Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2014

Feb 5, 2015

2197_rns_2015-02-05_5ea3c167-5da9-492f-a7d7-7b580212aa2f.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair Group hagnast um 67 milljónir USD

Icelandair Group hagnast um 67 milljónir USD

-- Hagnaður ársins fyrir skatta nam 79,9 milljónum USD og jókst um 8,9
milljónir USD eða 12% á milli ára.
-- EBITDA 2014 nam 154,3 milljónum USD samanborið við 143,7 milljónir USD árið
2013.
-- Rekstrartekjur jukust um 9% á milli ára.
-- EBITDA á fjórða ársfjórðungi var neikvæð um 1,5 milljón USD og lækkaði um
8,3 milljónir USD á milli ára.
-- Eiginfjárhlutfall 43% í árslok 2014 samanborið við 42% í árslok 2013.
-- Nettó vaxtaberandi skuldir lækkuðu um 76,2 milljónir USD á árinu og voru
neikvæðar í lok árs um 153,7 milljónir USD.
-- Stjórn félagsins leggur til að arður að fjárhæð 2.500 milljónir króna verði
greiddar til hluthafa á árinu 2015 sem samsvarar 0,5 krónum á hvern hlut.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri

„Afkoma ársins 2014 er betri en áætlanir stjórnenda gerðu ráð fyrir í upphafi
árs og EBITDA ársins er við efri mörk síðustu afkomuspár félagsins. Hagnaður
ársins eftir skatta nam 66,5 milljónum USD og jókst um 18% frá fyrra ári.
EBITDA nam USD 154,3 milljónum og hækkaði um 7% á milli ára. Afkoma fjórða
ársfjórðungs er í takt við afkomuspá sem birt var í lok október sl. Það er
ljóst að margir samverkandi þættir hafa jákvæð áhrif á sterkt uppgjör. Þar má
nefna lækkandi eldsneytisverð, aukna eftirspurn á Norður-Atlantshafsmarkaðinum
sem við höfum mætt með auknu framboði ásamt góðri afkomu í leiguflugi. Veiking
evrunnar gagnvart bandaríkjadal hafði neikvæð áhrif á rekstur félagsins auk
þess sem kostnaður við skoðanir fraktvéla var mun hærri en gert hafði verið ráð
fyrir.

Frá og með árinu 2010 hefur verið stígandi í rekstri Icelandair Group. Tekjur
hafa vaxið um USD 395 milljónir og námu USD 1,1 milljarði á árinu 2014. Á
undanförnum árum höfum við þétt enn raðir starfsfólks okkar og tryggt jafnan
vöxt innviða til að búa í haginn fyrir framtíðina. Fyrirhyggja er og verður
lykillinn að arðbærum langtímavexti félagsins. Sterk eiginfjárstaða og
undirliggjandi sjóðstreymi tryggja getu okkar til að ráðast í arðbærar
fjárfestingar sem auka samkeppnishæfni til langs tíma. Við erum með skýra
framtíðarsýn og höfum á að skipa einvala liði starfsfólks sem ég þakka öðrum
fremur þann góða árangur sem við náðum á síðasta ári.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi arðbærum innri vexti í rekstri Icelandair Group
á árinu 2015. Flugáætlun í millilandaflugi verður 14% umfangsmeiri samanborið
við árið 2014 og fyrir liggur að veruleg uppbygging mun eiga sér stað í
hótelstarfsemi félagsins í miðborg Reykjavíkur. Heilt á litið eru jákvæðar
horfur í ferðaþjónustu á Íslandi auk þess sem við teljum hagfelldar horfur í
fraktflutningum og leiguflugsstarfsemi á árinu 2015.

EBITDA-spá fyrir árið 2015 hækkar samanborið við árið 2014 og gerir spáin ráð
fyrir að EBITDA verði á bilinu 160-165 milljónir USD. Lækkun eldsneytisverðs er
sá einstaki kostnaðarliður sem hefur mest áhrif til hækkunar á EBITDA.
Mikilvægt er að árétta að ytri þættir svo sem sveiflur á eldsneytisverði og
gjaldeyrismörkuðum og niðurstöður kjarasamninga á vinnumarkaði geta haft
töluverð áhrif á afkomu félagsins.“

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
[email protected]
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
[email protected]
665 8801

Viðhengi: