Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2014

Jan 6, 2015

2197_rns_2015-01-06_91c7b530-be63-4ca9-8b58-b547e03865d5.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Flutningatölur desember 2014

Flutningatölur desember 2014

Í desember flutti félagið 159 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 13%
fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 11% og
sætanýting var 78,6% samanborið við 76,1% á sama tíma í fyrra. Farþegar í
millilandaflugi félagsins hafa aldrei verið fleiri en á árinu 2014. Þeir voru
alls 2,6 milljónir og fjölgaði um 15% frá árinu 2013.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 18 þúsund í desember
og fækkaði um 8% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 9%
samanborið við desember 2013. Sætanýting nam 65,7% og jókst um 0,7 prósentustig
á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 24% á milli ára.
Fraktflutningar drógust saman um 1% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á
hótelum félagsins var 55,8% samanborið við 45,7% í desember í fyrra.

MILLILANDAFLUG DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)

Fjöldi farþega 159.311 140.615 13% 2.605.483 2.257.295 15%
Sætanýting 78,6% 76,1% 2,4 %-stig 80,4% 79,3% 1,1 %-stig
Framboðnir 606,3 547,5 11% 9.673,3 8.320,3 16%
sætiskm.
(ASK'000.000)
INNANLANDSFLUG DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
OG
GRÆNLANDSFLUG


Fjöldi farþega 18.198 19.752 -8% 292.706 307.309 -5%
Sætanýting 65,7% 65,0% 0,7 %-stig 71,5% 71,1% 0,4 %-stig
Framboðnir 8,7 9,5 -9% 147,6 154,5 -5%
sætiskm.
(ASK'000.000)
LEIGUFLUG DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)


Flugvélanýting 87,5% 90,9% -3,4 %-stig 94,2% 91,0% 3,2 %-stig
Seldir 1.689 2.219 -24% 21.044 28.089 -25%
blokktímar
FRAKTFLUTNINGAR DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)


Framboðnir 14.684 14.206 3% 216.617 201.796 7%
tonnkm.
(ATK´000)
Seldir tonnkm. 8.047 8.124 -1% 97.660 94.787 3%
(FTK´000)
HÓTEL DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)


Framboðnar 22.909 22.940 0% 316.773 314.603 1%
gistinætur
Seldar 12.774 10.481 22% 239.522 222.320 8%
gistinætur
Herbergjanýting 55,8% 45,7% 10,1 %-stig 75,6% 70,7% 4,9 %-stig

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010

Viðhengi: