Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2017

Apr 27, 2017

2197_rns_2017-04-27_f69e25fb-608a-44f5-af18-b617c129d0ff.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Afkoma í takt við væntingar

Afkoma í takt við væntingar

  • Heildartekjur jukust um 5% milli ára og námu 222,4 milljónum USD.
  • EBITDA neikvæð um 16,2 milljónir USD.
  • Áframhaldandi þrýstingur á meðalfargjöld.
  • 14% fjölgun farþega í millilandaflugi og sætanýting góð. Farþegaaukning var mest á markaðnum yfir N-Atlantshafið eða 40%. 
  • Tekjur af hótelgistingu nær tvöfaldast milli ára, námu 10,4 milljónum USD samanborið við 5,4 milljónir USD á fyrsta ársfjórðungi 2016.
  • Eiginfjárhlutfall var 36% í lok mars.
  • Handbært fé og skammtímaverðbréf nema 322,8 milljónum  USD og eru 42,3 milljónir USD umfram vaxtaberandi skuldir.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

Afkoma fyrsta ársfjórðungs er í samræmi við afkomuáætlun sem við kynntum í byrjun febrúar. Við höfum gripið til margvíslegra aðgerða í rekstrinum til að ná fram hagræðingu og auknum tekjum. Vinna við þær aðgerðir gengur vel og í samræmi við áætlanir okkar. Við erum þess fullviss að við munum ná því markmiði sem við kynntum; að bæta afkomu félagsins um 30 milljónir USD á ársgrundvelli, þegar aðgerðirnar verða komnar að fullu til framkvæmda í ársbyrjun 2018.

Breyting á afkomumilli ára skýrist aðallega af lægri meðalverðum í millilandaflugi. Þá hefur gengisþróun verið félaginu óhagstæð. Tekjur af hótelgistingu aukast töluvert milli ára og nýtingin hefur aldrei verið betri á fyrsta ársfjórðungi þrátt fyrir framboðsaukningu.

Bókunarflæði er sterkt en vegna þrýstings á meðalfargjöld gerum við ráð fyrir krefjandi rekstrarskilyrðum í flugrekstri á árinu. Engu að síður gerum við ráð fyrir hóflegum vexti; spáð er áframhaldandi fjölgun ferðamanna til Íslands, nýjum áfangastöðum hefur verið bætt við, horfur í hótelrekstri eru góðar og frakt starfsemi félagsins gengur vel.   Fjárhagsstaða félagsins er mjög sterk og það er því vel í stakk búið til að takast á við sveiflur og nýta þau tækifæri sem gefast á mörkuðum. Frá síðustu afkomuspá hafa ytri aðstæður í rekstri félagsins batnað og uppfærum við því EBITDA spá okkar fyrir árið í 145-155 milljónir USD.

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.

Viðhengi: