milljónum USD og jukust um 10,6 milljónir USD eða um 26% miðað við fjórða ársfjórðung 2015.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| Vörusala á hótelum, flugvöllum og flugvélum | 24.721 | 13.918 | 10.803 | 78% |
| Tekjur af ferðabjónustu | 17.860 | 14.447 | 3.413 | 24% |
| Afgreiðslu- og þjónustutekjur af flugfrakt | 4.377 | 6.234 | -1.857 | -30% |
| Seld viðhaldsbjónusta | 729 | 706 | 23 | 3% |
| Söluhagnaður fastaðjármuna | 46 | 704 | -658 | -93% |
| Aðrar rekstrartekjur | 4.578 | 5.662 | -1.084 | -19% |
| Samtals | 52.311 | 41.671 | 10.640 | 26% |
- februar 2017 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
KOSTNAÐUR
- Heildarkostnaður nam 254,0 milljónum USD.
- Kostnaður eykst vegna aukins umfangs, styrkingar krónunnar og almennra launahækkana.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting | % af kostn. |
|---|---|---|---|---|---|
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 98.175 | 76.350 | 21.825 | 29% | 39% |
| Flugtengdur kostnaður | 88.592 | 79.087 | 9.505 | 12% | 35% |
| Annar rekstarkostnaður | 67.252 | 51.587 | 15.665 | 30% | 26% |
| Samtals | 254.019 | 207.024 | 46.995 | 23% | 100% |
Laun, launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður námu 98,2 milljónum USD samanborið við 76,4 milljónir USD á fjórða fjörðungi síðasta árs. Skýrist hækkunin af auknu umfangi rekstrarins, samningsbundnum launahækkunum og styrkingu krónunnar á móti USD á samanburðartímabilinu, en næstum allur launakostnaður félagsins er í ISK. Hagnaður af gengisvörnum kemur til lækkunar á launakostnaði fjórða ársfjörðungi 2016 um 3,3 milljónir USD og fjórða ársfjörðungi 2015 um 1,2 milljónir USD.
Flugtengdur kostnaður nam alls 88,6 milljónum USD á fjörðungnum og jókst um 12% eða 9,5 milljónir USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting | % af kostn. |
|---|---|---|---|---|---|
| Eldsneytiskostnaður | 45.203 | 39.714 | 5.489 | 14% | 51% |
| Flugvélaleigha | 5.351 | 4.878 | 473 | 10% | 6% |
| Afregiðslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld | 21.052 | 17.249 | 3.803 | 22% | 24% |
| Viðhaldskostnaður flugvéla | 16.986 | 17.246 | -260 | -2% | 19% |
| Samtals | 88.592 | 79.087 | 9.505 | 12% | 100% |
Eldsneytiskostnaður nam samtals 45,2 milljónum USD og jókst um 5,5 milljónir USD eða 14% frá sama tíma í fyrra. Heimsmarkaðsverð á eldsneyti var 11% hærra á fjórða ársfjörðungi 2016 samanborið við sama tímabil 2015. Hins vegar var uppgjörsverð félagsins, að teknu tilliti til varna á fjörðungnum, að meðaltali 481 USD/tonn og var 15% lægra en það var á fjórða fjörðungi 2015. Yfirlit yfir stöðu eldsneytisvarna félagsins í lok ársins er dregið fram í kaflanum „Horfur í rekstri Icelandair Group hf. og EBITDA spá 2017“ hér á eftir. Flugvélaleigha nam 5,4 milljónum USD jókst í samanburði við fjórða ársfjörðung 2015. Skýrist það af einni B767-300 vél sem bættist við flota Icelandair. Afregiðslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld hækkuðu um 3,8 milljónir USD á milli ára eða um 22% vegna verðhækkana og aukins umfangs. Viðhaldskostnaður nam 17,0 milljónum USD og lækkæði litillega eða um 2% á milli ára.
Annar rekstarkostnaður nam 67,3 milljónum USD og jókst um 15,7 milljónir USD á milli ára. Í töflunni hér á eftir má sjá niðurbrot á helstu liðum og þróun milli ára.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| Rekstarkostn. fasteigna og innréttinga | 6,823 | 5,369 | 1,454 | 27% |
| Samskiptakostnaður | 6,456 | 5,051 | 1,405 | 28% |
| Auglýsingakostnaður | 7,837 | 7,581 | 256 | 3% |
| Bökunargj., kreditkortabókn. og umboðslaun | 12,359 | 10,684 | 1,675 | 16% |
| Kostnaðarverð seldra vara | 8,173 | 4,555 | 3,618 | 79% |
| Þjónusta við farþega og hótelgesti | 7,381 | 3,798 | 3,583 | 94% |
| Aðkeypt þjónusta í ferðabjónustu | 10,784 | 7,042 | 3,742 | 53% |
| Annar rekstarkostnaður | 7,439 | 7,507 | -68 | -1% |
| Samtals | 67,252 | 51,587 | 15,665 | 30% |
- februar 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
FJÁRMAGNSLIDIR
- Gengisáhrif voru jákvæð á tímabilinu
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting | % breyting |
|---|---|---|---|---|
| Fjármunatekjur | 1.194 | 951 | 243 | 26% |
| Fjármagnsgjöld | -2.384 | -3.256 | 872 | -27% |
| Gengisáhrif | 2.766 | 299 | 2.467 | - |
| Samtals | 1.576 | -2.006 | 3.582 | - |
Fjármagnsgjöld á fjorða ársfjorðungi námu 2,4 milljónum USD samanborið við 3,3 milljónir USD á fjorða fjorðungi síðasta árs. Gengisáhrif vegna stöðu peningalegra eigna og skulda í lok fjorðungsins voru jákvæð að fjárhæð 2,8 milljónir USD samanborið við 0,3 milljónir USD á sama tímabili árið 2015.
Félagið ver sjóðstreymisáhættu vegna misvægis gjaldmiðla allt að 12 mánuði fram í tímann. Misvægið er að langmestu leyti til komið vegna tekna og gjalda. Á fjorða ársfjorðungi var hagnaður vegna innleystra samninga sem komu til hækkunar á EBITDA 3,2 milljónir USD.
EFNAHAGUR OG FJÁRHAGSLEG STADA
- Heildareignir námu 1,3 milljörðum USD í lok árs 2016.
- Eiginfjárhlutfall var 44%.
- Vaxtaberandi skuldir námu 242,4 milljónum USD.
| Púsundir USD | 31.12.2016 | 31.12.2015 | Breyting |
|---|---|---|---|
| Heildareignir | 1.292.493 | 971.979 | 320.514 |
| Rekstrarfjármunir | 602.615 | 419.071 | 183.544 |
| Handbært fé og markaðsverðbréf | 250.125 | 214.119 | 36.006 |
| Eigið fé | 568.213 | 456.531 | 111.682 |
| Vaxtaberandi skuldir | 242.382 | 65.530 | 176.852 |
| Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir | 7.743 | 148.589 | 140.846 |
| Eiginfjárhlutfall | 44% | 47% | -3 %-stig |
| Veltufjárhlutfall | 0,92 | 0,80 | 14% |
Varanlegir rekstrarfjármunir námu 602,6 milljónum USD og jukust um 183,5 milljónir USD frá ársbyrjun. Nánari umfjöllun um fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum er undir kaflanum um sjóðstreymi og fjárfestingar. Í lok fjorðungsins voru 48 flugvélar í flugflotanum, þar af voru 40 í eigu félagsins. Fokker F-50 vélar félagsins eru í sóluferli. Í tóflunni hér á eftir er yfirlit yfir flota félagsins í lok ársins.
| Flugvélagerð | Icelandair | Cargo | Loftleiðir | Flugfél. Islands | Flugfloti 31.12.16 | Flugfloti 31.12.15 | Eigin vélar | Leigu- vélar | Br. frá 31.12.15 |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Boeing 757 200 | 23 | 2 | 4 | 29 | 26 | 26 | 3 | 3 | |
| Boeing 757 300 | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 | ||||
| Boeing 767 300 | 4 | 2 | 6 | 4 | 4 | 2 | 2 | ||
| Boeing 737 700 | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 | ||||
| Boeing 737 800 | 2 | 2 | 2 | 2 | 0 | ||||
| Bombardier Q200 | 2 | 2 | 2 | 2 | 0 | ||||
| Bombardier Q400 | 3 | 3 | 3 | 3 | 0 | ||||
| Fokker F-50 | 4 | 4 | 4 | 4 | 0 | ||||
| Total | 28 | 2 | 9 | 9 | 48 | 43 | 40 | 8 | 5 |
- februar 2017 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
Félagið er með í pontun 16 nýjar Boeing 737 Max 8 og 9 vélar. Fyrstu vélarnar verða afhentar á fyrsta ársfjörðungi 2018. Fjárfesting í vélunum, að meðtöldum fyrirframgreiðslum, greinast þannig niður á næstu fjögur ár:
| Milljónir USD | |
|---|---|
| 2017 | 82 |
| 2018 | 177 |
| 2019 | 248 |
| 2020 | 192 |
Skuldabréfaútboð sem félagið fór í árinu 2016 var að hluta til þess að fjármagna fyrirframgreiðslur vegna vélanna. Félagið vinnur nú að fjármögnun vélanna sem afhentar verða á árinum 2018 og 2019 og gengur sú vinna vel. Gert er ráð fyrir að allt að sex vélar sem eru til afhendingar á þeim árum verði seldar og endurleigðar til lengri tíma. Samningaviðræður við leigusala standa yfir og er reiknað með að þeim ljúki á fyrsta ársfjörðungi 2017.
Eigið fé nam 568,2 milljónum USD í árslok og eiginfjárhlutfallið var 44%. Í lok árs 2015 var eiginfjárhlutfallið 47%.
| Púsundir USD | |
|---|---|
| Eigið fé 1.1. 2016 | 456.531 |
| Afkoma tímabilsins | 138.650 |
| Árðgreiðsla (0.54 US cent á hlut) | -26.968 |
| Eigið fé 31.12. 2016 | 568.213 |
Vaxtaberandi skuldir námu 242,4 milljónum USD, samanborið við 65,5 milljónir USD í ársbyrjun. Í október 2016 gaf Icelandair Group út óveðtryggð skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir USD. Skuldabréfin eru til fimm ára og bera 3,5% vexti, ofan á þriggja mánaða LIBOR-vexti, án vaxtagólfs. Fjármagnið verður nýtt til fyrirframgreiðslna inn á nýjar flugvélar og í fjármögnun annarrar starfsemi Icelandair Group.
Afborganir langtímaskulda á fjörða ársfjörðungi námu 2,3 milljónum USD. Handbært fé og markaðsverðbréf námu samtals 250,1 milljón USD í lok árs 2016 samanborið við 214,1 milljón USD í byrjun árs. Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir var því 7,7 milljónir USD í árslok.
| Púsundir USD | 31.12.2016 | 31.12.2015 | breyting |
|---|---|---|---|
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 196.722 | 55.387 | 141.335 |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 45.660 | 10.143 | 35.517 |
| Markaðsverðbréf | 23.236 | 19.533 | 3.703 |
| Handbært fé | 226.889 | 194.586 | 32.303 |
| Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir | 7.743 | 148.589 | 140.846 |
- februar 2017 | Uppgjørstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
SJÓÐSTREYMI
- Handbært fé til rekstrar nam 39,5 milljónum USD.
- Handbært fé í árslok 2016 var 226,9 milljónir USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 4. ársfj. '15 | breyting |
|---|---|---|---|
| Veltufé frá rekstri | -10.701 | 3.079 | -13.780 |
| Handbært fé frá rekstri | -39.471 | 36.640 | -76.111 |
| Fjárfestingahreyfingar | -69.986 | -87.507 | 17.521 |
| Fjármögnunarhreyfingar | 147.727 | -10.616 | 158.343 |
| Handbært fé, breyting | 38.270 | -61.483 | 99.753 |
| Handbært fé í lok tímabils | 226.889 | 194.586 | 32.303 |
Handbært fé til rekstrar á fjórða ársfjórðungi nam 39,5 milljónum USD samanborið við handbært fé frá rekstri að fjárhæð 36,6 milljón USD á fjórða ársfjórðungi 2015. Handbært fé á fjórðungnum jókst um 38,3 milljónir USD.
FJÁRFESTINGAR
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 37,6 milljónum USD á fjórða ársfjórðungi, þar af var stærsti hlutinn vegna hreyflayfirhala. Fjárfestingar í langtímakostnaði og óefnislegum eignum námu alls 2,2 milljónum USD. Fjárfestingar ársins námu alls 243,4 milljónum USD.
| Púsundir USD | 4. ársfj. '16 | 12M 2016 |
|---|---|---|
| Varanlegir rekstrarfjármunir | ||
| Flugvélar og fylgihlutir | 7,186 | 107,074 |
| Hreyflayfirhöl eigin vélar | 22,557 | 70,574 |
| Aðrar fjárfestingar | 7,818 | 53,468 |
| Varanlegir rekstrarfjármunir alls | 37,561 | 231,116 |
| Langtímakostnaður | ||
| Hreyflayfirhöl á leiguvélum | 1,473 | 10,678 |
| Óefnislegar eignir | 689 | 1,603 |
| Fjárfestingar samtals | 39,723 | 243,397 |
HORFUR Í REKSTRI ICELANDAIR GROUP HF. OG EBITDA SPÁ 2017
- Aukin óvissa í alþjóðlegum flugrekstri.
- EBITDA spá 140-150 milljónir USD árið 2017.
EBITDA spá fyrir árið 2017 gerir ráð fyrir að EBITDA muni lækka á milli ára og nema 140-150 milljónum USD. Í eftirfarandi brú koma fram helstu liðir sem skýra áætlaða breytingu á EBITDA milli ára.
- februar 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
| Milljónir USD | |
|---|---|
| EBITDA 2016 | 220 |
| Icelandair: | |
| Framboðsaukning - nettó EBITDA áhrif | 26 |
| Lækkun einingatekná ví lækkunar meðalfargjalda | -57 |
| Gengisáhrif að teknu tilliti til varna | -22 |
| Áhrif verðhækkana á eldsneyti að teknu tilliti til varna | -12 |
| Samningsbundnar launahækkanir og annar kostnaður | -16 |
| Önnur félög | |
| Annað | 6 |
| EBITDA spá 2017 | 140-150 |
Eftir miðjan janúar lækkuðu meðalfargjöld mun meira en félagið hafði gert ráð fyrir. Horfur eru á áframhaldandi prýstingi á fargjöld. Pessa próun má einkum rekja til aukinnar samkeppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breytinga í alþjóðastjörnmálum hafi áhrif á eftirspurn. Að auki hafa gjaldmiðlar próast á óhagstæðan hátt miðað við fyrra ár og olíuverð hefur hækkað.
Horfur í annarri starfsemi Icelandair Group eru góðar. Hótelstarfsemin gengur vel og útlit er fyrir góða nýtingu á árinu enda gert ráð fyrir áframhaldandi fjölgun ferðamanna til Íslands. Sjónannaverkfall á Íslandi hefur þó neikvæð áhrif á fraktstarfsemi félagsins og sterk króna hefur áhrif á afkomu innlendrar ferðabjónustu, Iceland Travel, en bókanir þar eru sterkar.
Eins og fram kom í tilkynningum félagsins frá miðju ári 2016 hefur félagið gert ráð fyrir að rekstrarskilyrði væru að versna. Frá þeim tíma hefur félagið lagt aukna áherslu á verkefni sem miða að því að auka tekjur og lækka kostnað.
Icelandair mun gera breytingar á uppbýggingu á fargjöldum og auka fjölbreytileika í vöruframboði. Pessi aðlögun, sem unnið hefur verið að frá því í haust, er til að mæta aukinni samkeppni, breyttum aðstæðum á mörkuðum fyrirtækisins og breytingum á neysluvenjum flugfarþega. Markmið breytinganna er að ná til nýrra viðskiptavina, auka sýnileika félagsins í leitarvélum gagnvart tilteknum markhópum og breikka tekjugrunn félagsins. Meðal annars verða kynnt ný fargjöld þar sem viðskiptavinur getur valið að sleppa þjónustupáttum sem eru innifaldir í dag og greiða fyrir þá þjónustu sem hann velur sjálfur, svo sem farangursheimildir. Jafnframt verða kynntar nýjar virðisaukandi þjónustuleiðir á almennu farrými og hagstæðari fargjöld á viðskiptafarrými. Innleiðing hefst á öðrum ársfjörðungi. Félagið hefur nýlega breytt reglum varandi tóskugjöld og greiða farþegar nú fyrir tósku números tvö á öllum leiðum. Gert er ráð fyrir að breytingin auki hliðartekur. Pá geta viðskiptavinir nú greitt inn á fargjöld með vildarpunktum, sama hver punktafjárhæðin er.
Frá síðastliðnu hausti hefur verið hert verulega á kostnaðaraðhaldi innan félagsins. Meðal aðgerða má nefna að allir ferlar við flug- og farþegaafgreiðslu í Keflavík eru í endurskoðun og hafa ráðgjafar frá IATA verið fengnir til að aðstoða við verkið með það að markmiði að þeir verði eins og best gerist. Á undanförnum misserum hefur félagið fjárfest í stafrænum lausnum og verður lögð mikil áhersla á þann þátt á árinu 2017. Félagið gerir ráð fyrir að lausnirnar muni auka hliðartekur ásamt því að þær muni auka sjálfvirkni, styrkja ferla og þar með lækka kostnað.
Markmið félagsins er að aðgerðir á tekju- og gjaldahlið muni skila bættri afkomu að fjárhæð 30 milljónir USD á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda í byrjun árs 2018. EBITDA spá félagsins fyrir árið 2017 er því 140-150 milljónir USD.
Í afkomuspá ársins er gert ráð fyrir gengi EUR gagnvart USD verði að meðaltali 1,07 og gengisvísitala íslensku krónunnar verði 164 að meðaltali á árinu 2017. Hér að neðan má sjá næmningreiningu miðað við 10% styrkingu helstu viðskiptamynta félagsins á móti USD að teknu tilliti til varna í árslok 2016:
9
- februar 2017 | Uppgjörstilkynning fra Icelandair Group
ICELANDAIR GROUP
| Púsundir USD | ISK | EUR | GBP | CAD |
|---|---|---|---|---|
| Áhrif á EBITDA | -12,501 | 2,641 | 2,539 | 4,220 |
Verð á þotueldsneyti (án tillits til varna) er áætlað 540 USD/tonn að meðaltali á árinu 2017. Að teknu tilliti til varna má gera ráð fyrir að 10% læk kun á eldsneytisverði hafi jákvæð áhrif á EBITDA að fjárhæð USD 9.3 milljónir. Staða eldsneytisvarna í ársbyrjun er dregin fram í tóflunni hér á eftir.
| Timabil | Áætluð notkun (tonn) | Skipta-samningar | Hlutfall varið | Meðalverð skiptasamn. USD |
|---|---|---|---|---|
| Jan 17 | 22.873 | 12.450 | 54% | 410 |
| Feb 17 | 21.105 | 15.450 | 73% | 457 |
| Mar 17 | 25.322 | 15.550 | 61% | 476 |
| Apr 17 | 26.463 | 19.550 | 74% | 489 |
| Mai 17 | 35.143 | 24.550 | 70% | 493 |
| Jún 17 | 46.686 | 26.550 | 57% | 484 |
| Júl 17 | 49.229 | 26.750 | 54% | 500 |
| Ágú 17 | 48.981 | 26.750 | 55% | 497 |
| Sep 17 | 42.853 | 23.550 | 55% | 538 |
| Okt 17 | 33.509 | 17.300 | 52% | 508 |
| Nóv 17 | 25.462 | 10.300 | 40% | 538 |
| Des 17 | 24.532 | 9.300 | 38% | 552 |
| 12 mánuðir | 402.158 | 228.050 | 57% | 495* |
| Jan 18 | 21.368 | 4.000 | 19% | 565 |
| Feb 18 | 19.568 | 0 | 0% | 0 |
| Mar 18 | 23.658 | 0 | 0% | 0 |
| Apr 18 | 24.835 | 2.000 | 8% | 578 |
| Mai 18 | 33.841 | 3.000 | 9% | 578 |
| Jún 18 | 45.332 | 0 | 0% | 0 |
| 13-18 mánuðir | 168.602 | 9.000 | 5% | 572* |
- Vegið meðalverð
HLUTHAFAR
- Markaðsvirði félagsins í lok árs 2016 nam 115,5 milljónum króna.
- Hlutabréfaverð Icelandair Group nam 23,10 krónum í lok árs 2016.
Hæsta dagslokaverð á hvern hlut á fjörða ársfjörðungi var 26,53 krónur, lægsta dagslokaverð á hvern hlut var 22,95 krónur og meðaltals dagslokaverð á tímabilinu var 24,12 krónur á hvern hlut. Viðskipti með hlutabréf Icelandair Group á árinu 2016 námu alls 6.407 og heildarvelta nam 140,1 milljarði króna. Meðalupphæð hverra viðskipta árið 2016 var 21,9 milljónir króna. Fjöldi hluthafa var 2.560 í lok árs og fjölgaði um 173 frá upphafi árs. Fjöldi útgefinna hlutabréfa þann 31. desember 2016 var 5.000.000.000 og fjöldi útistandandi bréfa á sama tíma var 4.974.540.000. Eftir að afkomuspá fyrir árið 2017 var birt í tilkynningu til Kauphallar í byrjun febrúar, lækkuðu bréf félagsins mikið og var dagslokaverð þann 7. febrúar 2017, 15,00 krónur.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að verja allt að 1.700 milljónum króna til kaupa á eigin bréfum í samræmi við samþykkt síðasta aðalfundar. Kaupáætlun hefst í febrúarmánuði. Stjórn Icelandair Group leggur til að 565 milljónir íslenskra króna verði greiddar í arð til hluthafa á árinu 2017. Samsvarar það 0,11 krónum á hvern hlut.
- febrúar 2017 | Uppgjörstilkynning frá Icelandair Group
ICELANDAIR
GROUP
1
Í grafínu hér á eftir má sjá þróun hlutabréfaverðsins á árinu 2016 í ISK:

KYNNINGARFUNDUR 8. FEBRÚAR 2017
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 4-5. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/
SAMÞYKKT ÁRSREIKNINGS
Samstæðureikningur Icelandair Group vegna uppgjörs fjórða ársfjórðungs og ársuppgjörs 2016 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. febrúar 2016.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Aðalfundur, 3.03 2017
- Uppgjör 1. ársfjórðungs – 27.04, 2017
- Uppgjör 2. ársfjórðungs – 27.07, 2017
- Uppgjör 3. ársfjórðungs – 26.10, 2017
- Uppgjör 4. ársfjórðungs – vika 06, 2018
- Aðalfundur, vika 10 2018
FREKARI UPPLÝSINGAR VEITA
- Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455.
- Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.