AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2017
Sep 6, 2017
2197_rns_2017-09-06_7f255018-4534-46da-9388-96ce16bbe296.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Flutningatölur ágúst 2017
Flutningatölur ágúst 2017
Í ágúst flutti Icelandair um 529 þúsund farþega og voru þeir 10% fleiri en í ágúst á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 87,9% samanborið við 87,6% á sama tíma í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru 39 þúsund í ágúst og fjölgaði um 4% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 3% samanborið við ágúst 2016. Sætanýting var 72,3% og jókst um 2,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 22% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 35% frá því á síðasta ári, sem skýrist af aukningu í innflutningi til Íslands og flutningum um Ísland á milli Evrópu og N-Ameríku. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins dróst saman um 5% samanborið við ágúst í fyrra og herbergjanýting var 88,6% samanborið við 90,3% á síðasta ári. Eftirspurn bókana með styttri fyrirvara var minni en áætlað var ásamt því að meira var um afbókanir hópa en á sama tíma og í fyrra.
| ICELANDAIR | ÁGÚ 17 | ÁGÚ 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
| Fjöldi farþega | 528.699 | 482.569 | 10% | 2.823.632 | 2.516.522 | 12% |
| Sætanýting | 87,9% | 87,6% | 0,3 %-stig | 83,8% | 83,1% | 0,7 %-stig |
| Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.895,7 | 1.697,6 | 12% | 10.456,6 | 9.205,6 | 14% |
| AIR ICELAND CONNECT | ÁGÚ 17 | ÁGÚ 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
| Fjöldi farþega | 38.955 | 37.405 | 4% | 236.033 | 222.640 | 6% |
| Sætanýting | 72,3% | 69,9% | 2,4 %-stig | 67,5% | 69,6% | -2,1 %-stig |
| Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 27,2 | 26,6 | 3% | 144,7 | 131,5 | 10% |
| LEIGUFLUG | ÁGÚ 17 | ÁGÚ 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
| Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 ppt | 97,1% | 95,9% | 1,2 ppt |
| Seldir blokktímar | 2.442 | 2.003 | 22% | 17.594 | 15.893 | 11% |
| FRAKTFLUTNINGAR | ÁGÚ 17 | ÁGÚ 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
| Seldir tonnkm. (FTK´000) | 11.004 | 8.172 | 35% | 76.008 | 68.864 | 10% |
| HÓTEL | ÁGÚ 17 | ÁGÚ 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
| Framboðnar gistinætur | 38.786 | 40.012 | -3% | 260.866 | 241.941 | 8% |
| Seldar gistinætur | 34.368 | 36.147 | -5% | 212.671 | 199.281 | 7% |
| Herbergjanýting | 88,6% | 90,3% | -1,7 %-stig | 81,5% | 82,4% | -0,9 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010
Viðhengi: